Author: lensherra

Metnaðarfullt gaman á Seltjarnarnesi

Jóhanna Ástvaldsdóttir og Grétar Guðni Guðmundsson eru bæði stofnfélagar í Leiklistarfélagi Seltjarnarness sem hefur verið starfrækt frá árinu 1998. Þau ásamt öðrum meðlimum leiklistarfélagsins vinna nú að uppsetningu verksins Margt býr í þokunni eftir William Dinner og William Morum í þýðngu Ásgerðar Ingimarsdóttur. Verkið, sem er í leikstjórn Bjarna Ingvarssonar, verður frumsýnt 19. apríl í félagsheimili Seltjarnarness og er því mikið um að vera hjá þeim félögum á lokasprettinum enda mikill metnaður að baki sýningarinnar. Um tilurð leiklistarfélagsins segja þau Sigríði Þorvaldsdóttur leikkonu hafa verið hvatakonu að stofnun félagsins fyrir rúmum áratug en þá hafði ekki verið starfrækt leikfélag...

Read More

Margt smátt – Frestur til að tilkynna þátttöku

Nú líður að 5. Margt smátt stuttverkahátíðinni okkar í Borgarleikhúsinu. Hátíðin verður haldin laugardaginn 23. maí næstkomandi og verður hún með sama sniði og síðast, í október 2007, en mál manna var að sú hátíð hefði verið sérstaklega vel heppnuð. Frestur til þess að tilkynna um þátttöku á hátíðinni er til föstudagsins 1. maí. Senda skal Bandalaginu umsókn á eyðublaði sem hægt verður að nálgast hér á leiklist.is eftir páska. Hátíðin sjálf verður frá klukkan 14.00 -18.00 í Borgarleikhúsinu. Um kvöldið verður leigður salur úti í bæ til að halda samkvæmi þar sem afrekum dagsins verður fagnað, léttir réttir...

Read More

Magnús Magnússon skellti sér á Töðugjaldaball

Félagar í Ungmennafélagi Reykdæla láta hreint ekki deigan síga í leiklistinni þrátt fyrir að síðastliðinn vetur hafi verið ráðist í umfangsmikla sýningu þegar Þið munið hann Jörund var fært upp á aldar afmælinu. Verkefni þessa vetrar er um margt frábrugðið hefðbundnum leiksýningum. Afraksturinn mátti síðan sjá síðastliðið föstudagskvöld þegar frumsýndur var í Logalandi nýr söng- og gleðileikur sem nefnist Töðugjaldaballið – Sendu mér SMS. Hér er á ferðinni splunkunýr söngleikur í fullri lengd eftir heimamenn. Verkið er samið í kringum 20 ný dægurlög sem Hafsteinn Þórisson á Brennistöðum samdi við texta Bjartmars Hannessonar á Norðurreykjum. Bjartmar semur auk þess...

Read More

Málþing Hugleiks „Áhugaleikhús og frumsköpun“

Sunnudaginn 19. apríl nk. stendur leikfélagið Hugleikur fyrir málþingi undir yfirskriftinni „Áhugaleikhús og frumsköpun“ á Rósenberg kl. 16.00 í tilefni af 25 ára starfsafmæli félagsins síðar í þessum mánuði. Hugleikur var stofnaður árið 1984 og hefur um árabil verið einn virkasti áhugaleikhópur landsins. Hann hefur þá sérstöðu meðal íslenskra leikfélaga að leikverkin eru öll saman af félagsmönnum. „Áhugaleikhús og frumsköpun“ málþing haldið sunnudaginn 19. apríl 2009 kl. 16.00 á Rósenberg í tilefni af 25 ára afmæli Hugleiks 1) Framsögur og almennar umræður kl. 16.00-17.30 Sigrún Valbergsdóttir, leikstjóri: „Eins og það gerist best“. Viðar Eggertsson, leikstjóri og leikhússtjóri Útvarpsleikhússins: „Það...

Read More

Peðið sýnir Hvers vegna hokra ef bræða má ál?

Leikfélagið Peðið á Grand Rokk frumsýnir söngleikinn Álperu á föstudaginn langa kl. 16.00. Höfundur verksins er Jón Benjamín Einarsson sem einnig leikstýrir verkinu ásamt Vilhjálmi Hjálmarssyni. Tónlist er samin af þeím Björgúlfi Egilssyni og Kormáki Bragasyni sem jafnframt sjá um tónlistarflutning ásamt Hallgrími Guðsteinssyni, Jóakim Karlssyni, Lísu Pálsdóttur og Tómasi M. Tómassyni. Í Álperu er sjónum beint að landsbyggðinni þar sem takast á virkjunarsinnar og náttúruverndarsinnar. Við kynnumst Bárði bónda á Dal sem er eigandi landsvæðis sem Landsvirkjun hefur augastað á og við sögu koma skrautlegir, úrkynjaðir sveitavargar, fulltrúar iðnaðarráðuneytis og sjálfur forstjóri Landsvirkjunar. Aðrar sýningar verða á páskadag...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert