Eyvindur Karlsson

svarthjalmar@gmail.com 868 9742 / Kt. 071281 3619 www.eyvindur.is Gerum grín, höfum gaman, búum til leikhús. Allt frá revíum til söngleikja, farsa til melódrama, Shakespeare til líkamlegs leikhúss – ég er til í hvað sem er, að því gefnu að gleðin sé höfð að leiðarljósi. Menntun University of Essex (East 15) 2011 – MA í leikstjórn […]

Draumar 2013 í Tjarnarbíói

draumar

Draumar 2013, alþjóðleg leiklistar- og stuttmyndahátið heyrnarlausra, er nú haldin í þriðja sinn hér á íslandi vikuna 10. til 16. júní. Þema hátíðarinnar að þessu sinni er börn, fjölskyldur og ungt fólk. Leiksýningarnar eru fjórar sem ásamt tíu stuttmyndum verða sýndar á tveimur bíókvöldum.

Snæbjörn Brynjarsson tekur þátt í fjölþjóðlegri leiksýningu

swamp

Snæbjörn Brynjarsson, leikhúslistamaður og rithöfundur, frumsýndi verkið Swampclub 4. júní sl, með virta franska leikhópnum Vivariumstudio í Vínarborg. Verkið er samstarfsverkefni milli hátíðarinnar Vienna Festwochen (Vínar-leiklistarhátíðin) og nokkura franskra leikhúsa auk leikhópsins Vivariumstudio. Framundan er mikill túr með verkið, en eftir Vínarborg eru sýningar í Þýskalandi, Sviss, Frakklandi, Belgíu og Lettlandi svo nokkur dæmi séu […]

Leikfélag Hólmavíkur á leikferð um Vestfirði

makalaus_sambud

Leikfélag Hólmavíkur leggur upp í ferðalag um helgina. Sýnt verður leikritið Makalaus sambúð eftir Neil Simon í þýðingu og leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Sýnd verður ein sýning í Félagsheimilinu Bolungarvík, föstudaginn 7. júní og hefst sýningin klukkan 20.00. Einnig verður sýnt í Félagsheimilinu í Árnesi Trékyllisvík laugardaginn 8. júní og hefst sú sýning einnig klukkan 20.00. […]

Síðasta sýning á Logskeranum

logskerinn2

Nú fer hver að verða síðastur að sjá leikritið Logskeran eftir Magnus Dalhström í uppfærslu Leikfélags Hafnarfjarðar. Síðasta sýning er á miðvikudaginn 5. júní og hefst kl. 20.00 og er  sýnt í Gaflaraleikhúsinu. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson og leikendur eru Gísli Björn Heimissson og Halldór Magnússon.

Athygliverðasta áhugaleiksýningin 16. júní

stongin_inn1

Leikfélögin í Fjallabyggð, Leikfélag Siglufjarðar og Leikfélag Ólafsfjarðar, munu sýna söng- og gamanleikinn Stöngin inn á Stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu 16. júní kl. 19.30. Stöngin inn hefur fengið frábær viðbrögð og frábærar viðtökur í heimabyggð, en yfir 1.000 manns hafa séð verkið og svo haldið til síns heima með bros á vör, en valnefnd Þjóðleikhússins […]

Pörupiltar í útrás

porupiltar

Pörupiltar eru í útrás og verða með uppistandið sitt Homo Erectus í Pop Up Art House leikhúsinu, Diana scene í Finnlandi þriðjudaginn 4. júní nk. kl. 19.00. Uppistandið verður lokasýningin á leiklistarhátíð sem leikhópurinn Blaue Frau stendur fyrir. Það eru leikkonurnar Alexía Björg Jóhannesdóttir, María Pálsdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir sem eru konurnar á bak við […]

Tilnefningar til Grímunnar 2013

grimanlogo

Tilnefningar til íslensku leiklistarverðlaunanna Grímunnar 2013 voru opinberaðar við formlega athöfn á Stóra sviði Þjóðleikhússins í gær, fimmtudaginn 30 maí. Gríman er uppskeruhátíð sviðslistafólks og það er Leiklistarsamband Íslands, heildarsamtök sviðslistanna á Íslandi, sem hafa veg og vanda að Grímuverðlaununum. Grímuhátíðin verður haldin í ellefta sinn í ár, nú í Þjóðleikhúsinu 12. júní n.k. og […]

Fundargerð aðalfundar 4. maí 2013 í Logalandi

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga haldinn 4. maí í Logalandi, Reykholti 1. Fundarsetning. Kosning 2ja fundarstjóra og 2ja fundarritara, sem taka þegar til starfa. Lögmæti fundarins kannað. Þorgeir Tryggvason, formaður Bandalagsins, setti fundinn og stakk upp á Bernharð Arnarsyni, Leikfélagi Hörgdæla, og Sigríði Láru Sigurjónsdóttur, Leikfélagi Fljótsdalshéraðs, sem fundarstjórum og Ármanni Guðmundssyni, ritara þjónustumiðstöðvar, og Magnþóru Kristjánsdóttur, […]

Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýnir Logskerann

logskerinn_mynd

Leikfélag Hafnarfjarðar frumssýnir leikritið Logskerann eftir Magnús Dalhström í gömlu Vélsmiðju Hafnarfjarðar (Gaflaraleikhúsinu við Víkingastræti) föstudaginn 31. maí kl 20.00. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson og leikendur eru Gísli Björn Heimissson og Halldór Magnússon. Í tilefni Bjartra Daga í Hafnarfirði sem hefjast 31. maí þá eru allir boðnir velkomnir án endurgjalds á frumsýninguna 31 maí. […]

Snúður og snælda gefa út 20 ára afmælisrit

20ara_afmaelisrit

Þegar leikfélag eldri borgara í Reykjavík, Snúður og Snælda, varð 20 ára árið 2010 réðst stjórn þess í það metnaðarfulla verkefni að láta rita sögu félagsins.  Bókin Saga Snúðs og Snældu er nú komin út og segir á skemmtilegan hátt sögu leikfélagsins en Sigrún Valbergsdóttir tók efni bókarinnar saman.

Gilitrutt frumsýnt í Elliðárdal

gilitrutt_poster

Leikhópurinn Lotta frumsýnir miðvikudaginn 22. maí kl. 18.00 nýjan íslenskan söngleik um tröllskessuna Gilitrutt í Elliðaárdalnum í Reykjavík. Lotta setur sýningar sínar upp úti undir berum himni og ferðast með þær um allt land. Einnig er verkið á sama tíma gefið út á hljóðdiski. Gilitrutt er skrifað af Önnu Bergljótu Thorarensen, sem skrifar nú sitt þriðja […]

Síðustu sýningar á Hvörfum

hvorf2

Föstudaginn 24. maí og laugardaginn 25. maí verða síðustu sýningar Lab Loka á leikverkinu Hvörf sem byggir hugarheim sinn á svokölluðu Guðmundar og Geirfinnsmáli. Verkið er sýnt í samvinnu við Þjóðleikhúsið og eru höfundar þess Rúnar Guðbrandsson og Sjón en Rúnar er jafnframt leikstjóri verksins. Leikritið hefur hlotið afbragðs viðtökur áhorfenda enda kafar það ofan […]

4 x Tveir frumsýndir í Kópavogi

4xTveir_200x150

Leikdagskráin 4 x Tveir verður frumsýnd hjá Leikfélagi Kópavogs sunnudaginn 19. maí kl. 20. Þar verða fluttir fjórir leikþættir, þar af þrír eftir íslenskar leikskáldkonur. Leikhópurinn samanstendur af þátttakendum á leiklistarnámskeiði sem leikstjórinn Hörður Sigurðarson hélt hjá LK í vetur og eru flestir að stíga sín fyrstu spor á sviði. Miðaverð er 1.000 kr. og hægt […]

Stjórn Bandalagsins óbreytt

stjorn

Þann 4. maí sl. var aðafundur Bandalags íslenskra leikfélaga haldinn í félagsheimilinu Logalandi í Reykholtsdal. Á fundinn mættu um 60 fulltrúar frá 19 leikfélögum sem er meira en yfirleitt hefur verið undanfarin ár. Þorgeir Tryggvason var endurkjörinn formaður og Ólöf Þórðardóttir í stjórn. Varastjórn er líka óbreytt nema hvað Salbjörg Engilbertsdóttir, Leikfélagi Hólmavíkur tók sæti […]

Vorstarf Leikfélags Selfoss

stjornls2013

Aðalfundur Leikfélags Selfoss var haldinn þann 30. apríl síðastliðinn. Að venju var rennt yfir starf liðins árs, sem var í senn geysiöflugt og fjölbreytt. Má þar nefna söngnámsskeið, Hugarflug og svo uppsetningu á Þreki og tárum, sem gekk mjög vel. Nokkrir nýir félagar gengu til liðs við félagið og margir buðu sig fram til starfa. […]

Síðustu sýningar á Spilaborgum Hugleiks

spilaborgir1

Nú um helgina verða allra síðustu sýningar á vorverkefni Hugleiks, Spilaborgum. Sýnt verður í kvöld, föstudaginn 10 maí, og svo laugardaginn 11. og sunnudaginn 12. en aðeins sex sýningar voru áformaðar þannig að nú fer hver að verða síðastur. Allar sýningarnar eru kl. 20 og sýnt er í húsnæði félagsins að Eyjarslóð 9. Höfundur er […]

Leikfélag MA sýnir Þrek og tár

threkogtar

Nú á dögunum frumsýndi Leikfélag Menntaskólans á Akureyri hið sívinsæla verk Þrek og tár eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn í leikstjórn Árna Grétars Jóhannssonar. Verkið var fyrst frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1995 og er eitt af ástsælustu verkum Ólafs Hauks. Verkið er sýnt í Rýminu, húsnæði Leikfélags Akureyrar.

Uppselt á 10 sýningar í röð

tifar_timans_hjol1

Þann 28. apríl síðastliðinn frumsýndi Leikfélag Sauðárkróks nýtt íslenskt leikrit samið í kringum tónlist Geirmundar Valtýssonar. Leikritið nefnist Tifar tímans hjól og var það skrifað af Árna Gunnarssyni og Guðbrandi Ægi Ásbjörnssyni, sem einnig leikstýrði. Uppselt hefur verið á þær 8 sýningar sem búið er að sýna og er einnig uppselt á næstu tvær og […]

Stöngin inn er Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins

stongin_inn1

Samvinnuverkefni Leikfélags Ólafsfjarðar og Leikfélags Siglufjarðar, Stöngin inn var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2013 af valnefnd Þjóðleikhússins. Fulltrúi Þjóðleikhússins, Þórhallur SIgurðsson, tilkynnti niðurstöðuna á aðalfundi BÍL sem haldinn var í Logalandi í Borgarfirði nú um helgina. Stöngin inn er eftir Guðmund Ólafsson sem jafnframt leikstýrir. Félögunum hefur verið boðið sýna verkið í Þjóðleikhúsinu.

Lab Loki frumsýnir Hvörf

hvorf

Laugardaginn 4. maí kl. 19 frumsýnir leikhópurinn Lab Loki í samstarfi við Þjóðleikhúsið, nýtt sviðslistarverk sem byggir hugarheim sinn á svokölluðu Guðmundar og Geirfinnsmáli. Höfundar eru Rúnar Guðbrandsson og Sjón en Rúnar er jafnframt leikstjóri verksins. Lab Loki hefur starfað að tilraunum og rannsóknum á sviði leiklistar í tuttugu ár jafnt hérlendis sem erlendis og […]

Grande sýnt í Tjarnarbíói

grande

Leiksýningin Grande eftir Tyrfing Tyrfingsson verður sýnd í Tjarnarbíó 3., 5., 10. og 11. maí kl. 20. Þetta er verk um Ödipusarduldina og hvernig karlmenn af ákveðinni kynslóð þurfa, áður en þeir komast til manns, að myrða þessa gömlu konu sem hangir inni í þeim og segir þeim að þeir séu þunglyndir, eigi að hætta […]

Tímalausar Spilaborgir

spilaborgir1

HugleikurSpilaborgirHöfundur: Ásta GísladóttirLeikstjórar: Sigurður H. Pálsson og Þorgeir Tryggvason Mömmudrengurinn Kári er ofvaxið og dálítið aulalegt barn á þrítugsaldri. Í stað þess að takast á við lífið utan heimilisins hefur hann valið sér það hlutskipti að  sinna lasinni móður sinni og byggja spilaborgir. Kári lifir við konuríki og örlagadísirnar birtast í líki þriggja nágranna sem reiða […]

Einþáttungahátíðin í Logalandi 3. maí

hhoghk

Í tengslum við aðalfund Bandalag íslenskra leikfélaga um næstu helgi verður haldin einþáttungahátíð í félagsheimilinu Logalandi föstudaginn, 3. maí kl. 20.30. Þar munu fjögur leikfélög sýna fimm einþáttunga, ýmist frumsamda eða eftir erlenda höfunda. Leikfélögin sem sýna eru Hugleikur, Leikfélag Kópavogs, Leikfélag Mosfellssveitar og Leikfélag Ölfuss. Að sýningum loknum mun Kjartan Ragnarsson, leikstjóri og leikskáld, […]

17 sýningar eru í valinu á Athyglisverðasta áhugaleiksýningin

bil_island_logo

Val Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins 2012-13 verður tilkynnt á aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga sem haldinn verður í félagsheimilinu Logalandi í Reykholtsdal í Borgarfirði dagana 3.-4. maí. Alls eru það 17 sýningar frá jafnmörgum félögum sem berjast um að hljóta útnefninguna og fara á svið í Þjóðleikhúsinu í byrjun sumars.

Hugleikur frumsýnir Spilaborgir

spilaborgir1

Nýtt íslenskt leikrit, Spilaborgir, verður frumsýnt í húsnæði Hugleiks, Eyjarslóð 9, sunnudaginn 28. apríl. Hvað gerist þegar ungur kolbítur finnur tösku fulla af peningum ásamt absinthe-flösku og illa kveðnu ljóði? Um afleiðingarnar þess fjallar Spilaborgir. Höfundur er Ásta Gísladóttir, annar ritstjóra menningartímaritsins Spássíunnar. Hún hefur áður tekið þátt í leikritun fyrir Hugleik, en þreytir nú […]

Sólheimaleikhúsið sýnir Skilaboðaskjóðuna

skilabodaskjodan

Sumardaginn fyrsta frumsdýndi Sólheimaleikhúsið fjölskylduleikritið Skilaboðaskjóðunni eftir Þorvald Þorsteinsson. Leikstjórinn er Lilja Nótt Þórarinsdóttir leikkona sem útskrifaðist frá Leiklistarskólanum 2009 og hefur síðan starfað hjá Þjóðleikhúsinu og sett upp eigin sýningar, nú síðast leikstýrði hún leikritinu Þrek og Tár á Selfossi. Skilaboðaskjóðan er bráðskemmtilegt og líflegt barnaleikrit með fallegum boðskap.

Síðustu sýningar á Nú er himneska sumarið komið

himneska_sumarid

Föstudaginn 26. og sunnudaginn 28. apríl verða síðustu sýningarnar á verkinu Nú er himneska sumarið komið eftir Sigtrygg Magnason í Dillonshúsi á Árbæjarsafni. Leikstjóri er Una Þorleifsdóttir og leikarar eru Hjalti Rögnvaldsson og Svandís Dóra Einarsdóttir. Agnieszka Baranowska hannar búninga. Umfjöllunarefnið er ást langömmu og langafa höfundar, sem náði út yfir gröf og dauða. Hún […]

Leikfélag Sauðákróks sýnir Tifar tímans hjól

tifar_timans_hjol_hopur

Í Sæluviku frumsýnir Leikfélag Sauðárkróks glænýtt frumsamið leikverk í fullri lengd eftir Guðbrand Ægi Ásbjörnsson og Árna Gunnarsson með lögum eftir Geirmund Valtýsson. Leikstjóri er Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson. Leikverkið verður frumsýnt á Sæluviku Skagfirðinga 28. apríl 2013.

Píslavottar án hæfileika í Tjarnabíói

pislarvottar

Sænski leikhópurinn PotatoPotato frá Malmö leikritið Píslavotta án hæfileika í Tjarnarbíói dagana 25., 26. og 27. apríl. Terroristaklúbburinn er hljómsveit, ákall um breytingar, vilji til að varpa ljósi á það sem hefur verið hulið, þyrnir í augum, fagurfræðileg ákvörðun, tónlúppa og drifkraftur. Hljómsveitarmeðlimir fara út í beinar aðgerðir, semja lög, lesa um frelsishetjur og fá innblástur […]

Allrasíðasta sýning á Gutta og félögum

GuttiOgFelagar01_200x150

Sýning Leikfélags Kópavogs á Gutta og félögum hefur gengið fádæma vel og uppselt á hverja einustu sýningu. Nú eru þó síðustu forvöð að sjá prakkkarann Gutta og félaga hans því allrasíðasta sýning verður sunnudaginn 21. apríl kl. 14.00. 

Inntökupróf fyrir Rose Bruford College á Íslandi

lady_in_the_dark42

Einn af fremstu leiklistar- og leikhússkólum í Evrópu, Rose Bruford College, sem býður upp á nám á öllum sviðum leikhúss, heldur inntökupróf á Íslandi. Margir Íslendingar hafa sótt nám við skólann í gegnum árin. Inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir fara fram í Hinu Húsinu, Reykjavík, 27. og 28. apríl, fyrir inngöngu í september 2013. […]

Umsóknarfrestur í Leiklistarskóla Bandalagsins er til 15. apríl

skolalogo200

Enn er hægt að skrá sig á öll námskeið í Leiklistarskóla Bandalagsins sem haldin verða að Húnavöllum í Austur-Húnavatnssýslu dagana 8.-16 júní í sumar. Námskeiðin sem boðið er upp eru Leiklist 2 sem Árni Pétur Guðjónsson kennir, Sérnámskeið fyrir leikstjóra hjá Rúnari Guðbrandssyni, Leikritun 1 í umsjón Karls Ágústs Úlfssonar og Sérnámskeið fyrir leikara sem […]

Leikfélag Vestmannaeyja sýnir Grease

gresaelv2

Um þessar mundir er Leikfélag Vestmannaeyja að sýna söngleikinn Grease í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Frumsýnt var fimmtudaginn 28. mars og hefur verið uppselt á allar sýningar síðan. Sannarlega má segja að algert Grease æði hafi brotist út í Eyjum sem og víðar, en einnig er verið að setja söngleikinn upp á Hornafirði.  Hafa móttökur leikhúsgesta […]

Nýjustu fréttir á Norðurpólnum

nyjustufrettir

Í sumar mun Norðurpóllinn leikhús missa húsnæði sitt. Eitthvað annað gott mun örugglega koma út úr því. Hópurinn mun halda ótrauður áfram að styðja við og skapa list á Íslandi. Ef þig langar að koma í eitt síðasta skiptið í leikhúsið þá erum við með góðar fréttir, nefnilega Nýjustu Fréttir. Nýjustu fréttir var frumsýnt í […]

Brúðuloftið og Gilitrutt – bók, sýning og nýtt leikhús

gilitrutt

Brúðuheimar fagna opnun á nýju leiksviði, Brúðuloftinu,sem er staðsett í aðalbyggingu Þjóðleikhússins. Brúðuheimar hafa átt frábært og farsælt samstarf við Þjóðleikhúsið til margra ára og nú er svo komið að Þjóðleikhúsið hefur boðið Brúðuheimum leiksvið sem bar heitið Leikhúsloftið til afnota og munu Brúðuheimar halda úti leikhúsi sínu þar næstu misserin, undir heitinu Brúðuloftið. Í tilefni opnunar […]

Yggdrasil frumsýnir Tjaldið

tjaldid1

Fimmtudaginn 11. apríl frumsýnir Yggdrasil, leikfélag VMA, leikritið Tjaldið eftir Hallgrím Helgason í Rósenborg á Akureyri. Leikritið er hluti af Þjóðleik sem er leiklistarhátíð ungs fólks sem haldin er annað hvert ár á landsbyggðinni. Þekkt íslensk leikskáld eru fengin til að skrifa krefjandi og spennandi verk fyrir 13-20 ára leikara sem svo eru sett upp […]

Frumsýning á Englum alheimins 20. apríl

englar

Þann 20. apríl mun Þjóðleikhúsið frumsýna á Stóra sviðinu Engla alheimsins eftir Einar Má Guðmundsson í nýrri leikgerð Þorleifar Arnar Arnarssonar og Símons Birgissonar. Englar alheimsins er ein ástælasta skáldsaga síðari ára og hafa bæði kvikmyndin og skáldsagan notið fádæma vinsælda. Ljóst er að margir bíða leikgerðarinnar með eftirvæntingu en um leið og forsala hófst […]

Kvennafræðarinn frumsýnt 18. apríl

kvennafraedarinn

Hver er ekki forvitin um kvennlíkamann? Þann 18. apríl mun Þjóðleikhúsið frumsýna eldfjörugt og sprenghlægilegt verk,  Kvennafræðarann í leikstjórn Charlotte Böving í Kassanum. Höfundurinn, Kamilla Wargo Brekling, byggir leikritið á bókinni „Kvinde kend din krop“.  Bókin kom fyrst út í Dannmörku árið 1975 og vakti strax mikla athygli með hispurslausri umfjöllun um konur, líkama þeirra, […]

Grease á Höfn

grease1

Leikfélag Hornafjarðar og Framhaldsskólinn í Austur Skaftafellssýslu setja í sameiningu upp söngleikinn Grease í samstarfi við Tónskóla Hornafjarðar og frumsýna laugdagin 13. apríl. Flestir landsmenn þekkja söngleikinn Grease en hann er löngu orðinn heimsfrægur. Svo skemmtilega vill til að auk þess að vera settur upp á Höfn þá er nú unnið að uppsetningu verksins í […]