Author: lensherra

Borgarinnan frumsýnd á Akureyri

Í tilefni afmælis Akureyrarbæjar setur Litla Kompaníið, í samstarfi við Leikfélag Akureyrar, upp leikverkið Borgarinnan eftir Sögu Jónsdóttur sem jafnframt er leikstjóri. Verkið verður frumsýnt í Samkomuhúsinu þann 30. ágúst en það er byggt á atriðum úr ævi Vilhelmínu Lever, fyrstu konunnar sem kaus til bæjarstjórnar á Akureyri, 19 árum áður en konur fengu kosningarétt! Sýnt er í Samkomuhúsinu. Sýningin spannar rúmlega 40 ár þar sem við kynnumst mörgum litríkum persónum og gluggum inn í stórmerkilega viðburði í lífi Vilhelmínu sem og sögu Akureyrar. Aðeins verða sýndar örfáar sýningar og eru þær sem hér segir: 30. ágúst – Frumsýning31....

Read More

Ítrekun – Hverjir vilja fara til Monaco 2013?

Bandalag íslenskra leikfélaga auglýsir eftir leiksýningu til að sækja um að fara á alþjóðlegu leiklistarhátíðina Mondial du Theatre í Monaco dagana 19.-28. ágúst 2013. Umsóknum skal skilað fyrir 1. september nk. Hátíðahaldarar í Monaco bjóða leikhópi sem telur allt að 10 manns frítt uppihald í 4 daga. Hópurinn má vel vera stærri og stoppa lengur, þá þarf bara að borga eitthvað aukalega fyrir það. Ferðakostnaður er greiddur af þátttakendum sjálfum. Sýningin má ekki vera lengri en 60 mín. og í reglum hátíðarinnar segir; „„strongly advised to present predominantly visual performances““. IATA (International Amateur Theatre Association) stendur fyrir alþjóðlegum leiklistarhátíðum...

Read More

Kameljón frumsýnt í Kúlunni

Miðvikudaginn 22. ágúst verður leikverkið Kameljón eftir Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur, Friðgeir Einarsson og Margréti Örnólfsdóttur frumsýnt í Kúlunni, litla sviði Þjóðleikhússins. Verkið er einleikur og fer Álfrún Helga Örnólfsdóttir með hlutverk Kameljónsins. Texta verksins gerði Margrét Örnólfsdóttir og Friðgeir Einarsson leikstýrir. Einstök aðlögunarhæfni og sífelld hamskipti valda því að Kameljónið veit ekki lengur hver grunnlitur þess er. Hefur hún, Kameljónið, eitthvert eiginlegt sjálf eða er hún aðeins endurspeglun þeirra sem á vegi hennar verða í lífinu? Lituð af umhverfinu sem hún hrærist í hverju sinni? Hún ákveður að hafa uppi á sjálfri sér, hvað sem það kostar, því maður...

Read More

Kexleikhúsið frumsýnir 52

Kexleikhúsið frumsýnir 22. ágúst sérstæða og nýstárlega sýningu í Gym & Tonic salnum á  Kex Hostel. Verkið heitir 52 (52 Pick-up á frummálinu) og er kanadískt að uppruna, eftir TJ Dawe og Ritu Bozi. Það var frumsýnt á Fringe-hátíðinni í Montreal árið 2000, þar sem verkið hlaut Chapter’s Best Text verðlaunin. Verkið hefur síðan verið sýnt víða um heim við góðar undirtektir, m.a. í Bandaríkjunum, Ástralíu, Bretlandi, Singapore og nú er komið að Íslandi. Leikarar eru Hannes Óli Ágústsson og Melkorka Óskarsdóttir sem einnig þýddi verkið. Leikstjóri Vignir Rafn Valþórsson. Verkið segir frá ástarsambandi karls og konu, frá upphafi...

Read More

Gauragangur í Mosfellsbæ

Föstudaginn 10. ágúst var söngleikurinn Gauragangur frumsýndur í Bæjarleikhúsinu. Það eru 13-16 ára nemendur Leikgleði, sumarnámskeiða Leikfélags Mosfellssveitar, sem taka þátt í uppsetningunni ásamt hljómsveit. Kennarar í sumar hafa verið Sigrún Harðardóttir, Agnes Wild, Eva Björg Harðardóttir, Elísabet Skagfjörð og Halldór Sveinsson. Söngleikurinn Gauragangur fjallar um Orm Óðinsson, ungan sjálfskipaðan snilling, fjölskyldu hans og vini. Sagan, sem er eftir Ólaf Hauk Símonarson, kom fyrst út árið 1988 en á samt mjög vel við árið 2012. Það sama á við um tónlist hljómsveitarinnar Nýdönsk sem samin var fyrir söngleikinn árið 1994. Það má segja Bæjarleikhúsið sé helgað ungu fólki á...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert