Ást í meindýrum
Leikfélag Kópavogs frumsýnir leikdagskrána Ást í meindýrum fimmtudaginn 28. maí kl. 20.00. Þættirnir sem verða fluttir eru Ást í hraðbanka, Á veröndinni einn bjartan vormorgun, Bóksalinn, Líflína og Meindýr. Níu leikarar undir stjórn þriggja leikstjóra taka þátt. Dagskráin verður aðeins sýnd tvisvar og verður seinni sýningin laugardaginn 30. maí kl. 20.00. Félagsmenn eiga að venju […]
Opinn samlestur á At
Miðvikudaginn 27. maí kl 10:05 verður opinn samlestur í forsal Borgarleikhússins á verkinu At eftir Mike Bartlett. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk þess […]
Eldhúsið í Tjarnarbíói
Jo Strømgren Kompani sýnir Eldhúsið í Tjarnarbíó laugardaginn 23. maí kl. 14.00. Stórskemmtileg barnasýning með Ívari Sverrissyni í aðalhlutverki. Leiksýningin Eldhúsið segir frá eldri manni og lítilli stelpu, tveimur ólíkum persónum, sem finna autt hús. Þau vilja bæði búa í húsinu en það er óljóst hver var fyrri til að finna það. Upphefst galsafullur leikur um það hver […]
Möguleikhúsið frumsýnir Hávamál
Á tíu ára afmæli Möguleikhússins árið 2000, var leikverkið Völuspá eftir Þórarin Eldjárn frumsýnt í Tjarnarbíói á Listahátíð í Reykjavík. Sýningin hlaut góðar viðtökur, vann til Grímuverðlauna og var sýnd á leiklistarhátíðum viða um lönd. Nú fagnar Möguleikhúsið 25 ára afmæli með uppsetningu á leikverkinu Hávamál eftir Þórarin Eldjárn og leikhópinn. Leikstjóri er Daninn Torkild […]
Götuleikhús og Listhópar Hins hússins
Hitt húsið býður upp á styrki til ungra listhópa á sumrin. Ungu fólki gefst kostur á að sækja um og koma með hugmyndir að skapandi verkefnum og valdir hópar eða einstaklingar fá síðan tækifæri til að vinna að hugmyndum sínum í átta vikur yfir sumartímann. Einnig stendur Hitt húsð fyrir Götuleikhúsi. Götuleikhúsið getur varla hafa farið […]
Umsóknareyðublöð vegna ríkisstyrks
Umsóknareyðublöð vegna ríkisstyrks til áhugafélaganna eru nú tiltæk hér á vefnum. Nálgist þau með þvi að smella hér.
Stórfyndin sakamál á Eyjaslóð
Eins og svo oft áður setur reykvíska leikfélagið Hugleikur á svið nýtt íslenskt verk sem ber það stórbrotna nafn „Stóra hangikjöts-, Orabauna- og rófumálið, taðreyktur sakamálatryllir“. Það gefur tóninn að alveg glimrandi skemmtun í litla leikhúsinu á Eyjaslóð. Anna Kristín Kristjánsdóttir, Sigrún Óskarsdóttur og Unnur Guttormsdóttir hafa sett saman skemmtilegt verk þar sem koma við […]
Listnámsbraut í Borgarholtsskóla
Á listnámsbraut í Borgarholtsskóla er boðið upp á fjölbreytt nám til að mæta vaxandi þörf fyrir menntun á sviði skapandi miðlunar. Samkvæmt nýrri námskrá lýkur námi á listnámsbraut með stúdentsprófi. Sérhæfðir áfangar í leiklist miða að þvi að gera nemendur hæfa til að fullvinna eigin hugmyndir á sviði leiklistar. Veitt er þjálfun í raddbeitingu, sviðshreyfingum […]
Fundargerð aðalfundar 2. maí 2015 í Hörgárdal
Fundargerð aðalfundar Bandalags íslenskra leikfélaga haldinn að Melum í Hörgárdal 2. maí 2015 1. Fundarsetning. Kosning 2ja fundarstjóra og 2ja fundarritara, sem taka þegar til starfa. Lögmæti fundarins kannað. Guðfinna Gunnarsdóttir, varformaður Bandalagsins, setti fundinn og stakk upp á Aðalsteini H. Hreinssyni og Stefaníu E. Hallbjörnsdóttur frá Leikfélagi Hörgdæla sem fundarstjórum og Ármanni Guðmundssyni, Leikfélaginu […]
Dansveisla í Reykjavík og á Akureyri
Í komandi viku býður Íslendinga sannkölluð dansveisla þegar tveir erlendir danshópar mæta á klakann með stórfenglegar sýningar. Þetta er annars vegar pólski danshópurinn Polish Dance Theatre og hins vegar norskur danshópur sem kennir sig við stofnanda hans, Jo Strømgren Kompani. Koma danshópanna til landsins tengist samstarfi sem hóparnir tveir eiga við Sjálfstæðu leikhúsin og verður […]
Sýning og málþing um Inuk
Rúm fjörutíu ár eru síðan leiksýningin Ínúk-maðurinn var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu árið 1974. Leikrit samið í hópvinnu til sýninga í skólum um eskimóa og áhrif hins vestræna heims á menningu þeirra. Leiksýningin sló í gegn bæði heima og heiman og var boðið að sýna á leikhúshátíðum vítt og breitt um heiminn. Næstu fjögur árin var […]
Stóra hangikjöts-, Orabauna- og rófumálið: Taðreyktur sakamálatryllir
Þann 9. maí 2015 lýkur leikfélagið Hugleikur leikári sínu með frumsýningu á nýju, hressu verki sem kallast Stóra hangikjöts-, Orabauna- og rófumálið: Taðreyktur sakamálatryllir. Leikurinn gerist á hrörlegu veitingahúsi sem verið er að gera upp. Allt hangikjöt, rófur og Orabaunir hafa horfið af landinu með dularfullum hætti. Eru álfarnir að hefna sín af því að […]
Síðbúin rannsókn í Tjarnarbíói
DRAP HANN MANN EÐA DRAP HANN EKKI MANN? Meðlimir leikhópsins Kriðpleirs hafa haft í bígerð nýja heimildarmynd um Jón Hreggviðsson sem var dæmdur fyrir böðulsmorð fyrir 330 árum. Þeir eiga ýmisskonar efni í handraðanum og geta ekki beðið eftir að kynna það fyrir áhorfendum. Þess vegna er orðinn til gamanleikurinn SÍÐBÚIN RANNSÓKN, bíó, leiksýning og einskonar endurupptaka á máli Jóns […]
Endatafl í Tjarnarbíói
Fjórar persónur lokaðar inni í byrgi. Eru þetta endalok jarðlífsins? Það er augljóst að mikið liggur undir. Allt lífið. „Það er fátt jafn hlægilegt og óhamingjan. Hún er það hlægilegasta í heiminum,“ segir ein þeirra. Í þessu tragíkómíska verki Samuels Beckett eru harðstjórn og undirgefni í stöðugu samspili. Spyrja má hvort taflmennska Becketts felist ekki […]
Upp, upp – Æskusaga Hallgríms Péturssonar
Stoppleikhópurinn sýnir leikritið „Upp, upp“ Æskusögu Hallgríms Péturssonar eftir Valgeir Skagfjörð í Gerðubergi miðvikudaginn 6. maí kl. 19.00. Aðeins þessi eina sýning og ókeypis inn! Leikritið segir frá uppvaxtarsögu Sr. Hallgríms Péturssonar og var skrifað í tilefni af 400 ára afmæli skáldsins. Verkið byggir að stærstum hluta á bókinni Heimanfylgju eftir Steinunni Jóhannesdóttur sem öðrum […]
Ronja í Þjóðleikhúsið
Sýning Leikfélags Mosfellssveitar á Ronju ræningjadóttur var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2015 af dómnefnd Þjóðleikhússins. Úrslitin voru kynnt á hátíðarkvöldverði í tengslum við aðalfund BÍL að Melum í Hörgársveit í kvöld. Í umsögn dómnefndar segir m.a. um sýninguna: „Sýning Leikfélags Mosfellssveitar á Ronju ræningjadóttur er heillandi og fjörug barnasýning þar sem fjölmargir þættir koma saman […]
Svipmyndir af aðalfundi BÍL 2015
Leiklistarvefurinn uppfærður
Löngu tímabær uppfærsla á Leiklistarvefnum er loks komin til framkvæmda. Uppfærslunni fylgja eðlilega töluverðar breytingar og einnig ýmsar nýjungar. Helsta nýjungin er opnun Leikhúsbúðarinnar, vefverslunar með ítarlegri og betri upplýsingum um leikhúsvörur af ýmsu tagi. Hægt er að panta vörur á vefnum og láta senda eða sækja í verslun.
Ný stjórn kjörin á aðalfundi
Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga sem haldinn var að Melum í Hörgársveit. Guðfinna Gunnarsdóttir var kjörin formaður en Þorgeir Tryggvason sem hafði setið sem formaður í fjögur kjörtímabil gaf ekki kost á sér áfram. Í aðalstjórn voru einnig kjörin Gísli Björn Heimisson og Ólöf Þórðardóttir. Áfram sitja Þráinn Sigvaldason og Bernharð […]
Aðalfundur BÍL settur
Aðalfundur BÍL var settur að Melum í Hörgárssveit kl. 9.00 í morgun. Rúmlega 60 fulltrúar frá 22 leikfélögum eru mættir á fundinn sem stendur fram á sunnudag.
Tvö dansverk sýnd í Tjarnarbíói 3. maí
Sunnudaginn 3. maí hyggst Katrín Gunnarsdóttir danshöfundur skoða lánaða líkama í tveimur ólíkum sólódansverkum. Macho Man er sólóverk fyrir danslistakonuna Sögu Sigurðardóttur. Kafað er ofan í sveitta undirheima bardagaíþrótta, Macho dansstíla og fitnesskeppna. Sýningin er afrakstur vinnustofu á Dansverkstæðinu og er styrkt af Hlaðvarpanum, menningarsjóði kvenna. Í Saving History er útgangspunkturinn persónuleg danssaga Katrínar síðustu […]
Tjarnarbíó
Bandalag sjálfstæðra leikhúsa rekur Tjarnarbíó. Húsnæðið hefur verið leigt út fyrir alls kyns starfsemi, aðallega til atvinnuleikhópa en líka áhugaleikhópa, menntaskóla, nemendasýninga og til tónleikahalds.
The Juilliard School
The Juilliard School í New York er einn þekktasti og virtasti sviðslistaskóli í heimi.
RADA
Royal Academy of Dramatic Arts
LAMDA
London Academy of Music and Dramatic Art.
Guildhall School of Music and Drama
Guildhall School of Music and Drama er einn af fremstu skólum heims á sviði sviðslistanáms.
Rose Bruford
Rose Bruford College of Theatre & Performance hefur boðið leiklistarprufir hérlendis um nokkurra ára skeið.
Leiklistardeild Kvikmyndaskóla Íslands
Kvikmyndaskóli Íslands rekur leiklistardeild.
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ býður upp á listnámsbraut til stúdentsprófs með áherslu á leiklist. Þar er farið í undirstöðuatriði leiklistar, sögu leiklistar, hinar ýmsu útfærslur leiklistarformsins og leikritagerðar.
ITI (International Theater Institute)
ITI (International Theater Institute) Alþjóðaleikhússtofnunin The International Theatre Institute. ITI er óháð stofnun leikhúsfólks á vegum UNESCO og alþjóðaleikhússsamfélagsins.
IATA
IATA – Alþjóðaáhugaleikhússhreyfingin International Amateur Theatre Association. IATA er alþjóðahreyfing áhugaleikhúsa í heiminum. Það hefur meðlimi í yfir 80 löndum.
NEATA
NEATA – Norður-evrópsku áhugaleikhússamtökin North European Amateur Theatre Association. NEATA er samtök sambanda áhugaleikhúsa á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.
Sönglist
Söng- og leiklistarskólinn Sönglist var stofnaður í ágúst árið 1998. Stofnendur og eigendur skólans eru þær Ragnheiður Hall og Erla Ruth Harðardóttir. Skólinn er starfræktur í samvinnu við Borgarleikhúsið.
Leikfélag Akureyrar
Leikfélag Akureyrar er elsta atvinnuleikhús landsins utan höfuðborgarsvæðisins og hefur verið atvinnuleikhús frá árinu 1973. Það er rekið með stuðningi Akureyrarbæjar á grunni samnings við Menntamálaráðuneytið. Saga Leikfélagsins spannar yfir heila öld en félagið var stofnað árið 1908. Leikfélag Akureyrar hefur sitt aðal aðsetur í fallegu húsi sem stendur nærri hjarta Akureyrar, Samkomuhúsinu, sem tekur […]
Borgarleikhúsið
Leikfélag Reykjavíkur er elsta leikfélag sem starfað hefur óslitið á Íslandi og er jafnframt eitt elsta starfandi menningarfélag landsins. Leikfélagið rekur Borgarleikhúsið að Listabraut 3 í Reykjavík. Leikhússtjóri er Kristín Eysteinsdóttir. Vefur Borgarleikhússins
Þjóðleikhúsið
Hverfisgata 19, 101 Reykjavík Sími miðasölu 551-1200 / Netfang midasala@leikhusid.is Frekari upplýsingar Stóra sviðið – Leikhúskjallarinn Leikhúsloftið – Miðasala Lindargata 7, 101 Reykjavík Kúlan – Kassinn – Skrifstofur Lindargata 3, 101 Reykjavík
Leynileikhúsið
Hjá Leynileikhúsinu geta ungir leiklistarunnendur sótt fjölbreytt og skapandi námskeið í leiklist. Á námskeiðunum er unnið er að því að efla framkomu, sköpunarkraft og tækni hvers og eins nemanda, með leikgleði og frumsköpun að leiðarljósi.
Listasmiðja barna Kramhúsinu
Listasmiðja barna hefur verið starfrækt í Kramhúsinu frá upphafi. Áhersla er lögð á leiklist, tónlist, hreyfingu og dans fyrir börn frá 3ja-16 ára aldurs.
Leikgleði Leikfélags Mosfellssveitar
Leikgleði Leikfélags Mosfellssveitar hefur verið starfrækt síðan 1996. Námskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 6-16 ára og er þeim yfirleitt skipt í aldurshópana 6-9 ára, 10-12 ára og 13-16 ára.
Kogan Academy of Dramatic Arts
Kogan Academy of Dramatic Arts hefur haldið leiklistarprufur fyrir væntanlega nemendur hérlendis undanfarin ár. Þeir auglýsa prufurnar yfirleitt snemma vors hér á vefnum.
