Author: lensherra

Þjóðleikhúsið byrjar leikárið með stæl

Leikárið í Þjóðleikhúsinu er hafið af fullum krafti. Æfingar standa yfir á margvíslegum verkefnum víðsvegar um húsið. Kynningarbæklingi Þjóðleikhússins var dreift í öll hús á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri en hægt er að kynna sér leiksýningar vetrarins hér. Sala á leikhúskortum Þjóðleikhússins er nú í fullum gangi. Enn fleiri kort hafa selst en á sama tíma og í fyrra, en það var metár í kortasölu Þjóðleikhússins. Stefnir því allt í að nýtt met verði slegið.  Síðasta leikár var aðsóknarmesta leikár Þjóðleikhússins í áraraðir, og von er á að ekkert lát verði á aðsókn í leikhúsið í vetur, enda leikárið...

Read More

Fræði og framkvæmd á Lókal

Í vor útskrifuðust tíu nemendur af brautinni fræði og framkvæmd við Listaháskóla Íslands. Brautin leitast við að skapa grundvöll til nýsköpunar og auka fjölbreytni í íslensku sviðlistaumhverfi. Þremur nemendum var boðið að sýna lokaverkefni sýn á leiklistarhátíðinni Lókal. Svörður fyrir sálina er söngleikur eftir Aude Busson sem fjallar um tengsl einstaklingsins við „heima” og hvötina að skapa sér þjóð og þjóðarímynd. Ættjarðarástgef ekkert fyrir svoleiðis fínt kjaftæðisagði sjómaðurinn ungiog hellti í glasið…(Vilborg Dagbjartsdóttir) Sýningin verður sýnd kl 14.00, sunnudaginn 4. september í Þjóðmenningarhúsinu. Dagskrá um eldingar eftir Ragnheiði Hörpu er sýning sem rannsakar hið stórfenglega og hið hversdagslega. Dulúðinn...

Read More

16 sýningar 16 staðir 16 dagar

Kómedíuleikhúsið fer í haustleikferð um Vestfirði og Vesturland með tvö af sínum vinsælu leikverkum. Leikferðin stendur yfir dagana 9. – 24. september og verður sýnd ein sýning á dag alla dagana og það á 16 stöðum. Sýnd verða leikritin Jón Sigurðsson strákur að vestan og Bjarni á Fönix sem bæði hafa fengið ferska og góða dóma áhorfenda. Leikirnir verða sýndir hver á eftir öðrum en gert verður stutt hlé á milli leikrita. Haustleikferðin hefst í Búðardal 9. september og lýkur í Súðavík 24. september. Leikferðin öll verður á þennan veg: 9. september föstudagur kl.20.00: Búðardalur – Leifsbúð10. september laugardagur...

Read More

Námsskeið í hagnýtri og skapandi leiklist

Nýstofnaður Leiktækniskóli Magnúsar Jónssonar og Þorsteins Bachmann mun standa fyrir leiklistarnámskeiðum í vetur. Fyrsta námskeið hefst þriðjudaginn 6. sept. og stendur til og með 11. okt. Á námsskeiðinu munu þeir Magnús og Þorsteinn miðla af eigin reynslu en styðjast við klassíka aðferðafræði Stanislavskis, Mikhael Chekhov, Lee Strasbergs o.fl. í bland við nýja strauma og stefnur. Einnig munu þeir sækja nokkuð í brunn Helga Skúlasonar leikara sem rak eigin Leiklistarskóla um árabil en þar lágu leiðir Magnúsar og Þorsteins saman fyrst. Magnús og Þorsteinn voru samferða í gegnum Leiklistarskóla Íslands og útskrifuðust þaðan vorið 1991. Báðir með áratuga reynslu af leikhúsi, kvikmyndum og sjónvarpi.Kennt er á þriðjudagskvöldum...

Read More

LÓKAL leiklistarhátíðin í Reykjavík 1. – 4. september

LÓKAL – alþjóðleg leiklistarhátíð í Reykjavík – er nú haldin í fjórða sinn. Hátíðin hefur frá upphafi haft tónlistarhátíðina Airwaves sem fyrirmynd, á LÓKAL er boðið upp á innlendar og erlendar sviðslistir sem þykja hvað markverðastar og nýstárlegastar hverju sinni. Á fjórum dögum gefst gestum tækifæri til að sækja þrettán viðburði, ganga í listabjörg og koma út aftur með innsýn í samtíma sviðslistir. Á hverri LÓKAL hátíð sem haldin hefur verið hingað til hefur íslenskum eða erlendum sviðslistahópum sem fram á henni hafa komið verið boðið á stærri og þekktari hátíðir erlendis. Má þar nefna franska hópinn Vivarium Studio...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert