Grímuhátíðin 2010
Uppskeruhátíð sviðslista, Grímuhátíð Leiklistarsambands Íslands, verður haldin í áttunda sinn miðvikudaginn 16. júní í Þjóðleikhúsinu. Tilnefningar voru kunngjörðar í Þjóðleikhúskjallaranum föstudaginn 4. júní sl. Verðlaunahátíðin, sem jafnframt er uppskeruhátíð sviðslistanna, var fyrst haldin árið 2003 og hefur Leiklistarsamband Íslands staðið fyrir hátíðinni árlega allar götur síðan. Aðildarfélög sambandsins eru leikhús, sviðslistahópar, fagfélög og stofnanir innan greinarinnar. Veitt verða verðlaun fyrir leikárið 2009-10 í alls sautján flokkum. Auk þess verða áhorfendaverðlaun veitt þeirri sýningu sem áhorfendum þótti bera af sem sýning ársins. Kosning stendur yfir á www.griman.is. Jafnframt verða heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands veitt þeim listamanni er skilað hefur framúrskarandi ævistarfi...
Read More


