Author: lensherra

Frú Norma frumsýnir

  Atvinnuleikhópurinn Frú Norma hefur verið stofnaður á Austurlandi. Stofnendur eru þau Halldóra Malin Pétursdóttir, leikkona, Stefán Benedikt Vilhelmsson, leiklistarnemi og Guðjón Sigvaldason, leikstjóri. Auk þeirra starfa með hópnum þau Kristrún Jónsdóttir, búningahönnuður, Ríkharður Hjartar Magnússon, leikmyndasmiður, Bergvin Snær Andrésson, ljósamaður, Árni Geir Lárusson, tónlistarmaður og Kristín Nanna Vilhelmsdóttir sem aðstoðar við handritsgerð. Fyrsta sýning hópsins verður  sýningin "Nátthrafnar" sem er tilraunaverkefni. Verkið er afrakstur 16 daga þróunarvinnu   og er stefnt að því að verkið verði þróað áfram og sýnt í fullri lengd sumarið 2007 á Egilssstöðum. Frú Norma er eini starfandi atvinnuleikhópurinn á Austurlandi og einn af...

Read More

Síðustu sýningar á Máfnum

Leikfélagið Sýnir sýnir leikritið Máfinn eftir Anton Tjekhof. Leikstjóri er Guðjón Þorsteinn Pálmarsson, Denni, en hann leikstýrði einnig uppsetningu leikfélagins á Stútungasögu í Heiðmörk fyrir tveimur árum. Sýningum fer að ljúka, en aðeins eru eftir tvær sýningar, fimmtudagurinn 10. ágúst klukkan 19:00 í Elliðaárdal laugardagurinn 12. ágúst klukkan 17:00 á Dalvík – Fiskideginum mikla, sýnt í Hánefsstaðareit í Svarfaðardal Leikhópurinn hefur æft síðan 20. júní og hefur nálgast leikritið sem hæfilega blöndu af tragedíu og kómík í leit sinni að kjarnanum en hann snýst meðal annars um hvað það er sterkt í mannskepnunni að halda að grasið sé alltaf grænna hinu megin. Í helstu hlutverkum eru Júlía Hannam sem Arkadína, Halldór Magnússon sem Trígorín, Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson sem Tréplev, Aldís G. Davíðsdóttir sem Nína og Rúnar Lund sem Sorin. Aðrir leikarar eru Gísli Björn Heimisson, Sigsteinn Sigurbergsson, Anna Bergljót Thorarensen, Dýrleif Jónsdóttir, Ármann Guðmundsson, Arnar Ingvarsson, Hörður Skúli Daníelsson og Ásta Gísladóttir. Um tónlistina í sýningunni sér blokkflautukvartett undir stjórn Snæbjarnar Ragnarssonar, Bibba, en hefur m.a. samið tónlist fyrir Hugleik, Leikfélag Kópavogs og Leikfélag Hafnarfjarðar við góðan orðstír. Um búninga sér Kristín Gísladóttir. Leikritið er sýnt í stóra rjóðrinu í hólmanum en farið er göngustíginn frá Rafveituheimilinu, yfir bogabrúna og er þá komið að rjóðrinu. Áhorfendur eru hvattir til þess að taka með sér púða og/eða teppi og gott er að taka ferðastól með ef fólk getur ekki setið...

Read More

Úti bíður andlit á glugga

Um þessar mundir er verið að sýna einleikinn Úti bíður andlit á glugga í gamla pósthúsinu á Borgarfirði Eystra. Höfundur, leikari og leikstjóri er Halldóra Pétursdóttir. Sesselja Traustadóttir var á staðnum og hér kemur umfjöllun hennar um sýninguna: Laugardaginn 28. júlí var gríðarlega mikið um að vera á Borgarfirði eystra. Veðrið lék við heimamenn og gestir flykktust til bæjarins. Aldrei hefur annar eins fjöldi komið saman á tjaldstæðinu og við flesta bæi og í görðum heimamanna voru misstórar tjaldbúðir. Alls staðar var fólk og einstök stemmning myndaðist. Stórtónleikar söngkonunnar Emiliönu Torrini og Belle & Sebastian voru haldnir í Bræðslunni....

Read More

Artfart sviðslistahátíð

Artfart – sviðslistahátíð fer fram dagana 10. – 20. ágúst næstkomandi. Hátíðin er tilraunavettvangur ungs listafólk með það að markmiði að stuðla að nýsköpun og framúrstefnu í íslenskri sviðlist. Að hátíðinni standa 8 hópar sem allir hafa það sameiginlegt að spyrja spurninga um tilgang og markmið sviðslista á Íslandi og tenginngu þeirra við aðrar listir og fræðigreinar, s.s. myndlist og menningarfræði. Þáttakendur eru nær allir listnemar. Boðið verður upp á átta verk á hátíðinn og er óhætt að segja að efniviður sýninganna sé mjög fjölbreyttur. Til að mynda er aðeins eitt verk sem er ekki unnið frá grunni af hópnum og má auðveldlega líta á sumar sýninganna sem lifandi innsetningar. Hér er því um að ræða tilraunir í leiklist og danslist sem lögnu eru orðnar tímabundar og nauðsynlegar fyrir framþróun sviðslista á Íslandi. Miðaverði er haldið í lágmarki og kostar 500 kr. inn á hverja sýningu og hægt er að kaupa passa á allar sýningarnar á 2500 kr. Miðsölusími er 824 8870 (Athuga ber að sérstakt verð er á sýninguna Penetreitor). Hér fyrir neðan má sjá dagskrá yfir atburði hátíðarinnar. Allar sýningar fara fram í gamla Ó. Johnsen og Kabber húsinu við Sæbraut. Fimmtudagur 10. ágúst: Hópur: Íslenska hreyfiþróunarsamsteypan – Sýning: Meyjarheftið, kl 20:00 FRUMSÝNING Hópur: Saga – Sýning: Billy Boy, kl. 21:30 FRUMSÝNING Hópur: Vér Morðingjar – Sýning: Penetreitor (ATH: sýnt í Grandagörðum 8, miðaverð 2000 og ágóði...

Read More

Memento mori á leiklistarhátíð NEATA

Leikhópur frá Hugleik og Leikfélagi Kópavogs er nú staddur í Færeyjum á leiklistarhátíð NEATA (Norður-Evrópska áhugaleiklistarsambandsins) með sýninguna Memento mori eftir Hrefnu Friðriksdóttur, í leikstjórn Ágústu Skúladóttur.Hópurinn heldur dagbók um ferðina sem lesa má á vefjum félaganna á kopleik.is og hugleikur.is. Leikhópur frá Hugleik og Leikfélagi Kópavogs er nú staddur í Færeyjum á leiklistarhátíð NEATA (Norður-Evrópska áhugaleiklistarsambandsins) með sýninguna Memento mori eftir Hrefnu Friðriksdóttur, í leikstjórn Ágústu Skúladóttur.Ásamt leikhópnum eru Guðrún Halla Jónsdóttir formaður Bandalagsins og Vilborg Valgarðsdóttir framkvæmdastjóri þess staddar í Þórshöfn og sitja fund stjórnar NEATA. Auk þess fylgdi fríður hópur íslenskra áhugaleikara leikhópnum til þess að...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert