Lorca og skóarakonan á Sólheimum

skoarakonan

Leikfélag Sólheima sýnir Lorca og skóarakonan í íþróttaleikhúsinu á Sólheimum. Leikgerðin er unnið í samstarfi við AFANIAS leikhópinn frá Madrid. Sólheimar túlka stemningu frá Spáni og byggja á verki eftir Federico García Lorca og AFANIAS túlka stemningu frá Íslandi og byggja á verkum Halldórs Laxnes og Auðar Jónsdóttur.  Verkefnið sem kallast INSIDE er styrkt af […]

Rjúkandi ráð frumsýnt á Sauðárkróki

rjukandirad

Í gærkvöldi, sunnudaginn 27. apríl, var leikritið Rjúkandi ráð frumsýnt hjá Leikfélagi Sauðárkróks. Verkið var áður sýnt á Sauðárkróki fyrir 27 árum, en Leikfélag Sauðárkróks sýndi fyrst verk eftir þá Jónas Árnason og Stefán Jónsson, með þekktum söngdönsum Jóns Múla Árnasonar árið 1969 og var það Allra meina bót. Næst var Delerium Búbónis sýnt árið […]

Lokað föstudaginn 25. apríl!

Við vekjum athygli á að verslun og skrifstofa Bandalags íslenskra leikfélaga verða lokuð föstudaginn 25. apríl (og að sjálfsögðu líka á morgun, Sumardaginn fyrsta). Opnum eins og venjulega kl. 9.00 mánudaginn 28. apríl. Við óskum aðildarfélögum Bandalagsins og öllum okkar góðu viðskiptavinum Gleðilegs sumars og þökkum fyrir veturinn!  

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

augnsk_fors

Augnskuggapalettur frá Kryolan. Litabox á tveimur hæðum, samtals 20 litir, 10 mattir og 10 glimmer. Fallegir og endingargóðir litir, kremkennt pressað púður sem berist þurrt á augnalokið. Sumir litanna í boxinu hennta einnig vel sem kinnalitir. Boxið kostar 17.500 kr. Einnig eru við með þrjá staka liti, hvítan, svartan og gulan í 2,5 gr. dósum […]

Sitji guðs englar slær í gegn á Húsavík

englar

Sýningar standa nú  yfir hjá Leikfélagi Húsavíkur á leikritinu Sitji guðs englar. Þetta er leikgerð Illuga Jökulssonar upp úr þrem bókum Guðrúnar Helgadóttur; Sitji guðs englar, Saman í hring og Sænginni yfir minni. Leikstjórar eru Oddur Bjarni Þorkelsson og Margrét Sverrisdóttir. Uppselt hefur verið á allar sýningarnar 17 sem sýndar hafa verið. Sýnt verður fram […]

Revíukvöld á Melum

Hörgdælir stór

Föstudagskvöldið 25. apríl kl. 20:30 ætlar Leikfélag Hörgdæla, í samvinnu við Sögufélag Hörgársveitar, að sýna upptöku af revíunni Klúður & klaufaskapur frá árinu 1987 á Melum. Hvað gerðist í sveitinni á níunda áratug síðustu aldar? Manstu eftir J-listanum eða fiskeldinu?

Gull í tönn á Egilsstöðum

gull_i_tonn

Leikfélag Fljótsdalshéraðs frumsýnir nýtt íslenskt leikrit í Valaskjálf laugardaginn 26. apríl.  Um er er að ræða nýjasta verk Ásgeirs Hvítaskálds. Hann segir verkið hafa verið að gerjast til fjölda ára en hann fór þó ekki að skrifa það fyrr en hann flutti á Fljótsdalshérað. Gull í tönn segir frá gömlum hrossabónda sem hefur tilkynnt að […]

Lokað um páskana og 25. apríl

paskar

Leikhúsbúðin og skifstofa Bandalags íslenskra leikfélaga verða lokaðar yfir páskahátíðina og eins föstudaginn 25. apríl. Það verður því aðeins opið þriðjudag og miðvikudag (22. og 23.) í næstu viku. Við óskum ykkur öllum gleðilegra páska með von um að páskahretið sé þegar gengið yfir.

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

spray

Litað hárspray frá Kryolan. Þekjandi litir fyrir hár, skegg og hárkollur. Litirnir koma í 150 ml. úðabrúsum, fást í 24 litum og verðið er 1.800.- Einnig eigum við Glimmer spray í silfri og gulli í 150 ml. brúsum á kr. 1.375.- og blátt, rautt og grænt í 75 ml. brúsum á kr. 890.-. Glimmerinu má […]

Besti söngleikurinn í borginni

Það var með nokkuri eftirvæntingu sem ég fór á sýningu á 30 ára afmælissýningu Hugleiks sem er fremst í flokki áhugaleikhúsanna í Reykjavík og sýnir alltaf ný íslensk verk á hverju ári. Ég hef í gegnum tíðina séð mörg verka þeirra sem hafa oftar en ekki leitað fanga í sögu þjóðarinnar og verið sett fram […]

Frá Leiklistarskóla Bandalagsins

skolalogo200

Tvö pláss eru enn laus á námskeiðið Leikritun II í Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga í sumar. Kennari er Karl Ágúst Úlfsson. Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa sótt Leikritun I eða sambærilegt námskeið eða hafa umtalsverða reynslu af ritun og vinnslu leiktexta. Einkum eru þeir sem eru með verk í smíðum, hvort sem það er […]

Strákskrattinn snýr aftur!

emil2013

Orkuboltinn hann Emil Svenson situr aldrei lengi kyrr og er kominn aftur og verður í fullu fjöri í Freyvangi um páskana. Þar sem sþýningum var hætt í janúar fyrir fullu húsi var ákveðið að taka sýninguna upp aftur og sýna 5 sinnum dagana 16., 17. og 19. apríl. Svo ef þið sáuð ekki Emil í […]

Skrattinn úr Sauðarleggnum í Þjóðleikhúsinu

skrattinn

Skrattinn úr Sauðarleggnum er dans og tónleikaverk þar sem forn kveðskapur og íslensk menning er sameinuð samtímadansi og dægurtónlist. Þrír sviðslistamenn skoða eðli og uppyggingu bragarhátta, snúa þeim á hvolf með dansi og leysa loks kveðskapinn af hólmi. Gullfoss og Gleðibankinn, Hárkollur og Hávamál, Vikivakar og vögguvísur sameinast í þessu óútreiknanlega sviðsverki. Útkoman er íslenskur rímnakabarett þar […]

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

vatnslitapallettur

Vinsælasta vörutegundin í versluninni okkar frá upphafi eru vatnslitirnir frá Grimas í Hollandi, en þeir eru framleiddir undir ströngu gæðaeftirliti og innihalda engin skaðleg efni. Fjölmargir grunn- og leikskólar allt í kring um landið eru fastir kúnnar hjá okkur og segir það meira en mörg orð um gæði litanna, en leik- og grunnskólakennarar vilja auðvitað […]

Spegilbrot í Tjarnarbíói

spegilbrot.txt.600x400

Sviðslistahópurinn Spegilbrot býður leikhúsgestum í ferðalag um króka og kima Tjarnarbíós í sýningunni Spegilbrot, sem frumsýnd verður 16. apríl. Hér er á ferðinni óhefðbundið upplifunarleikhús þar sem ólíkum listformum, svo sem leiklist, myndlist, tónlist, vídjólist og gjörningalist, er blandað saman. Gestir upplifa leikhústöfra jafnt á stóra sviði Tjarnarbíós, í stigagöngum þess sem og í óvæntum […]

Villa & sjóræningjarnir á Seyðisfirði

villi

Leikfélag Seyðisfjarðar frumsýninr á laugardaginn leikritið Villa & sjóræningjarnir. Höfundur texta og tónlistar er Ágúst T. Magnússon sem einnig leikstýrir verkinu.Öll börn, 12 ára og yngri, fá frítt inn á sýninguna.

IATA/AITA hátíð í Belgíu 2015

logo

Dagana 6.-13. júlí 2015 verður alþjóðleg leiklistarhátið áhugamanna haldin í Westouter í Belgíu. Hátíðin er haldin annað hvert ár víðsvegar um heiminn, sú síðasta var haldin í Monaco 2013. Hátíðin er á vegum Alþjóða áhugaleikhúsráðsins IATA/AITA. Til hennar er boðið leiksýningum alls staðar að út heiminum og lögð áhersla  á að allar heimsálfur eigi þar […]

Rjúkandi ráð á Sauðárkróki

rjukandi_rad

Leikfélag Sauðárkróks æfir nú leikritið Rjúkandi ráð eftir Jónas Árnason og Stefán Jónsson með lögum eftir Jón Múla Árnason. Í gamanleiknum, sem stundum hefur verið kallaður smákrimmaóperetta, fáum við að kynnast Stefáni Þ. Jónssyni veitingamanni og lánveitanda, en hann rekur veitingahúsið Stebbakaffi. Hann leggur á ýmis ráð til að græða peninga og verða áhorfendur vitni […]

Common Nonsense frumsýnir Dagbók Jazzsöngvarans

dagbok_jazz

Föstudaginn 11. apríl frumsýnir Common Nonsense, í samstarfi við Borgarleikhúsið, Dagbók Jazzsöngvarans á Nýja sviðinu. Hér er á ferðinni nýtt, íslenskt verk úr smiðju þeirra sem færðu okkur Tengdó, Grímusýningu ársins 2012. Valur Freyr Einarsson er höfundur verksins en leikstjórn er í höndum Jóns Páls Eyjólfssonar.

Hamlet litli í Borgarleikhúsinu

hamletlitli

Laugardaginn 12. apríl kl. 14 frumsýnir Borgarleikhúsið verkið Hamlet litla á litla sviðinu þar sem Bergur Þór Ingólfsson leikstýrir þeim Kristínu Þóru Haraldsdóttur, Sigurði Þór Óskarssyni & tónlistarkonunni Kristjönu Stefánsdóttur. Leikhópurinn tekur þessa frægu harmsögu og gerir hana skiljanlega fyrir börn og fullorðna. Sýningin er tilvalin fyrir eldri en 11 ára aldur. Hvernig er að […]

Jörundur á Ísafirði

jorundur

Litli leikklúbburinn á Ísafirði frumsýnir í Edinborgarhúsinu laugardaginn 12. apríl kl. 20.00 leikrit Jónasar Árnasonar Þið munið hann Jörund.  Leikstjóri er Víkingur Kristjánsson og með honum er 15 manna hópur sem leikur, syngur, dansar og spilar og segir okkur þessa sögu, sem lifað hefur með þjóðinni í meira en 2 aldir. „Sem kóngur ríkti hann […]

Anna frá Stóru Borg – Saga af kvenskörungi

anna

Leikfélag Austur- EyfellingaAnna í Stóru-Borg í leikgerð  Margrétar TryggvadótturLeikstjóri: Sveinn Óskar Ásbjörnsson Það ríkti sannarlega mikil eftirvænting meðal áhorfenda í Heimalandi undir Eyjafjöllum síðastliðinn föstudag, enda voru þeir mættir á frumsýningu á leikritinu Anna í Stóru-Borg. Leikrit sem byggir á sögu sem Jón Trausti gerði ódauðlega í bók sinni Anna frá Stóru-Borg. Sögusviðið eru Eyjafjöllin […]

Aðalfundur í Vestmannaeyjum 3. og 4. maí

bil_island_logo

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn í Menningarhúsinu Kviku í Vestmannaeyjum dagana 3. og 4. maí 2014. Leikfélag Vestmannaeyja býður öllum fundargestum í leikhús á föstudagskvöldinu á sýninguna Don´t stop believing í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Tilkynnið þátttöku fyrir 16. apríl.

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

aquacolor

Aquacolor Soft Cream eru vatnsuppleysanlegir litir frá Kryolan með kremkenndri áferð. Þeir koma í hagkvæmum plastflöskum með pumpu svo auðvelt og fljótlegt er að bera þá á t.d. þegar lita þarf stóra fleti. Hver litur er 50 ml. og kostar 2.575.- Aquacolor Soft Cream fæst í 15 litum. Hægt er að þynna litina með vatni. […]

Skilaboðaskjóðan frumsýnd á Hólmavík

skilabodaskjoda

Óhætt er að segja að félagsheimilið á Hólmavík hafi iðað af tónlist, lífi, leik og fjöri undanfarnar vikur en þar hafa mætt ýmsar furðupersónur til að taka þátt í Skilaboðaskjóðunni, en hún verður frumsýnd laugardaginn 5. apríl. Þetta skemmtilega verk er eftir Þorvald Þorsteinsson og tónlist eftir Jóhann G. Jóhannsson og var frumflutt í Þjóðleikhúsinu […]

Vorið vaknar hjá L.M.A.

vorid_vaknar

Leikfélag menntaskólans á Akureyri frumsýninr rokksöngleikinn Vorið Vaknar eftir Duncan Shaeik og Steven Sater. Söngleikurinn er byggður á leikritinu Vorið Vaknar eftir Frank Wadekind fráárinu 1891. Auðrún Aðalsteinsdóttir og Emilía Baldursdóttir þýddu verkið og leikstjóri er Jón Gunnar.  

Leikfélag Hofsóss frumsýnir Blúndur og blásýru

blundur_og_blasyra1

Föstudaginn 4. apríl kl. 20 frumsýnir Leikfélag Hofsóss gamanleikinn Blúndur og blásýra eftir Joseph Kesselring í þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar. Sýnt verður í félagsheimilinu Höfðaborg. Alls taka 11 leikendur þátt í sýningunni og leikstjóri er Ármann Guðmundsson.

Uppsprettan; Opnar leikæfingar í Tjarnarbíói

uppsprettan2

Uppsprettan verður haldin í annað sinn í Tjarnarbíói mánudaginn 7. apríl.Formið er þannig að leikarar og leikstjórar fá ný stuttverk til að vinna með sólarhring fyrir sýningu. Þau hafa því einungis þennan eina sólarhring til að kynna sér handritið og átta sig á möguleikum þess. Þremur tímum fyrir sýningu hittast listamennirnir í fyrsta sinn og […]

Málþing um einhverfu í Borgarleikhúsinu 5. apríl kl 17

furdulegtmalthing

Opið málþing um einhverfuróf á Stóra sviðinuHaldið í tilefni af Alþjóðlegum degi einhverfu (2. apríl) og í tengslum við sýninguna Furðulegt háttalag hunds um nóttFjórir fyrirlestrar – Dr. Evald Sæmundsen, Jarþrúður Þórhallsdóttir, Laufey I. Gunnarsdóttir og Ingibjörg Elsa Björnsdóttir og pallborðsumræður að þeim loknumUmræður um kvöldið í kjölfar sýningará Furðulegu háttalagi hunds um nótt með […]

Heimsfrægur prins í Kúlunni

litli_prinsinn2

Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 5. apríl í Kúlunni leikritið Litli prinsinn eftir Antoine de Saint-Exupéry í leikgerð og leikstjórn Stefáns Halls Stefánssonar. Litli prinsinn er eitt ástsælasta bókmenntaverk síðustu aldar, en bókin kom fyrst úr árið 1943 í Frakklandi. Síðan þá hefur Litli prinsinn farið sigurför um heiminn en verkið hefur verið þýtt á yfir 250 […]

Hugleikur frumsýnir Stund milli stríða

Stund milli stríða er nýr íslenskur söngleikur sem leikfélagið Hugleikur frumsýnir i Tjarnarbíói 5. apríl. Alls eru áætlaðar sjö sýningar. Sögusviðið er Reykjavík millistríðsáranna, sem reynist eiga sér merkilega margar og sláandi hliðstæður í nútímanum. Haustið 1932 streyma stúlkur utan af landi í bæinn til að ganga í húsmæðraskóla. Þær eru uppfullar af spenningi og bjartsýni […]

Fullkomið brúðkaup á Dalvík

fullkomidbrudkaup

Undanfarnar vikur hefur mikið gengið á í Ungó á Dalvík þar sem Leikfélag Dalvíkur hefur æft af krafti leikritið Fullkomið brúðkaup eftir Robin Hawdon. Verkið er farsi af bestu gerð og gerist í aðdraganda hins „fullkomna“ brúðkaups sem reynist kannski ekki svo fullkomið þegar öllu er á botnin hvolft. Aðalsteinn Bergdal leikstýrir hópnum af stakri prýði […]

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

litahjol2

Supracolor eru kremlitir frá Kryolan. Þeir hafa reynst vel í áratugi og eru alltaf í þróun. Þeir eru framleiddir úr viðurkenndum olíum og ofnæmisprófuðum litarefnum. Við fengum nýlega 12 og 6 lita box á mjög góðu verði. Margar litasamsetningar eru í boði og verðið er 6.800 fyrir stærri boxin og 2.500 fyrir þau minni. Þetta […]

Í beinni á Breiðumýri

i_beinni

Laugardaginn 22. mars sl. frumsýndi Leikdeild Umf. Eflingar í samkomuhúsinu á Breiðumýri glænýtt íslenskt verk, Í beinni, eftir Hörð Þór Benónýsson með tónlist eftir Jaan Alavere í leikstjórn Jennýjar Láru Arnórsdóttur og tónlistarstjórn Jaan Alavere og Péturs Ingólfssonar.Má segja að verkið sé gamandrama þar sem m.a. er fjallað á grátbroslegan hátt um fréttamat nútímans, auk […]

Revíukvöld á Melum

Hörgdælir stór

Föstudagskvöldið 28. mars kl. 20.30 ætlar Leikfélag Hörgdæla, í samvinnu við Sögufélag Hörgársveitar, að sýna upptöku af revíunni Reyttar fjaðrir frá árinu 1985 á Melum.Hvað gerðist í sveitinni á fyrri hluta níunda áratugar síðustu aldar? Manstu eftir kvenfélagsfundinum?Gómsætt vöfflukaffi innifalið í miðaverði (500 kr.) og verzlunarstjórinn mætir á svæðið með sinn varning.

Ávörp á alþjóðaleiklistardaginn 27. mars 2014

jon_atli_jonasson

Það var rúmenska leikskáldið Eugéne Ionesco sem sagði að leiksviðið væri staður þar sem manneskjan mætti sjálfri sér. Það sem er í húfi við þau kynni, mín orð ekki hans, er reynslan sem má draga af þeirri viðkynningu. Við hittum okkur sjálf á sviðinu. Stundum í líki fljúgandi barnfóstru eða sjómanns sem syndir í átt […]

Tjarnarbíó kynnir Útundan

utundan

Tjarnarbíó frumsýnir leikritið Útundan eftir Alison Farina McGlynn í uppsetningu Háaloftsins fimmtudaginn 10. apríl nk. Áhrifamikið og nærgöngult leikrit um sársaukann, örvæntinguna og vonina þegar það eðlilegasta og náttúrlegasta af öllu í lífinu er orðið heitasta óskin, fjarlægur draumur, takmark sem kannski mun aldrei nást.

Skálmöld – Tónleikar & trúðar

skalmold_baldur

Þungarokkararnir í Skálmöld ætla að henda leikmyndunum út af Stóra sviði Borgarleikhússins, rífa gat á búninginn hjá leikurunum og hækka í Marshall­mögnurunum. Skálmöld og listafólk Borgarleikhússins taka höndum saman og magna upp norrænan seið með vænum skammti af þungarokki maríneruðum í leikhúsinu. Sagan er Baldur, sem Skálmöld rakti svo listilega á samnefndum diski sveitarinnar og […]

Furðulegt háttalag hönnuða

honnudir

Í dag, mánudaginn 24. mars kl. 16-18 verður opnun sýningar í forsal Borgarleikhússins þar sem fjórtán grafískir hönnuðir sýna sína eigin útgáfu af plakati fyrir leikritið Furðulegt háttalag hunds um nótt sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu í mars. Fjórtán listamenn voru valdir og fengu þeir bókina Furðulegt háttalag hunds um nótt til að lesa og […]

Opnunarhátíð nýs Tjarnarbíós

logo

29. mars næstkomandi heldur Tjarnarbíó, í samvinnu við Vinnsluna, glæsilega opnunarhátíð, þar sem listamenn munu sýna verk í hverju rými hússins, en þetta gamla leikhús leynir sko á sér! Hátíðin hefst kl. 19.00 en húsið opnar kl. 18.30. Tjarnarbíó er ekki bara lítið leikhús við Tjörnina, heldur lifandi vettvangur sköpunar og miðstöð allra listforma, þar […]