Author: lensherra

Umóknarfrestur fyrir NEATA-hátíðina rennur út 15. febrúar

Frestur til að sækja um að fara með leiksýningu á leiklistarhátíðina í Sønderborg í Danmörku dagana 31. júlí – 5. ágúst rennur út þann 15. febrúar nk. Aðildarfélög Bandalags íslenskra leikfélaga geta sótt um að fara með sýningu á hátíðina. Þau sækja um til Bandalags ísl. leikfélaga á eyðublöðum sem finna má hér . Upptökur af sýningum þurfa að fylgja umsóknum. Ef fleiri en ein sýning sækir um skipar stjórn Bandalagsins valnefnd sem velur sýningu. Hátíðin verður sú sjöunda í röð NEATA-leiklistarhátíða.Hátíðin verður með hefðbundnu sniði; leiksýningar frá öllum NEATA-löndunum og tveimur öðrum evrópulöndum að auki, gagnrýni, leiksmiðjur, námskeið...

Read More

Skrímslið litla systir mín í Norræna húsinu

Brúðuleiksýningin Skrímslið litla systir mín verður frumsýnt í Norræna húsinu 4. febrúar. Það er Helga Arnalds sem er aðalhöfundur verksins og flytjandi en leikstjóri og meðhöfundur er Charlotte Böving og Eivör Pálsdóttir semur og flytur tónlist verksins. Sýningin er ætluð börnum frá 3 til 9 ára. Hún tekur um 40 mínútur í flutningi og vinnustofan eftir sýninguna er um 45 mínútur. Verkið er aðeins sýnt í febrúar. Skrímslið litla systir mín segir frá strák sem hefur nýlega eignast litla systur. Hann kemst reyndar fljótlega að því að hún er ekkert venjulegt barn heldur skrímsli sem ætlar að éta mömmu...

Read More

Listahátíðin Æringur í Frystiklefanum í Rifi 2012

Nú í ár mun listahátíðin Æringur koma sér fyrir í Frystiklefanum norðanmeginn við Snæfellsnes í sjávarþorpinu Rifi. Hátíðin er staðbundin og munu listamennirnir dvelja um 10-14 daga á staðnum við vinnslu á verkum sínum, verða fyrir áhrifum, anda að sér söltu sjávarloftinu og upplifa einstaka náttúru sem Snæfellsnes hefur upp á að bjóða. Opnun hátíðarinnar verður laugardaginn 7. júlí. Frystiklefinn er leikhús í uppbyggingu sem eitt sinn þjónaði afurðum hafsins en hefur nú fengið upplyftingu og bíður alla leikhópa, danshópa og listamenn velkomin til starfa. Rýmið er stórt og býður upp á marga möguleika og hvetjum við því myndlistarmenn...

Read More

Leikhúslýsing fyrir áhugaleikhús

Dagana 4. og 5. febrúar veður haldið námskeið í leikhúslýsingu fyrir áhugaleikhús í Tæknikskólanum við Háteigsveg (Gamla stýrimannaskólanum) Námskeiðið er ætlað fólki á öllum aldri og eru kennd helstu atriði við hönnun og uppsetningu lýsingar fyrir leiksýningar, tónleika, ráðstefnur o.fl. Fjallað er um eðlisfræði ljóss og litafræði, hugmyndafræði lýsingar, upphengingu og staðsetningar, leikhúsljós og önnur tæki, skipulag, teikningar og fleira. Kennari er Benedikt Axelsson lýsingahönnuður. Hægt er að sækja um námskeiðið hér Tími: laugardaginn 4. febrúar og sunnudaginn 5. febrúar frá kl. 9 – 15.
Heildartími námskeiðs: 18 kennslustundir/12 klukkustundir.Námskeiðsgjald: 29.500 kr.Staðsetning: Tækniskólinn, Háteigsvegi (gamli Sjómannaskólinn), Hátíðarsalur 2. hæð til vinstri....

Read More

Sómi þjóðar sýnir Ég er vindurinn

Leikfélagið Sómi þjóðar frumsýnir í Þjóðleikhúskjallararnum sunnudaginn 29. janúar Ég er vindurinn, nýtt verk eftir Jon Fosse. Leikstjóri er Ingibjörg Huld Haraldsdóttir en leikhópinn mynda Hannes Óli Ágústsson og Hilmir Jensson, sem einnig þýðir verkið. Ég er Vindurinn frá árinu 2007 er nýjasta verk Fosse og gæti jafnframt verið það síðasta en Fosse gaf nýlega út þá yfirlýsingu að hann væri alfarið hættur að skrifa fyrir leikhús. Sjórinn, kaldur og hættulegur, rólegur og víðáttumikill. 2 menn á ferðalagi án áfangastaðar. „Allt er svo sýnilegtþað er hægt að sjá alltþað sem fólk reynir að fela með því sem það segirhlutir...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert