Rúi og Stúi snúa aftur í Kópavogi
Leiksýningin Rúi og Stúi sem frumsýnd var hjá Leikfélagi Kópavogs síðastliðið vor verður tekin upp að nýju nú um helgina. Áætlaðar eru níu sýningar fyrsta kastið. Nýmæli er að kynning og sala sýningarinnar er í samstarfi við Kópavogsdeild Rauða krossins. Þriðjungur af miðaverði mun renna til Barna- og ungmennastarfs Rauða krossins. Á móti mun Kópavogsdeildin nýta tengsla- og sjálboðaliðanet sitt til að kynna sýninguna. Rúi og Stúi fjallar sérkennilega uppfinningamenn sem hafa fundið upp vél sem getur búið til eða lagað hvað sem er. Bæjarbúar eru afar ánægðir með vélina eins og gefur að skilja en blikur eru á...
Read More


