Sartre á Menningarnótt
Taktu frá laugardagskvöldið 19. ágúst næstkomandi. Þér er hér með boðið á leiksýningu í Tjarnarbíói klukkan 19:00 á Menningarnótt. Heimspeki- og menningarfélag Menntaskólans á Akureyri (HOMMA) og Leikklúbburinn Saga setja á svið leikritið Fyrir luktum dyrum eftir Jean-Paul Sartre. Verkið er í þýðingu Ásgeirs Berg Matthíassonar, sem einhverjir kunna að þekkja sem fyrirliða Gettu betur liðs MA. Skúli Gautason leikstýrir. Fyrir luktum dyrum er eitt af þekktari bókmenntaverkum 20. aldarinnar og heitir á frummálinu Huis-clos en No Exit í enskri þýðingu. Það fjallar í stórum dráttum um þrjár manneskjur sem deyja og dæmast til helvítisvistar. Þegar þangað er komið...
Read More


