Úrslit í örleikritakeppni ráðast í kvöld
Það er ekki oft sem verk eftir leikskáld allt niður í 17 ára aldur rata á svið Þjóðleikhússins. Árleg örleikritasamkeppni fræðsludeildar hússins og leiklistardeildar LHÍ gerir það þó mögulegt. Samkeppnin er opin framhaldsskólanemum um land allt og fer úrslitakvöldið 2007 fram í kvöld, þriðjudag kl. 20.00 á Stóra sviðinu og er aðgangur ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Af innsendum verkum í ár hafa sex verið valin til þess að keppa til úrslita. Verða þau leikin af leiklistarnemum á 1. og 2. ári í LHÍ. Hinn gamalreyndi leikstjóri Þórhallur Sigurðsson leiðbeinir við uppsetningu leikþáttanna, auk þess sem...
Read More


