Author: lensherra

Góðgerðasýning á Drama lama

Aðeins er ein sýning eftir á hinum bráðfyndna söngleik Drama lama, sem er  í lit og með íslensku tali um 17 ára Akureyring og er hún í kvöld, þriðjudaginn 3. maí klukkan 20:00. Leikfélag Menntaskólans á Akureyri hefur nú sýnt 8 sýningar fyrir fullu húsi af söngleiknum og nú er komið að síðustu sýningunni og verður það styrktarsýning þar sem allur aðgangseyrir rennur óskiptur til handa Barnadeild FSA. Höfundur og leikstjóri er Garún. Bráðfyndinn söngleikur í lit og með íslensku tali um 17 ára Akureyring sem er einn af 1245 sem ber nafnið Daníel sem fyrsta eða eina nafn á...

Read More

Góði dátinn Svejk í Þjóðleikhúsið

Val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins hefur nú farið fram í átjánda sinn. Alls sóttu þrettán leikfélög/hópar um með samtals sextán sýningar, og að vanda var það skemmtilegt verkefni að skoða sýningarnar sem sóttu um. Dómnefndina skipuðu að þessu sinni Stefán Hallur Stefánsson, leikari og leikstjóri, auk þjóðleikhússtjóra. Fyrir valinu í ár varð sýning Freyvangsleikhússins í Eyjafirði, Góði dátinn Svejk. Eftirtalin leikfélög sóttu um með þessar sýningar: Leikfélag Mosfellssveitar sýndi LÍSU Í UNDRALANDI eftir sögu Lewis Carrol í leikstjórn Agnesar Þorkelsdóttur Wild og Sigrúnar Harðardóttur. Leikrit fyrir börn með börn í hlutverkum. Sýningin var galsakennd og skemmtileg og unnin...

Read More

Aukasýningar á Bót og betrun

Fimmhurðafarsinn Bót og betrun hjá Leikfélags Kópavogs hefur verið í fríi um skeið en snýr aftur nú í maí. Þrjár aukasýnignar verða miðvikudag, fimmtudag og sunnudag í þessari viku. Bót og betrun er hefðbundinn farsi með misskilningi og flækjum af öllu tagi og pínlegum aðstæðum eins og efnið ber með sér. Er því óhætt að lofa gestum góðri skemmtun. Þá spillir það ekki fyrir að verkið er nú frumflutt á Íslandi en óvenjulegt er að áhugafélög ríði þannig á vaðið. Hörður Sigurðarson þýddi verkið úr ensku og er hann jafnframt leikstjóri.   Bót og betrun segir frá bótasvindlaranum Eric...

Read More

Tvær aukasýningar á Einkamál.is

Vegna góðrar aðsóknar hefur verið ákveðið að bæta við tveimur aukasýningum á uppfærslunni Einkamál.is eftir Árna Hjartarson í leikstjórn Huldu B. Hákonardóttur og Þorgeirs Tryggvasonar. Frá því Hugleikur frumsýndi verkið 15. apríl sl. hefur verið uppselt á allar sýningar og færri komist að en vildu. Aukasýningarnar verða laugardaginn 7. maí og sunnudaginn 8. maí kl. 20.00 bæði kvöld, en sýnt er í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9. Einkamál.is er dramatískur fjölskyldugamanleikur um samtímafjölskyldu í heimatilbúnum vanda. Hvað gerir barnelskur karl þegar hann kemst að því að einkasonur hans og tengdadóttir hafa ákveðið að eignast ekki börn? Hann tekur málið...

Read More

Metaðsókn á Með táninginn í tölvunni

Uppsetning Leikfélags Hólmavíkur á hinum sprellfjöruga gamanleik  Með táning í tölvunni eftir Ray Cooney hefur fengið fádæma góða aðsókn. Það er heimamaðurinn Arnar S. Jónsson sem leikstýrir og fara sjö leikarar með hlutverk í sýningunni og eru flestir þeirra að stíga sín fyrstu skref með leikfélaginu. Auk þeirra tekur annar eins fjöldi þátt í verkefnum á bak við tjöldin. Þrjár sýningar voru á Hólmavík um páskahelgina og þegar hafa rúmlega 300 hundruð manns séð sýninguna, sem lætur nærri að sé 80% af íbúafjölda á staðnum. Búið er að ákveða að næstu sýningar verði á Hólmavík laugardagana  7. maí og...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert