Author: lensherra

Sveinn skotti á faraldsfæti

Kómedíuleikhúsið í samstarfi við Lýðveldisleikhúsið hefur að nýju sýningar á hinni svívirðilegu skemmtun og svörtu kómedíu Síðasti dagur Sveins skotta. Tvær sýningar verða í Edinborgarhúsinu, sú fyrri föstudaginn 21. janúar og einnig daginn eftir, báðar sýningarnar hefjast kl. 20. Á sunnudag 23. janúar verður leikurinn sýndur í Félagsheimilinu á Þingeyri kl. 20. Ekki er honum þar með lokið því næst skottast hann til höfuðborgarinnar. Sýnt verður í hinu nýuppgerða leikhúsi við tjörnina, Tjarnarbíói. Aðeins verða tvær sýningar þar, sú fyrri fimmtudaginn 27. janúar og hin föstudaginn 28. janúar. Hefjast sýningarnar kl. 20. Miðasala á þær sýningar er einnig hafin...

Read More

Fjögur leiklistarnámskeið í Hafnarfirði

Gaflaraleikhúsið og Leikfélag Hafnarfjarðar standa fyrir leiklistarnámskeiðum fyrir börn, unglinga og fullorðna í vetur. Leiðbeinendur verða þau Björk Jakobsdóttir, Gunnar B. Guðmundsson og Ágústa Skúladóttir. Námskeið fyrir 10 – 12 ára hefjast 20. janúar, fyrir 13 – 15 ára þann 24. janúar og 16 ára og eldri þann 19. janúar. Námskeið Ágústu hefst í mars. Námskeiðin fara fram í Gaflaraleikhúsinu, Strandgötu 50 í Hafnarfirði.   Leiklist fyrir lífið! / Lærum að leika Leiklistarnámskeið fyrir 10 – 12 ára (miðdeild grunnskóla , 5-7 bekkur) Leiðbeinandi er Björk jakobsdóttir sem hefur um árabil vakið athygli sem leikkona . leikstjóri og leikskáld....

Read More

Þrjár aukasýningar á Stútungasögu

Leikfélag Ölfuss sýnir nú allra síðustu sýningar á Stútungasögu. Um er að ræða 3 sýningar sem verða laugardaginn 8. janúar, föstudaginn 14. janúar og laugardaginn 15. janúar. Allar sýningar hefjast klukkan 20 og sýnt er í Versölum í Þorlákshöfn.  Leikstjóri er Ármann Guðmundsson. Miðasala er í síma 898-4368 (Gróa) og 845-7795 (Hulda) og einnig í apótekinu í Þorlákshöfn....

Read More

Jesús litli á Akureyri

Fyrsta leiksýningin sem við bjóðum upp á á nýju ári er Jesús litli, gestasýning frá Borgarleikhúsinu, sem var ótvíræður sigurvegari Grímunnar síðasta leikár. Jesús litli verður sýnd í Hofi frá og með 15. janúar og  aðeins í takmarkaðan tíma. Jesús litli var ótvíræður sigurvegari Íslensku leiklistarverðlaunanna, Grímunnar nú í vor. Jesús litli var valin sýning ársins og leikverkið sjálft var valið leikrit ársins auk þess sem sýningin hlaut sjö tilnefningar. Gagnrýnendur hlóðu sýninguna lofi og áhorfendur voru djúpt snortnir. Sumsé: Leikhús eins og það gerist best! Við erum stödd í Palestínu á því herrans ári núll. Rómverjar hafa sölsað...

Read More

Fyrsti samlestur á Staðgreitt við undirskrift!

Aðalverkefni Leikfélags Kópavogs þetta leikárið verður eldfjörugur farsi sem hlotið hefur vinnuheitið Staðgreitt við undirskrift (Cash on Delivery) og er eftir Michael Cooney, son „farsakóngsins“ Ray Cooney (Viltu vinna milljón, Með vífið í lúkunum, Nei, ráðherra) en Michael er af mörgum talinn arftaki hans. Í verkinu er eins og vænta á ferðinni misskilningur á misskilning ofan, neyðarlegar uppákomur eins og hver getur í sig látið og fjórar ef ekki fimm hurðir. Og raunar þvottavél! Við segjum ekki meir, en hins vegar gefst forvitnum færi á að kynnast verkinu nánar næstkomandi mánudag, 10. janúar kl. 19. Þá mun leikstjórinn Hörður...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert