Author: lensherra

Nú skyldi ég hlæja, væri ég ekki dauður! frumsýnt

Fimmtudagskvöldið 4. maí verður ný barnasýning, Nú skyldi ég hlæja, væri ég ekki dauður!, frumsýnd á Litla sviði Þjóðleikhússins að Lindargötu 7. Sýningin er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og Nemendaleikhúss LHÍ. Verkið er unnið í samvinnu Völu Þórsdóttur, leikstjórans Ágústu Skúladóttur og leikhóps. Fimmtudagskvöld verður ný barnasýning, Nú skyldi ég hlæja, væri ég ekki dauður!, frumsýnd á Litla sviði Þjóðleikhússins að Lindargötu 7. Sýningin er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og Nemendaleikhúss LHÍ. Verkið er byggt á fjölmörgum þekktum og minna þekktum íslenskum þjóðsögum þar sem mætast tröll, draugar, huldufólk og þorparar. Sumar þeirra eru bráðfyndnar, aðrar draumkenndar og sumar hverjar eilítið skelfilegar. Áhorfendur...

Read More

Stuttverkahátíðin Margt smátt í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 5. maí kl. 19:00 verður stuttverkahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga, Margt smátt, haldin á Litla sviði Borgaleikhússins. Þar sýna átta aðildarfélög Bandalagsins 13 stuttverk sem vel flest eru samin af leikskáldum innan raða þess. Föstudaginn 5. maí kl. 19:00 verður stuttverkahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga, Margt smátt, haldin á Litla sviði Borgaleikhússins. Þar sýna átta aðildarfélög Bandalagsins 13 stuttverk sem vel flest eru samin af leikskáldum innan raða þess. Þetta er í þriðja sinn sem Margt smátt er haldin í samvinnu við Borgarleikhúsið en hún sýnir þá grósku sem er í íslensku áhugaleikhúshreyfingunni í ritun styttri leikverka en mörg félög...

Read More

Aukasýningar á Hungri

Aukasýningar verða á Hungri eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Bachmann sem leikhópurinn Fimbulvetur sýnir í samstarfi við Borgarleikhúsið. Tvær stúlkur með anorexíu ákveða að fara í hættulegan leik, og offitusjúklingur með brotna sjálfsmynd finnur sér loks maka sem dýrkar hvern einasta blett á henni.Hungur er sálfræðitryllir um stjórnun, ást, kynlíf, fegurð og leit að fullkomnun. Sýningarnar eru sem hér segir: Fimmtud. 4. maí, sunnud. 7. maí og sunnud. 14. maí kl. 20:00.Nánari upplýsingar má fá á...

Read More

Áhugaleiksýning ársins

Nú nálgast óðum eitt dramatískasta augnablik leikársins hjá áhugaleikfélögunum. Um næstu helgi verður tilkynnt um val Þjóðleikhússins á áhugaleiksýningu ársins. Að venju verður þetta gert á hátíðarkvöldverði Bandalagsþings, sem að þessu sinni verður í Félagsheimili Seltjarnarness laugardagskvöldið 6. maí nk. Árlega verða miklar umræður um hver muni hreppa hnossið, m.a. á spjallþráðum Leiklistarvefsins. Til þess að gera þá umræðu skemmtilegri og líflegri hefur verið ákveðið að birta lista yfir þau félög sem taka þátt í keppninni að þessu sinni. Þau eru tólf talsins: Freyvangsleikhúsið með Kardimommubæinn Halaleikhópurinn með Pókók Hugleikur með Jólaævintýri Hugleiks Hugleikur með Systur   Leikdeild U.M.F: Biskupstungna með Blessað barnalán Leikfélag Hafnarfjarðar með Hodja frá Pjort Leikfélag Keflavíkur með Trainspotting Leikfélag Kópavogs með ALF – Andspyrnuhreyfing ljóta fólksins Leikfélag Keflavíkur í samstarfi við Vox Arena með Keflavík, Ísland, Alheimurinn eða mamma þín Leikfélag Selfoss með Þuríður og Kambsránið Skagaleikflokkurinn með Hlutskipti Stúdentaleikhúsið með Anímanína Hver skyldi nú fá að sýna í Þjóðleikhúsinu? Hvað heldur...

Read More

Fjórar frumsýningar á einum degi í Borgarleikhúsinu

Sunnudaginn 30. apríl, verða frumsýndar hvorki fleiri né færri en fjórar sýningar í Borgarleikhúsinu. Þessar sýningar hafa reyndar allar verið sýndar við miklar vinsældir á öðrum vettvangi en þetta eru Fullkomið brúðkaup, Mike Attack, Tenórinn og Typpatal. Sýningar þessar eru hluti af Hláturhátíðinni sem standa mun yfir allan maí og mun Borgarleikhúsið verða iðandi af lífi þar sem sýnt er á öllum sviðum og skúmaskotum hússins. Sunnudaginn 30. apríl, verða frumsýndar hvorki fleiri né færri en fjórar sýningar í Borgarleikhúsinu. Þessar sýningar hafa reyndar allar verið sýndar við miklar vinsældir á öðrum vettvangi en þetta eru Fullkomið brúðkaup, Mike...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 9:00 — 13:00, Saturday - Sunday: Closed

Vörur