Tvær aukasýningar á Einkamál.is
Vegna góðrar aðsóknar hefur verið ákveðið að bæta við tveimur aukasýningum á uppfærslunni Einkamál.is eftir Árna Hjartarson í leikstjórn Huldu B. Hákonardóttur og Þorgeirs Tryggvasonar. Frá því Hugleikur frumsýndi verkið 15. apríl sl. hefur verið uppselt á allar sýningar og færri komist að en vildu. Aukasýningarnar verða laugardaginn 7. maí og sunnudaginn 8. maí kl. 20.00 bæði kvöld, en sýnt er í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9. Einkamál.is er dramatískur fjölskyldugamanleikur um samtímafjölskyldu í heimatilbúnum vanda. Hvað gerir barnelskur karl þegar hann kemst að því að einkasonur hans og tengdadóttir hafa ákveðið að eignast ekki börn? Hann tekur málið...
Read More


