Author: lensherra

Purpuri

Leikhópurinn Jelena er nýr leikhópur sem setti upp verkið Purpuri eftir Jon Fosse í ágúst síðastliðnum. Varð hópurinn því á undan nokkrum öðrum hérlendis að setja upp verk eftir spúttnikkleikskáldið Fosse, sem ku vera einna mest leikinn allra Norðurlenskra skálda þessi árin. Nú stendur til að sýna fjórar sýningar á þessu verki í tengslum við Fosse-hátíð sem stendur yfir í Þjóðleikhúsinu um helgina. Útsendari Leiklistarvefjarins mætti á þá fyrstu. Leikhópruinn Jelena Purpuri Höfundur: Jon Fosse Leikstjóri: Friðrik Friðriksson Sýnt í verinu, Loftkastalanum Ég verð að byrja á að hrósa leikhópnum fyrir framtakið. Þarna eru á ferð nokkrir krakkar sem...

Read More

Aukasýning á Systrum

Allra síðasta tækifæri til að sjá hina margverðlaunuðu sýningu Hugleiks, Systur, gefst í Möguleikhúsinu föstudagskvöldið 27. október nk. Þetta er aukasýning og enn er hægt að fá miða. Þá gildir hið vinsæla "systratilboð" ennþá, en samkvæmt því greiða systrahópar aðeins fyrir einn miða óháð fjölda systranna. Miðapantanir eru á www.hugleikur.is eða í síma 551...

Read More

Dogmatísk Sólarferð í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 28.október mun Dogmaleikhópur Borgarleikhússins opna dyrnar fyrir almenningi. Síðastliðnar fjórar vikur hefur leikhópurinn verið að skoða hlutverk leikarans í vinnunni með leikverkið. Vettvangur rannsóknarinnar hefur verið Sólarferð eftir Guðmund Steinsson.  Leikararnir hafa kastað á milli sín hugmyndum að úrlausnum og leikaðferðum, án tilkomu leikstjóra eða útlitshönnuða. Þeir hafa velt fyrir sér ábyrgð leikarans í vinnuferlinu og prófað mismunandi vinnaðferðir og er ætlunin að leyfa öllu leikhúsáhugafólki að sjá útkomuna. Áhorfandinn er órjúfanlegur hluti af leikhúsinu og því ekki hægt að gera rannsókn með leiklistarformið án þess að taka áhorfendur inn í það ferli. Dogma er röð af styttri...

Read More

Purpuri á Fosse-hátíð

Leikhópurinn Jelena tekur aftur upp sýningar í tengslum við Jon Fossehátíð Þjóðleikhússins á leikritinu Purpuri. Leikritið fjallar um hóp af ungum strákum sem hafa stofnað hljómsveit sem er enn heldur stefnulaus. Ung stúlka bætist í hóp þeirra og myndast spenna milli hljómsveitarmeðlima og hennar. Hvernig er að vera ungur og eiga í erfiðleikum með að tjá eigin tilfinningar? Leikritið fékk mikið lof gagnrýnenda og er jafnframt fyrsta verk Jons Fosse sem sett hefur verið upp á Íslandi. Sýningar eru kl. 21.00 í Verinu, Loftkastalanum 26. – 29. október. Einungis þessar fjórar...

Read More

Stórfengleg!

Föstudaginn  27. október frumsýnir Þjóðleikhúsið leikritið Stórfengleg! eftir Peter Quilter í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Stórfengleg! er glænýr gamanleikur um Florence Foster Jenkins, “verstu söngkonu allra tíma”. Jenkins varð víðfræg fyrir hljómplötur sínar og tónleika sem hún hélt í New York á 4. og 5. áratugnum. Hún þótti heillandi persónuleiki, var gædd óbilandi sjálfstrausti, en hafði þann galla einan sem söngkona að hún hélt ekki lagi. Aðdáendahópur Florence stækkaði þó ört og hápunkturinn á ferlinum var tónleikar fyrir fullu húsi í Carnegie Hall. Stórfengleg! er grátbroslegur gamanleikur, sem getur í senn knúið áhorfendur til óvæginnar sjálfsskoðunar, og látið þá veltast...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert