Hauststarf komið á fullt hjá áhugaleikfélögunum
Nú er hauststarfið komið á fullt hjá mörgum aðildarfélögum Bandalagsins. Leiklistavefurinn forvitnaðist aðeins um hvað er í pípunum og í ljós kom að eins og við var að búast kennir þar ýmissa grasa, íslensk og erlend klassík í bland við nýrri verk, gaman, alvara, söngur og allt þar á milli. Það er því bara útlit fyrir viðburðarríkan og skemmtilegan leiklistarvetur um allt land… Leikfélag Húsavíkur æfir nú Emil í Kattholti eftir Astrid Lindgren í leikstjórn Sigrúnar Valbergsdóttur. Frumsýning verður 8. nóvember. Á myndinni sem hér til hliðar má sjá þau Patrek og Ragnheiði Diljá sem fara með hlutverk Emils...
Read More


