Author: lensherra

Sá glataði á NEATA-hátíð í Sønderborg

Dagana 31. júlí til 5. ágúst fer fram leiklistarhátíð Norður-evrópsku áhugaleikhússamtakanna, NEATA, í Sønderborg í Danmörku. Fulltrúi Íslands á hátíðinni verður Hugleikur með sýninguna Sá glataði í leikstjórn Ágústu Skúladóttur og er sú sýning opnunarsýning hátíðarinnar. Hátíðin stendur yfir í 5 daga og munu þar um 200 manns frá Norðurlöndunum, Eystrasaltslöndunum og víðar frá Evrópu sýna sitt og sjá annarra. Alls verða 12 leiksýningar á hátíðinni en einnig verða haldnar 3 leiksmiðjur og gagnrýnendur munu fjalla um allar sýningar hátíðarinnar. NEATA-hátíðir eru haldnar annað hvert ár og róterar það á milli aðildarlanda hvar hún er haldin í hvert sinn....

Read More

Pétur og úlfurinn í Selskógi

Þann 20. júlí nk. mun Leikfélag Fljótsdalshéraðs frumsýna leikritið Pétur og úlfurinn. Leikritið verður sýnt á sviðinu í Selskógi sem er hluti af Egilsstaðaskógi og eru það unglingar félagsins sem leika hlutverkin í verkinu en allir leikarar eru á aldrinum 13-16 ára. Verkið er byggt á tónverkinu Pétur og úlfurinn og  hefur Pétri Ármannssyni tekist að búa til mjög skemmtilega leikgerð upp úr tónverkinu þar sem hinir ungu leikrarar voru afar virkir í sköpunarferlinu. Leiksstjóri er heimamaðurinn Pétur Ármannsson en hann er nýútskrifaður sem leikari úr Listaháskóla Íslands og aðstoðarmaður leiksstjóra er Brogan Jayne Davison. Leikmyndahönnuður er Unnur Sveinsdóttir....

Read More

Áheyrnarpróf fyrir ASAD

Þann 21. júlí næstkomandi mun Leiklistar og leikjstórnarskólin ASAD (The Academy of the Science of Acting and Directing) halda inntökupróf í Reykjavík. Skólinn er staðsettur í Norður London og byrjar skólárið í byrjun september. Þeir sem hafa áhuga eða vilja frekari upplýsingar er bent á heimasíðuna www.asad.org.uk. Einnig er hægt að senda tölvupóst á info@asad.org.uk eða hringja beint í 0044 0207 272...

Read More

Gestaboð Hallgerðar í Sögusetrinu á Hvolsvelli

Fimmtánda júlí sl. var frumsýndur í Sögusetrinu á Hvolsvelli nýr frumsaminn einleikur um Hallgerði langbrók. Leikurinn heitir Gestaboð Hallgerðar og er eftir Hlín Agnarsdóttir sem jafnframt er leikstjóri. Með hlutverk Hallgerðar fer Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona og Ómar Smári Jónsson leikur vinnumann  hennar, Melkó. Leikurinn verður sýndur í Söguskálanum í Sögusetrinu á Hvolsvelli eins lengi og aðsókn og áhugi leyfir. Verkið gerist í nútímanum. Hallgerður er listakona og býr að  Hlíðarenda í Fljótshlíð og svo skemmtilega vill til að ævi hennar og lífshlaup er nánast spegilmynd af ævi Hallgerðar langbrókar Höskuldsdóttur sem þar bjó fyrir rúmum eitt þúsund árum. Gunnar eiginmaður...

Read More

Vinnslan #2 á Norðurpólnum

Laugardagskvöldið 14. júlí mun Vinnslan vera sett upp í annað sinn á Norðurpólnum. Sú fyrsta var haldin 19. maí síðastliðinn við afar góðar undirtektir. Um 30 listamenn settu þá upp verk sín og yfir 250 áhorfendur mættu til þess að upplifa og njóta hinna ýmsu verka. Húsið verður svo opið fyrir áhorfendur frá klukkan 20 til 01. Á þeim tíma gerum við ráð fyrir að a.m.k. 20 listamenn/hópar sýni verk/hugmyndir sínar í 11 rýmum Norðurpólsins. Áhorfendur fá því að upplifa sviðslistarverk, innsetningar, myndlist, vídeóverk, tónleika og fleira. Stofnendur Vinnslunnar eru Guðmundur Ingi Þorvaldsson (Leikhúslistamaður), Vala Ómarsdóttir (Leikhúslistamaður), María Kjartansdóttir...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert