Author: lensherra

Gyllti drekinn frumsýndur á Nýja sviðinu

Verðlaunaverkið Gyllti drekinn eftir þekktasta samtímaleikskáld Þjóðverja um þessar mundir, Roland Schimmelpfenning, verður frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins föstudaginn 11. nóvember næstkomandi. Gyllti drekinn var valið besta leikritið í Þýskalandi árið 2010. Verkið gerist á og í næsta nágrenni austurlensks skyndibitastaðar Gyllta drekans einhvers staðar í Evrópu. Það segir segir sárar sögur af skrítnu fólki af ólíkum uppruna sem veit ekki að líf þess tengist með margslungnum hætti. Kristín Eysteinsdóttir leikstýrir verkinu. Á ósköp venjulegu kvöldi kynnumst við hópi fólks sem veit ekki að líf þess tengist með margslungnum hætti. Austurlenskur skyndibitastaður, Gyllti drekinn, einhvers staðar í Evrópu: Fimm...

Read More

Skemmtilegir Rúar og Stúar á Selfossi

Rúi og Stúi Leikfélag SelfossLeikstjórn: F. Elli Friðjónsson  Það er aðeins 45 mínutna akstur að aka frá Hafnarfirði til Selfoss, yfir Sandskeið og Hellisheiði. Það er ekki langt að fara til að sjá skemmtilega leiksýningu  eins og ég og 5 ára afastelpan mín, hún Embla Sól gerðum eina kvöldstund í vikunni. Og á leiðinni er hægt að virða fyrir sér norðurljós og stjörnuhrap í austrinu.  Það var sko ekkert stjörnuhrap í skemmtilegu verki  þeirra Skúla Rúnars Hilmarssonar og Arnar Alexanderssonar í litla leikhúsi Leikfélags Selfoss við Ölfussána. Þeir Selfyssingar eða Árborgarar, eins og þeir heita víst núna, eru flinkir...

Read More

Mórar og meyjar í Bæjarleikhúsinu í kvöld

Leikfélag Mosfellssveitar fagnar um þessar mundir 35 ára starfsafmæli. Af því tilefni verður haldin afmælishátíð í Bæjarleikhúsinu dagana 1.-4. nóvember. Í kvöld, þriðjudaginn 1. nóvember kl. 20, verður sýnd sýningin Mórar og meyjar – draugasögur í tali og tónum eftir Maríu Guðmundsdóttur og BirgiSigurðsson. Í sýningunni eru sviðsettar magnaðar draugasögur úr Mosfellssveitinni og af Akranesi. Feðgarnir á Tindum, Atli, Bjarni og Guðlaugur (Tindatríóið) ásamt Sveini Arnari sjá um viðeigandi tónlistarflutning. Miðvikudaginn 2. nóvember kl. 20 verður boðið upp á sýnikennslu í sirkuslistum. Þá mun Egill Wild ásamt aðstoðarmönnum sýna og kenna grunnatriði í sirkuslistum. Föstudaginn 4. nóvember kl. 20...

Read More

Metaðsókn hjá Hörgdælum

Leikfélag Hörgdæla tók hina geysivinsælu sýningu Með fullri reisn aftur til sýninga nú í haust og virðist ekki hafa verið vanþörf á því, það hefur verið mjög góð aðsókn og er nú uppselt á allar sýningar sem fyrirhugaðar eru á Melum. Síðan ætla leikfélagsmenn og -konur að halda í leikferð til Reykjavíkur. Verður leikritið sýnt á fjórum sýningum í Iðnó dagana 11. og 12. nóvember. Aðeins eru örfáir miðar eftir á þær sýningar og má finna þá á midi.is. Það stefnir í að heildarfjöldi áhorfenda verði vel yfir 4.000 á 44 sýningum. Þannig telst sýningin vera í hópi vinsælustu...

Read More

Prenstsmiðjan Oddi gerist máttarstólpi Borgarleikhússins

Jón Ómar Erlingsson framkvæmdastjóri og Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri undirrituðu samstarfssamning á Stóra sviði Borgarleikhússins að viðstöddum leikurum og listrænum stjórnendum Kirsuberjagarðsins. Prentsmiðjan Oddi verður máttarstólpi Kirsuberjagarðsins, en aðrir máttarstólpar Borgarleikhússins eru Reykjavíkurborg, Valitor, VÍS, Íslandsbanki og Ölgerðin. Þrátt fyrir erfitt efnahagsástand hafa fyrirtækin í landinu staðið þétt við bakið á Borgarleikhúsinu og hafa komið inn í starfið af miklum krafti. „Við erum hæstánægð að fá Odda til liðs við okkur sem máttarstólpa. Fyrirtækið er þekkt fyrir vandaða vinnu, á sér langa og merka sögu og er í stöðugri framþróun. Þetta eru eiginleikar sem tóna mjög vel við Kirsuberjagarðinn...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert