Einkamál.is aftur á svið
Hugleikur mun þann 7. október nk. hefja á ný sýningar á leikritinu Einkamál.is eftir Árna Hjartarson. Leikritið var frumsýnt sl. vetur og fékk lofsamlega dóma gagnrýnenda. Þegar sýningum var hætt í vor var uppselt flest sýningarkvöld. Sem fyrr er sýnt í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9. Einkamál.is er dramatískur gamanleikur um samtímafjölskyldu í heimatilbúnum vanda. Hvað gerir barnelskur karl þegar hann kemst að því að einkasonur hans og tengdadóttir hafa ákveðið að eignast ekki börn? Hann tekur málið auðvitað í sínar hendur, setur auglýsingu á einkamál.is og óskar eftir kynnum við konu sem væri til í að ganga með...
Read More


