Síðustu sýningar á Bingó!
Síðustu vikurnar hafa Hugleikur og Leikfélag Kópavogs sýnt leikritið Bingó eftir Hrefnu Friðriksdóttur í Hjáleigunni í Félagsheimili Kópavogs. Nú standa þar fyrir dyrum stórframkvæmdir, sem fela meðal annars í sér að Hjáleigan verður rifin. Ljóst er að það þarf að aflýsa nokkrum áður auglýstum sýningum á Bingó. Sýningar falla niður frá og með 3. maí. Mánudaginn 30. apríl verður sýnt eins og áður hefur verið auglýst. Þriðjudaginn 1. maí og miðvikudaginn 2. maí verða svo aukasýningar. Athugið: aðeins verður sýnt þessi þrjú kvöld! Lokasýning er 2. maí. Miðapantanir eru á hugleikur.is og í síma 823...
Read More


