Halaleikhópurinn æfir Gaukshreiðrið
Æfingar eru hafnar hjá Halaleikhópnum í Hátúni 12, á leikritinu Gaukshreiðrinu, eftir Dale Wasserman byggt á skáldsögu Ken Kesey (1962) í þýðingu Sonju B. Jónsdóttur. Leikstjóri er Guðjón Sigvaldason. Leikritið endurspeglar þann uppreisnaranda sem ríkti í vestrænum heimi á seinni helmingi sjöunda áratugar síðustu aldar. Það gerist á ríkisreknu geðsjúkrahúsi þar sem einn vistmaður æsir sjúklinga á stofnuninni með sér í uppreisn gegn því sem hann telur vera miskunnarlaust harðstjórnarkerfi. Kerfið bregst ókvæða við og ekkert er látið ógert til að brjóta uppreisnina á bak aftur. Það fjallar um eðli geðveikrahæla, stöðu sjúklinganna innan þeirra eins og litið var...
Read More


