Author: lensherra

Nýtt verk frumsýnt í Borgarleikhúsinu

Um síðustu helgi var frumsýnt í Borgarleikhúsinu leikritið Eilíf hamingja eftir Andra Snæ Magnason og Þorleif Örn Arnarson. Uppsetningin er samstarfsverkefni Hins Lifandi Leikhúss og Borgarleikhússins og er sýnt á litla sviðinu. Leikstjóri er Þorleifur Arnarson. Eilíf Hamingja er verk um millistjórnendastéttina, hina nýju íslensku alþýðu. Eilíf hamingja er fyrsta íslenska millistjórnendadramað. Það segir frá fjórum einstaklingum, 3 körlum og konu, sem vinna saman í markaðsdeild stórfyrirtækis á Íslandi. ímynd fyrirtækisins hrundi er eigandi þess skildi við eiginkonuna og nú þarf markaðsdeildin að redda nýrri ímynd. Þau leita svífast einskis í leit sinni enda er um meira að ræða...

Read More

Draugadans

Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð sviðsetur Djáknann á Myrká og Miklubæjar Sólveigu auk fjölda annara sagna, sögurnar fléttast saman og bakkabræðurnir Gísli, Eiríkur og Helgi létta á atburðarrásinni með sínum hætti. Þessar sögur eru á við mjög góða spennumynd. Með nútíma sviðstækni lifna þær við með ljósum, tónlist og litum. Sýningin er full af fallegum textum eftir Davíð Stefánsson, Stein Steinarr og önnur þjóðskáld auk texta eftir hópinn. Leikritið reynir á líkamlega færni, þetta er sannkallaður draugadans. Síðustu 3 mánuði hafa nemendur MH verið að vinna að þessu verkefni og frá 18.desember hafa allir nemendurnir æft stíft 7 tíma á dag (frí á aðfangadag, jóladag og gamlaársdag).   Tónlistin í sýningunni er útfærð af Helga Rafni og má þar heyra lög á borð við Móðir mín í kví kví, Garún, Sofðu unga ástin mín og svo nýja tónlist eftir Helga. Þátttakendur eru yfir 50 frá MH, leikarar, kór og hljómsveit. Leikgerð og leikstjórn: Jón Gunnar Þórðarson Tónlist: Helgi Rafn Ingvason Sögurnar sem unnið er með: Miklubæjar-Sólveig, Djákninn á Myrká, Móðir mín í kví kví, Fjalla-Eyvindur, Parthúsa Jón, Draugshúfan og Bakkabræður. Ef farið er á internetið og „googlað“ orðunum „Ghost stories“ kemur fyrsti valmöguleikinn: „Icelandic ghost stories“. Hvergi í heiminum virðast vera eins margar draugasögur og á Íslandi. Þær lifa með íslensku þjóðinni og flytjast frá kynslóð til kynslóðar. Af hverju eru Íslendingar svona mikið fyrir draugasögur? Draugasögur væru ekki til...

Read More

Hvað á nýtt dansleikhús LR og Íd að heita?

Dansleikhússamkeppni LR og ÍD verður haldin í fimmta sinn nú í júní. Dansleikhús er nýtt og vaxandi listform en  tilgangur keppni af þessu tagi er að  styðja undir þetta form, kanna möguleika þess og veita listamönnum tækifæri til að kynnast greininni betur. Mikill áhugi er á dansleikhúsi meðal listamanna þvert á listgreinarnar en umsækjendur hafa verið úr myndlist, tónlist, dansi og leiklist. Síðastliðið ár bárust rúmlega þrjátíu hugmyndir í keppnina. Keppnin hefur verið geysi vinsæl meðal fagfólks en ekki síst hjá áhorfendum og erfitt getur verið að næla sér í miða á þennan skemmtilega viðburð, sem ár eftir ár...

Read More

Stórgóð sýning á Selfossi

Undirrituð fór að sjá frumsýningu á Hnerranum á Selfossi um helgina. Hvar á maður eiginlega að byrja? Ætli sé ekki bara best að byrja á byrjuninni. Anton Tsjekoff er ljómandi leikskáld. En hefur orð á sér, eins og fram kemur í leikskrá, fyrir að vera þunglamalegur og langdreginn í verkum sínum. Þó svo að hann hafi viljað meina að mörg verka sinna væru hugsuð sem gamanleikir. Það er hins vegar ekki vandamál sem Michael Frayn hefur átt við að stríða. Hann er þekktastur fyrir hroðalega fyndna farsa. Í verkinu Hnerrinn leikgerir sá síðarnefndi nokkrar sögur eftir þann fyrrnefnda ásamt...

Read More

Frumsýning í Austubæ

Verkið “50 ways to leave your lover” verður frumsýnt í Silfurtunglinu í Austurbæ 26. janúar. Þetta er einleikur sem fjallar um uppgjör ungs manns á átakanlegum atburði í lífi hans, ástinni sem hann kynntist og einverunni sem hann upplifir eftir á. Sagan er sögð á tveimur skeiðum í lífi hans, annarsvegar fyrir dauða hans og hinsvegar eftir.   Ungi maðurinn reynir að skilja atburðinn sem átti sér stað á sama tíma og hann veltir fyrir sér örlögum manneskjunnar sem hann varð ástfanginn af. Verkið varpar fram spurningum um hvað verður um manneskjuna þegar hún upplifir mikla einsemd og óréttlæti...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert