Author: lensherra

Góð Einkamál á Grandanum

HugleikurEinkamál.isLeikstjórar: Hulda Hákonardottir og Þorgeir Tryggvason  Hugleikur fumsýndi á föstudag  leikritið Einkamál.is  eftir Árna Hjartarson.  Það er skemmst frá að segja að Hugleikur sannar það enn einu sinni að leikfélagið er í fremstu röð þegar kemur að því að setja á svið ný íslensk leikverk. Verk Árna er í senn fyndið og harmrænt í eindfaldri sögu í anda  klassískra  grískra leikbókmennta. Ég ætla ekki að ljóstra upp aðalfléttu verksins sem er alveg stórskemmtileg og óvænt og drífur verkið áfram af fítonskrafti. Árni hefur skapað verk sem er bæði tímalaust og tekst á við samtíðarmál eins  og  staðgöngumæður og firringu...

Read More

Aukasýning á Havgird í kvöld

Koluppselt var á tvær sýningar Leikfélagsins Royndin á Havgird – Sjótekinn í Gaflaraleikhúsinu um helgina. Af því tilefni verður aukasýning mánudaginn 18. apríl klukkan 21.00. Leikritið er eftir Ágústu Skúladóttur, Katrínu Þorvaldsdóttur og leikhópinn en Ágústa er jafnframt leikstjóri. Í Havgird birtast okkur í upphafi fjórar persónur sem allar hafa týnst á hafi úti á mismunandi tímum. Þær hafa hreiðrað um sig á hafsbotni og byggt sér sinn ævin­týraheim með því sem til fellur og þreyja tilbreytingarlítið hversdagslífið. Sjómaður ferst í skipsskaða og bætist í hóp þeirra, kemur róti á tilveru þeirra og ástin kviknar. Leikfélagið Royndin kemur frá...

Read More

Hugleikur sýnir Einkamál.is

Hugleikur frumsýndi nýtt íslenskt leikrit eftir Árna Hjartarson sem nefnist Einkamál.is föstudaginn 15. apríl í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9. Leikstjórar eru Hulda B. Hákonardóttir og Þorgeir Tryggvason. Ólíkt mörgum Hugleikshöfundum sækir Árni Hjartarson sér jafnan efnivið í samtímamál, jafnvel þjóðfélagsleg álitamál, og á það stundum til að vera forspár. Af því tilefni er rétt að taka fram að leikritið var skrifað áður en umræðan um staðgöngumæðrun fór af stað. Einkamál.is er dramatískur fjölskyldugamanleikur um samtímafjölskyldu í heimatilbúnum vanda. Hvað gerir barnelskur karl þegar hann kemst að því að einkasonur hans og tengdadóttir hafa ákveðið að eignast ekki börn?...

Read More

Umsóknarfrestur í Bandalagsskólann framlengdur til 4. maí

Frestur til að sækja um pláss í Leiklistarskóla Bandalagsins að Húnavöllum í Húnavatnssýslu dagana 11.-19. júní hefur verið framlengdur til 4. maí eða fram yfir aðalfund Bandalagsins. Enn eru laus pláss á öll námskeiðin en þau eru Leikstjórn II, Leiklist ll og Leiklist fyrir reynda áhugaleikara. Nánar má lesa um námskeiðin hér....

Read More

Svefnlausi brúðguminn aftur á Króknum eftir 41 ár

Liðsmenn Leikfélags Sauðárkróks æfa nú af kappi gamanleikinn Svefnlausa brúðgumann eftir Arnold og Bach í þýðingu Sverris Haraldssonar. Leikstjóri er Jakob S. Jónsson, sem einnig gerði nýja leikgerð af handriti og staðfærði, en alls koma á þriðja tug manna að sýningunni. Frumsýnt verður í félagsheimilinu Bifröst 1. maí næstkomandi en það er einmitt opnunardagur Sæluvikunnar 2011. Leikritið fjallar um nýgift hjón sem lenda óvæntri uppákomu í brúðkaupsferðinni. Málin flækjast svo stig af stigi eins og góðum farsa sæmir, en enginn hlýtur þó varanlegan skaða af. Yfirsmiður leikmyndar er Indriði Ragnar Grétarsson, lýsingu hannar Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson en búningar eru...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert