Gísli Súrsson til Albaníu
Kómedíuleikhúsinu á Ísafirði hefur verið boðið á einleikjahátíðina Albamono í Albaníu með leikinnn Gísli Súrsson. Um er að ræða alþjóðlega leiklistarhátíð sem fer fram dagana 21. – 25. maí næstkomandi. Albamono er haldin í Korce í Albaníu og er þetta í annað sinn sem hátíðin er haldin og verður Gísli Súrsson sýndur á íslensku. Þetta er í þriðja sinn sem Kómedíuleikhúsið sýnir Gísla Súrsson erlendis. Haustið 2006 var leikurinn sýndur á leiklistarhátíðinni Integra í Hannover þar sem Gísli vann til verðlauna. Fyrir skömmu var Gísli síðan á ferðinni í Lúxembúrg þar sem hann var bæði leikinn á ensku og...
Read More


