Author: lensherra

Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir Tveir tvöfaldir

Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir Tveir tvöfaldir eftir Ray Cooney í þýðingu Árna Ibsen á opnunardegi Sæluvikunnar þann 29. apríl næstkomandi í Félagsheimilinu Bifröst á Sauðárkróki. Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir. Leikfélag Sauðárkróks hefur áður sýnt leikrit eftir Ray Cooney, Með vífið í lúkunum, 2006 og Viltu finna milljón?, 2008, auk þess að frumflytja Ray Cooney á íslensku leiksviði árið 1978 er félagið setti upp leikritið Eltu mig, félagi. Tveir tvöfaldir er dæmigerður farsi sem gerist á Hótel Höll, en þangað fer alþingismaðurinn Ormur Karlsson ásamt konu sinni Pálínu til að slaka á undir lok þingsins. Við bætist Hreinn, aðstoðarmaður Orms og...

Read More

Harpa Arnardóttir kennir trúðinn

Leiklistarskóli Bandalags ísl. leikfélaga auglýsir: Harpa Arnardóttir leikkona hefur tekið að sér að kenna á Trúðanámskeiði Leiklistarskólans í stað Ágústu Skúladóttur. Harpa Arnardóttir stundaði nám í málaradeild Myndlistar- og handíðaskóla Íslands 1984-1986 og útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands 1990. Hún hlaut Grímuna 2009 fyrir leik sinn í Steinar í djúpinu, en auk þess hefur hún fimm sinnum verið tilnefnd til Grímunnar sem besta leikkona í aðalhlutverki; fyrir leik sinn í And Björk of course (Borgarleikhúsið) 2003, Sporvagninn Girnd (Borgarleikhúsið) 2004, Dubbeldusch (Vesturport/Leikfélag Akureyrar) 2008, Dauðasyndirnar (Borgarleikhúsið) 2009 og Steinar í djúpinu (Lab Loki/Hafnarfjarðarleikhúsið) 2009. Hún hefur tvívegis verið tilnefnd til...

Read More

Ekki einleikinn samningur hjá Act alone

Hin rótgróna einleikjahátíð Act alone verður haldin helgina 9.–12. ágúst á Suðureyri. Fisherman á Suðureyri og Act alone hafa gert með sér fimm ára samning um að byggja hátíðina upp svo hún festi sig enn frekar í sessi sem einn af hornsteinum í menningarflóru Vestfirðinga. Þessu tengt verður stofnað til vináttusambands við leikhópinn Vesturport um frekari þróun á hátíðinni. Enn er unnið að dagskrá fyrir komandi hátíð en hún verður endanlega kynnt 1. júlí. Sem dæmi úr dagskrá má nefna danssýninguna Superhero sem státar af Grímuverðlaunum og svo verður einleikin tónlist alla helgina og þar má nefna Svavar Knút...

Read More

Athyglisverðasta áhugaleiksýningin leikárið 2011-12

Ellefu leikfélög, með jafn margar sýningar, sækja um að koma til greina sem Athyglisverðasta áhugaleiksýningin leikárið 2011-12 og sýna verk sitt í Þjóðleikhúsinu í lok leikárs. Í dómnefnd Þjóðleikhússins í ár sitja Tinna Gunnlaugsdóttir, þjóðleikhússtjóri, Melkorka Tekla Ólafsdóttir, leiklistarráðunautur Þjóðleikhússins og Jana María Guðmundsdóttir, leikkona. Val dómnefndar verður tilkynnt á aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga sem haldinn verður á Ísafirði dagana 4.-6. maí. Eftirtalin félög sóttu um með þessi verk: 1. HugleikurSá glataði eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur í samvinnu við leikstjóra og leikhópinnLeikstjóri er Ágústa Skúladóttir 2. Leikdeild U.M.F. SkallagrímsSkugga-Sveinn eftir Matthías JochumssonLeikstjóri er Rúnar Guðbrandsson 3. Leikdeild U.M.F. EflingarÍ...

Read More

Lokasýning á Andláti við jarðarför

Miðvikudaginn 25. apríl sýnir Leikfélag Mosfellssveitar síðustu sýningu sína á leikritinu Andlát við jarðarför en það er byggt á bresku kvikmyndinni Death at a funeral eftir Dean Craig. Leikstjóri er Guðný María Jónsdóttir og vann hún handrit verksins ásamt Maríu Guðmundsdóttur. Sýningin hefst klukkan 20.00. Leikritið fjallar um fjölskyldu sem hittist í jarðarför fjölskylduföðurins. Eldri bróðirinn, sem enn býr hjá foreldrum sínum ásamt konu sinni, tekur að sér  að skipuleggja jarðarförina og flytja minningarorðin. Það sem upphaflega virtist vera tiltölulega einfalt verkefni verður honum hins vegar fjötur um fót þegar alls kyns óvæntar uppákomur gera jarðarförina að algjörri matröð....

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert