Author: lensherra

10 aukasýningar á Forðist okkur

Hin umtalaða leiksýning Forðist okkur eftir Hugleik Dagsson verður tekin til sýningar að nýju á Litla sviði Borgarleikhússins í mars. Sýningin fékk afar góðar viðtökur í haust jafnt hjá gagnrýnendum sem og almenningi og komust færri að en vildu.  Forðist okkur er samstarfsverkefni CommonNonsense og Nemendaleikhússins.   Hugmyndaheimur verksins er sprottinn upp úr verkum Hugleiks myndasögubókunum Elskið okkur , Drepið okkur og Ríðið okkur. Sögur Hugleiks er skemmtilegar, kaldhæðnar, grófar, ljótar, fallegar, ósmekklegar, gróteskar og rómantískar. Það rúmast allt í þessum heimi. Hver saga lætur ekki mikið yfir sér. Ein teikning með örlittlum texta. Í einfaldleika sínum tekst Hugleik á skondinn og áhrifamikinn hátt að beina sjónum okkar að margs skonar meinsemdum í samskiptum fólks, brengluðu gildismati, brengluðu siðferði og hættulegum félagslegum doða og afskiptaleysi. Sögur hans eru eins og ljósmynd úr lífi fólks og hann lætur okkur eftir að filla upp í götin. Forðist okkur er saga um nútímamanninn í sinni nöktustu mynd. Leikarar í sýningunni eru Birgitta Birgisdóttir, Dóra Jóhannsdóttir, Halldóra Malín Pétursdóttir, Jörundur Ragnarsson, Magnea Björk Valdimarsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Víðir Guðmundsson, Valur Freyr Einarsson og Aðalheiður Halldórsdóttir Leikstjórar eru  Stefán Jónsson og Ólöf Ingólfsdóttir, Ilmur Stefánsdóttir hannaði leikmynd, tónlist og hljóðmynd gerði Davíð Þór Jónsson, lýsing  hannaði Egill Ingibergsson,  búninga hönnuðu Rannveig Kristjánsdóttir og Elsa María Blöndal. Aðeins er unnt að sýna 10 sýningar. Miðasala er hafin hjá miðasölu Borgarleikhússins í síma...

Read More

Fimbulvetur frumsýnir Hungur

Leikritið Hungur eftir Þórdísi Elvu Þovaldsdóttur Bachmann verður frumsýnt þann 18. febrúar í Borgarleikhúsinu. Átraskanir eru vágestur sem vert er að beina kastljósum að. Rop, prump, garnagaul og önnur búkhljóð í aukahlutverki. Hvað gerist þegar tveir lystarstolssjúklingar mynda vináttutengsl? Hvað gerist þegar offitusjúklingur finnur sér maka, sem elskar hvern einasta blett á líkama hennar? Hvernig geta fjórir einstaklingar uppfyllt óraunhæfar kröfur heimsins um útlit og líkamlegt atgervi? Þann 18. febrúar mun listfyrirtækið Fimbulvetur ehf. frumsýna leikritið Hungur á Litla sviði Borgarleikhússins. Leikritið fjallar fólk, um manneskjur með drauma og þrár, en ekki sjúkdómana sem það er haldið. Hungur er alls ekki fræðsluleikrit, heldur veitir áhorfendum vægðarlausa innsýn í heim útlitsdýrkunar. Sem betur fer þekkja ekki margir þennan heim af eigin raun en flestir hafa af honum afspurn í einhverri mynd. Verkið spyr áleitina spurninga sem vonandi verða til þess að opna umræðuna um þennan áhyggjuverða faraldur. Átraskanir eru ört vaxandi vandamál á Íslandi. Átröskunarsjúklingar skipta þúsundum og fjöldi beiðna um innlagningu á geðdeild tvöfaldast ár frá ári. Nýjar deildir hafa verið opnaðar á Landspítalanum Háskólasjúkrahúsi til þess að bregðast við þessari þróun, og sjálfshjálparhópum sem takast á við þessa vá hefur fjölgað. Átraskanir hafa ekki bara alvarleg áhrif á einstaklingana sem af þeim þjást, heldur einnig fjölskyldur þeirra, atvinnurekendur og á fyrirmyndir í fjölmiðlum. Það er því eðlilegt að umræða um það mein sem átröskun er hafi verið mikil...

Read More

Leikfélag Mosfellssveitar frumsýnir í beinni

Föstudaginn 17. febrúar verður frumsýnt nýtt íslenskt leikrit hjá Leikfélagi Mosfellssveitar í Bæjarleikhúsinu og hefst sýningin klukkan 20:00. Verkið heitir Í beinni og er eftir þá Hrafnkel Stefánsson og Nóa Kristinsson. Leikstjóri er Guðný María Jónsdóttir og samtals standa um 20 leikarar, hljóðfæraleikarar, tæknimenn og sviðsmenn að sýningunni. Leikritið gerist í lokaþætti spjallþáttarins Í beinni sem stjórnað er af hinum stórskemmtilega Benna Gumm. Útsendingin gengur þó ekki átakalaust fyrir sig og hinar óvæntustu uppákomur setja svip sinn á atburðarásina. Einnig er í sýningunni skyggnst baksviðs, þ.s. við erum einnig í biðstofu gesta þáttarins.  Þetta er bráðfyndið leikrit sem óhætt er að mæla með fyrir alla fjölskylduna! Önnur sýning verður sunnudaginn 19.02. Sýnt verður næstu helgar á eftir á föstudögum og laugardögum og hefjast sýningar klukkan...

Read More

Papar í útvarpsleikhúsinu

Þau ykkar sem eru ekki enn sofnuð eða hafið fleygt ykkur í sófann til að horfa á  Desperate Housewives, hafa kannski áhuga á að vita að í útvarpinu á  Rás 1, fimmt. 16 febrúar  kl.22.20, verður flutt áhugavert leikrit eftir írska leikskáldið Brian FitzGibbon, sem búsettur er hér á landi.  Verkið, sem heitir PAPAR, er fantasia um írska munka sem sagt er að hafi sest að á Íslandi áður en Hrafna-Flóki fann landið.  Verkið er byggt á leikriti sem frumsýnt var í Þjóðleikhúsi Íra, The Abbey Theatre, í júli 1997.    Þetta dramatíska verk með kómísku ívafi, fjallar um þrjá einsetumenn, sem búa einangraðir í óbyggðu og einmanalegu landi. Árekstrar verða í sögunni þegar einn munkur fær heimþrá og vill snúa aftur til Írlands en munkarnir hafa heitið því að snúa aldrei til baka, dvöl þeirra er einskonar fórn.   Leikstjóri er Kristín Jóhannesdóttir og leikendur eru Róbert Arnfinnsson, Þröstur Leó Gunnarsson, Valur Freyr Einarsson og Sigríður María Egilsdóttir. Þýðing: Árna Ibsen. Höfundur tónlistar: Sverrir Guðjónsson. Ath. Öll íslensk leikrit Útvarpsleikhússins verða framvegis aðgengileg á vefnum í u.þ.b. mánuð frá því að þeim verður...

Read More

Leiklistarhátíð NEATA í Færeyjum

Dagana 3. til 8. ágúst 2006 heldur Norður-evrópska áhugaleikhúsráðið sína fjórðu leiklistarhátíð, og nú í Þórshöfn í Færeyjum. Til hátíðarinnar er boðið leiksýningum frá Danmörku, Íslandi, Lettlandi, Litháen, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Eistlandi og Færeyjum. Umsóknarfrestur er til 15. mars. Þetta verða fjórir heilir dagar, fullir af leiksýningum, leiksmiðjum, umræðum og skoðunarferðum. Reiknað er með að þátttakendur mæti fimmtudaginn 3. og fari heim þriðjudaginn 8. Stjórn Bandalags íslenskra leikfélaga er ábyrg fyrir vali á íslensku sýningunni en umsækjendur þurfa að vera aðilar að Bandalaginu. Sýningarlengd má að hámarki vera 90 mín. Beðið er um sjónrænar sýningar. Hátíðin greiðir uppihald á hátíðinni fyrir 10 manns frá hverju landi (fullt fæði, gistingu, leikhúsmiða, leiksmiðjur og skoðunarferðir). Ekki er komið verð á uppihaldi fyrir aðra ef leikhópar eru fjölmennari. Fargjöld til og frá Færeyjum þurfa leikhóparnir að borga sjálfir, einnig þurfa þeir að hafa allar sínar tryggingar í lagi. NAR veitir styrki til ferðarinnar. Nóg er til að byrja með að sækja um í tölvupósti á netfangið info@leiklist.is. Umsækjendur skulu vera viðbúnir því að þurfa að senda inn upptöku af sýningunum. Í fyrstu umsókn þarf eftirtalið að koma fram: Nafn leikfélags Nafn tengiliðs Sími hans og netfang Nafn leiksýningar Höfundur, þýðandi og leikstjóri Sýningarlengd án hlés Fjöldi þátttakenda í sýningunni Tilkynnt verður um val á sýningu þann 1. apríl 2006. Aðstandendur sýningarinnar sem verður fyrir valinu þurfa að skila inn öllum viðbótargögnum fyrir...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 9:00 — 13:00, Saturday - Sunday: Closed

Vörur