Author: lensherra

Leiklestraröðin Salon í Tjarnarbíói

Mánudaginn 12. og þriðjudaginn 13. desember munu Pörupiltarnir ásamt „sjúklega heitri skvísu“ leiklesa leikritið The Night before Christmas eftir Anthony Neilson í Tjarnarbíói. Þetta er liður í leiklestrarröðinni Salon þar sem íslenskir leikarar leiklesa ný og spennandi bresk verk sem ekki hafa verið sett hér á landi. Húsið opnar kl. 20 og lestur hefst kl. 20.30. Miðaverð er 1.500 kr. en inni í verðinu er einn kaldur Tuborg. The Night before Christmas er lítil jólaperla um vináttu, innbrot, álfasögur og hinn sanna anda jólanna. Pörupiltarnir eru Dóri Maack, Nonni Bö og Hermann Gunnarsson....

Read More

Kynningarfundur fyrir vorverkefni Leikfélags Kópavogs

Aðalverkefni vormisseris hjá Leikfélagi Kópavogs er heimasmíðað verk sem gengið hefur undir vinnuheitinu Hringurinn. Fimmtudaginn 15. desember er komið að því að ýta því formlega úr vör með kynningarfundi í Leikhúsinu. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í uppsetningunni mæti þá sem og aðrir félagar sem vilja fylgjast með. Kynningarfundurinn er í Leikhúsinu, Funalind 2, og hefst kl. 19.30. Verkefnisstjórar eru Hrefna Friðriksdóttir, Hörður Sigurðarson, Skúli Rúnar Hilmarsson og Sváfnir Sigurðarson og munu þau leiða áhugasama inn í heim Hringsins....

Read More

Ársrit Bandalagsins 2011 komið út

Út er komið Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga fyrir leikárið 2010-2011 og er nú hægt að hala því niður hér í PDF-formati. Auk hefðbundins efnis eins og fundargerða stjórnar og aðalfunda, ársreiknings og skýrslna leikfélaga má m.a. finna umfjöllun um NEATA-hátíðina á Akureyri sumarið 2010. Mikið er af myndum í ritinu og er það hin ágætasta heimild um starfsemi leikfélaganna í landinu. Einnig er hægt að fá ársritið sent í PDF-formi með hærri upplausn en er í boði hér á vefnum. Ef óskað er eftir að fá ársritið útprentað þarf að panta það á þjónustumiðstöð Bandalagsins fyrir 10. desember og...

Read More

Andakt á Gallery-Bar 46

Frá því Leikfélagið Peðið var stofnað á kránni Grand Rokk við Smiðjustíg árið 2005 hefur félagið sýnt fjölda verka, flest eftir félagsmenn og auk þess hafa félagar Peðsins samið tónlist og söngva þegar við á. Þannig er það líka að þessu sinni en jólasýning Peðsins í ár er gamansöngleikurinn Andakt eftir Guðjón Sigvaldason í leikstjórn Vilhjálms Hjálmarssona sem verður frumsýndur á Gallery-Bar 46, Hverfisgötu 46, sunnudaginn 4. desember kl. 18.00 Tónlistin er eftir Kormák Bragason, Inga Gunnar Jóhannsson, Ásgeir Jónsson, Magnús R. Einarsson og Tómas Tómasson. Aðstoðarleikstjóri og framkvæmdastjóri sýningarinnar er Hjördís Jóhannsdóttir. Leikmyndin er eftir Inga Rafn Haraldsson...

Read More

Verkstæði jólasveinanna í Mosfellsbæ

Það er sannkallað jólafjör í jólasýningu Leikfélags Mosfellssveitar, en sunnudaginn 20. nóvember var barnaleikritið Verkstæði jólasveinanna frumsýnt í Bæjarleikhúsinu. Leikstjóri er Stefán Bjarnarson. Í sýningunni fylgjast áhorfendur með undirbúningi jólanna hjá jólasveinunum á verkstæði jólasveinanna. Verkstæði jólasveinanna kom út árið 1973 og er upphaflega útvarpsleikrit eftir Thorbjörn Egner en þær Agnes Þorkelsdóttir Wild og María Guðmundsdóttir stílfærðu og aðlöguðu fyrir svið. Leikritið er fullt af gleði og söng og var uppselt á fyrstu þrjár sýningarnar. Næstu sýningar verða sunnudagana 11. og 18. desember kl. 14. Miðapantanir eru í síma 566 7788 og miðaverð aðeins 1000 krónur....

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert