Author: lensherra

Frá Leikfélagi Vestmannaeyja

Þann 28. október var frumsýnt hjá Leikfélagi Vestmannaeyja verkið „Móglí“ eftir Illuga Jökulsson í leikstjórn hins frábæra leikstjóra Jóns Stefáns Kristjánssonar. Er verkið skipað 18 leikurum á aldrinum 7–22 ára og er ótrúlegt að sjá hvað þessir krakkkar geta. Verkið er mjög skemmtilegt og var lögð mikil vinna í búningana sem saumakonur Leikfélags Vestmannaeyja, þær Lilja Þorsteinsdóttir og Katrín Sjöfn Sigurbjörnsdóttir sáu um að hanna og sauma. Sama er með sviðið sem leikstjóri ásamt Óskar Pétri Friðriksyni yfirsmið sáu um að hanna og smíða. Einnig hjálpuðu stjórnarmeðlimir og velunnarar Leikfélagsins til að gera sviðið sem líkast skógi. Leikararnir sáu um að búa sér til grímur og er ótrúlegt að sjá hvað það heppnaðist vel.   Sýnt verður um næstu helgar, en stefnt er á að sýna 8–10 sinnum, og hvetjum við alla til að leggja leið sína til Vestmannaeyja og sjá þetta skemmtilega verk Leikfélags Vestmannaeyja.   Miðasala er í síma...

Read More

Stuttverk 2006 – Úrslit tilkynnt í dag

Atkvæðagreiðslu í Stuttverkasamkeppni Leiklistarvefsins 2006 er lokið. 15 stuttverk voru í valinu og völdu lesendur þau 3 bestu. Úrslit verða tilkynnt og verðlaun afhent kl. 16.00 í dag, föstudaginn 10. nóvember á skrifstofu Bandalags íslenskra leikfélaga, Laugavegi 96. Einnig verða verkin sem lenda í efstu sætunum þremur leiklesin. Allir velkomnir. Eftirfarandi 15 stuttverk voru í Stuttverkasamkeppni 2006. Verkin eru í PDF-formati. Smelltu á tengil að verki til að hlaða niður eða lesa í vafra. Andarúð Bræður í trúnni Daginn eftir Einu sinni sem oftar Friends Fyndnasti maður í heimi Hamingjuvandamál Hamur Kaffi og með þvi Mamma 70 ára Norðurljós...

Read More

Stuttverkasamkeppni 2006

Eftirfarandi 15 stuttverk voru valin af forvalsnefnd fyrir Stuttverkasamkeppni 2006. Nú er komið að lesendum að velja þau bestu. Veldu 3 verk, hvorki fleiri né færri. Stuttverkin eru hér í PDF-formi. ATH! Ef valin eru fleiri eða færri en 3 verk teljast ÖLL þau atkvæði ógild! Borið hefur á því að ekki sé farið eftir þessu. Hér með er ítrekað að ef atkvæði eru greidd FLEIRI eða FÆRRI en 3 verkum, falla þau atkvæði öll niður og teljast ekki með í lokaniðurstöðum! Atkvæðagreiðslu lýkur á miðnætti 8. nóvember og úrslit verða tilkynnt föstudaginn 10. nóvember. Hægt er að kjósa...

Read More

Frá Leikfélagi Hörgdæla

Aðalfundur leikfélagsins var haldinn mánudagskvöldið 16. október 2006.Í stjórn félagsins eru: Stefanía Elísabet Hallbjörnsdóttir, formaður, Kristín Haraldsdóttir varaformaður, Ásgeir Már Hauksson gjaldkeri, Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir ritari og Bernharð Arnarson meðstjórnandi.Á fundinum var samþykkt að Arnsteinn Stefánsson, Stóra-Dunhaga, yrði heiðursfélagi leikfélagsins.Nú í haust mun Leikfélagið setja upp dagskrá um Kristján frá Djúpalæk (Dreifar af dagsláttu) í umsjón Sunnu Borg, stefnt er að sýningum 18. og 19. nóvember.Eftir áramótin hefjast svo æfingar á mögnuðu leikverki á Melum. Sýningar á því hefjast væntanlega í...

Read More

Danny and the deep blue sea

Austurbær er að hefja sýningar á leikritinu Danny and the deep blue sea eftir John Patrick Shanley í leikstjórn Jóns Gunnars Þórðarsonar. Verkið verður sýnt í nýuppgerðu “black-box”  rými á efri hæðinni, í Silfurtunglinu. Brit Pop leikrit, beint frá Bretlandi, beint í æð. Leikendur eru bresku hjónin Nicolette Morrison og Matthew Hugget. Leikið er á ensku. Danny var sýnt í Etcetera Theatre í Camden í London við feikigóðar undirtektir. Þetta er saga Danny og Robertu, tveggja einmana sála sem hittast á bar og hefja samræður. Saga fólks sem varð utanveltu í samfélaginu, “lágstéttar pakk”, eða “white trash”, Þetta er saga þriggja kynslóða sem þurfa að lifa við bágar aðstæður og fjallar leikritið um börn, uppeldi, drykkju, mistnotkun og ást. Þetta er ofbeldisfull, hröð og hættuleg ástarsaga.. Þetta er saga fólks sem mann grunar ekki að geti elskað en elskar svo heitt vegna þess að það hefur farið á mis við foreldraást, væntumþykju og hlýju í lífinu.Heimurinn sem verkið gerist í er sá sami og leikararnir ólust upp í, þetta er heimur lágstéttarinnar. Leikritið fæðist mikið með leikurunum sjálfum, þeim Nicolette og Matthew en þau  urðu ástfangin og giftu sig innan mánaðar frá fyrstu kynnum og samband þeirra er að mörgu leiti svipað og í Danny and the deep blue sea.Jón Gunnar var að útskrifast sem leikstjóri frá Drama Centre London þegar Nicolette bað hann um að leikstýra sér og...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert