Hreinsun eftir Sofi Oksanen frumsýnt í Þjóðleikhúsinu
Þjóðleikhúsið frumsýnir leikritið Hreinsun eftir Sofi Oksanen á Stóra Sviðinu fimmtudaginn 27. október kl. 19:30. Hreinsun er einstaklega áhrifamikið verk um ást, grimmd og svik, og örvæntingarfulla baráttu manneskjunnar fyrir því að lifa af ofbeldi og niðurlægingu og verða heil að nýju. Leikstjóri er Stefán Jónsson. Hreinsun er meðal umtöluðustu skáldverka undanfarinna ára. Leikritið var frumflutt í finnska Þjóðleikhúsinu árið 2007 og í kjölfarið skrifaði höfundurinn skáldsögu upp úr efni þess sem farið hefur líkt og eldur í sinu um Evrópu, víða orðið metsölubók og sankað að sér verðlaunum. Oksanen hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Hreinsun á liðnu ári....
Read More


