Dýrin frumsýnd í Hveragerði

Leikfélag Hveragerðis frumsýnir Dýrin í Hálsaskógi eftir Thorbjörn Egner í Leikhúsinu, Austurmörk 23, Hveragerði, laugardaginn 20. febrúar klukkan 14.00. Leikstjóri er María Pásldóttir og píanóleikari er Guðmundir Eiríksson. Frumsýning laugardaginn 20. febrúar kl. 14.00 2. sýning sunnudaginn 21. febrúar kl. 14.00 3. sýning laugardaginn 27. febrúar kl. 14.00 4. sýning laugardaginn 27. febrúar kl. 17.00 […]

Illska í Borgarleikhúsinu

Fimmtudaginn 18. febrúar frumsýnir Borgarleikhúsið í samstarfi við Óskabörn ógæfunnar verkið Illsku sem unnið er upp úr samnefndri skáldsögu Eiríks Arnar Norðdahl.  Verkið er sýnt á Litla sviðinu. Leikstjóri er Vignir Rafn Valþórsson. Leikarar eru Hannes Óli Ágústsson, Sólveig Guðmundsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Leikmynd gerir Brynja Björnsdóttir og búninga gerir Guðmundur Jörundsson. Agnes er […]

Kirsuberjagarðurinn á Selfossi

Leikfélag Selfoss æfir nú af fullum krafti Kirsuberjagarðinn eftir Anton Tsjekhov í þýðingu Jónasar Kristjánssonar. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson og er þetta annað verkið sem Rúnar setur upp með LS. Alls koma um 25 manns að sýningunni, þar af eru 16 leikarar og tveir leikandi hljóðfæraleikarar. Það er sérlega gaman frá því að segja að meðal […]

Dýrin í Hálsaskógi á Húsavík

Leikfélag Húsavíkur frumsýnir Dýrin í Hálsaskógi eftir Thorbjörn Egner, laugardaginn 13. febrúar. Jenný Lára Arnórsdóttir leikstýrir og Sigurður Illugason er tónlistarstjóri. Æfingar hafa staðið yfir frá því nóvember með góðu hléi í desember. Um 20 leikarar taka þátt í sýningunni um Dýrin sem allir þekkja. Áætlað er að sýna þrisvar í viku fram að páskum. […]

Brúðkaup í Aratungu

Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna frumsýnir þann 5. febrúar í Félagsheimilinu Aratungu leikritið „Brúðkaup“ eftir Guðmund Ólafsson í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundssonar. Æfingar hafa staðið yfir síðan fyrir jól og leikhópurinn er loks að sjá takmarkið fyrir augum sér með frumsýningunni. Leikritið er fjölskyldu-gaman-drama þar sem ýmislegt gengur á og er góð lýsing á brúðkaupi eins og […]

Leikfélag Hörgdæla æfir Með vífið í lúkunum

Á nýju ári hófust æfingar hjá Leikfélagi Hörgdæla á leikverkinu með „Vifið  í lúkunum“ eftir Ray Cooney. Leikverkið er gamanleikur af bestu gerð og fjallar um leigurbílstjóra sem heldur tvö heimili og tvær eiginkonur. Líkt og fyrirséð er kemst bílstjórinn í margvísleg vandræði við að viðhalda tvöföldu líferni sínu og spynnast inn í vef hans […]

Leikminjasafnið í Iðnó á Safnanótt

Leikminjasafn Íslands stendur fyrir uppákomu og kynningu í Iðnó á Safnanótt kl. 19-23 föstudaginn 5. febrúar  en segja má að Iðnó sé einhver elsti safngripur í leiklistarsögu Íslands. Húsið var reist af Iðnaðarmannafélagi Reykjavíkur á uppfyllingu út í Tjörnina árið 1896 og tekið í notkun árið eftir. Fóru fyrstu leiksýningar þar fram í febrúar 1897 […]

Stræti Halaleikhópsins – rýni

Stræti eftir Jim Cartwright Halaleikhópurinn Leikstjóri: Guðjón Sigvaldason Trausti Ólafsson rýnir  Sautján leikarar í meira en helmingi fleiri hlutverkum stíga fram í leikrými Halaleikhópsins í Hátúni 12 og bjóða áhorfendum upp á sýningu á leikriti um líf fjölda fólks sem býr við sömu götuna í breskri borg. Jim Cartwright heitir höfundur leikritsins og fyrir um […]

Klókur ertu, Einar Áskell – sýningum að ljúka

Aðeins fjórar sýningar eftir!  Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu. Sögurnar um hinn bráðskemmtilega og uppátækjasama snáða Einar Áskel hafa lengi átt vinsældum að fagna, og brúðusýning Bernds Ogrodniks sem er byggð á tveimur þeirra hefur notið mikillar hylli hjá yngstu kynslóðinni. Við fylgjumst með degi í lífi feðganna Einars Áskels og […]

Soundpainting í fyrsta sinn hérlendis

Soundpainting er alþjóðlegt táknmál sem notað er í listsköpun tónlistarmanna, leikara og dansara. „Hljóðmálarinn“ notar hreyfingar til að eiga samskipti við listamenn á sviði – hann myndar hljóð, orð, hreyfingar og rými sem eru einstök í hverju verki. Höfundur aðferðarinnar er tónskáldið Walter Thompson, sem bjó það til í New York fyrir 40 árum. Í dag […]

Stræti, frumsýning hjá Halaleikhópnum

Halaleikhópurinn frumsýnir leikritið Stræti eftir Jim Cartwright í leikstjórn og leikgerð Guðjóns Sigvaldasonar 29. janúar kl. 20:00 í Halanum, Hátúni 12, Reykjavík. Stræti er átakasaga með kómísku ívafi og fjallar um fólk sem býr við sömu götu. Aðstæður þeirra markast af efnislegri óvissu, firringu og brotnum samskiptum. Þar eiga allir sína drauma sem halda mörgum […]

Dýrin í Hálsaskógi í Hveragerði

Leikfélag Hveragerðis æfir nú af kappi leikritið Dýrin í Hálsaskógi í leikstjórn Maríu Pálsdóttur.  Áætlað er að frumsýna 20.  febrúar ef allt gengur upp. Leikarar eru rúmlega 20 og eru þeir á ýmsum aldri,  reyndir í bland við aðra sem eru að stíga sín fyrstu skref á sviðinu. Mikka ref og Lilla klifurmús leika nú í […]

Opinn samlestur í Borgarleikhúsinu

Miðvikudaginn 27. janúar kl. 10.00 verður opinn samlestur á nýju verki Tyrfings Tyrfingssonar, Auglýsing ársins. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk þess kynna leikstjóri, […]

Sokkabandið sýnir Old Bessastaðir

OLD BESSASTAÐIR er glænýtt leikrit eftir Sölku Guðmundsdóttur í leikstjórn Mörtu Nordal sem frumsýnt verður í Tjarnarbíói fimmtudaginn 4. febrúar. Leikhópurinn Sokkabandið stendur að sýningunni en hópurinn er þekktur fyrir uppsetningu nýrra verka sem tala beint inn í samtíma okkar. Í félagsskap þriggja grátbroslegra kvenna sem undirbúa róttækar aðgerðir er velt upp spurningum um það […]

Umhverfis jörðina í Þjóðleikhúsinu

Skáldsagan Umhverfis jörðina á 80 dögum eftir Jules Verne hefur notið gífurlegra vinsælda víða um heim allt frá því hún kom út árið 1873. Karl Ágúst og Siggi Sigurjóns hafa nú samið ævintýralegan, nýjan söngleik byggðan á verkinu með fjölda nýrra og skemmtilegra laga eftir Baldur Ragnarsson og Gunnar Ben úr Skálmöld. Frumsýning er 23. […]

Síðustu sýningar í Halanum

Halaleikhópurinn, sem er áhugamannaleikfélag fatlaðra og ófatlaðra, sýnir um þessar mundir „Söguna af Joey og Clark“ sem er hluti úr leikritinu „Stræti” eftir Jim Cartwright í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar.  Sagan af Joey og Clark er sýnt sem sjálfstætt stuttverk (ca 50 mín) og mun ekki verða sýnt sem hluti af Stræti þegar það verður frumsýnt í […]

SKALLAGRÍMSSON – Snýr aftur

Í tilefni af 10. starfsári Landnámssetursins í Borgarnesi mun Benedikt Erlingsson flytja hinn óborganlega einleik sinn um Egil Skallagrímsson. Benedikt frumsýndi einleikinn við opnun Landnámssetursins 13. maí 2006 og sló sýningin algjörlega í gegn. Árið eftir hlaut Benedikt þrjár Grímu tilnefningar fyrir sýninguna og vann 2 Grímur fyrir besta handrit og besta leik í aðalhlutverki. […]

Flóð í Borgarleikhúsinu

Fimmtudaginn 21. janúar kl. 20.00 frumsýnir Borgarleikhúsið á Litla sviðinu heimildaverkið Flóð eftir Hrafnhildi Hagalín og Björn Thors í leikstjórn Björns Thors. Leikarar eru þau Kristbjörg Kjeld, Halldóra Geirharðsdóttir, Hilmir Jensson og Kristín Þóra Haraldsdóttir. Árið 1995 féll stórt snjóflóð á bæinn Flateyri á Vestfjörðum. Flóð er heimildaverk byggt á þessum atburðum. Á síðasta ári […]

Samfarir Hamfarir í Tjarnarbíói

Samfarir Hamfarir er nýtt sviðlistaverk eftir Natan Jónsson og Þórunni Guðlaugs í uppsetningu Leikfélagsins Hamfarir. Allt gengur á afturfótunum hjá Þórunni. Við ferðumst inn í hugarheim hennar en nýliðnir atburðir hafa þvingað hana til þess að gera upp fortíð sína. Hún reikar úr einni minningu yfir í aðra þar sem samskipti hennar við hitt kynið […]

Leiklistarskólinn Opnar dyr auglýsir

Ný námskeið á nýju ári. Námskeiðin eru ætluð þeim sem vilja skemmta sér, losa um hömlur og fá útrás fyrir sköpunargleðina í spuna og leik. Leiklistarskólinn Opnar dyr hefur það að markmiði að gefa fullorðnu fólki tækifæri til að kynnast leikrænni tjáningu í afslöppuðu og öruggu umhverfi. Leiklistarnámskeiðið býður uppá skapandi leiklist og sjálfstyrkingu. Meðal […]

Hver er hræddur við Virginíu Woolf?

Föstudaginn 15. janúar kl. 20 frumsýnir Borgarleikhúsið á Nýja sviðinu leikverk Edward Albee, Hver er hræddur við Virginíu Woolf? í leikstjórn Egils Heiðars Antons Pálssonar. Leikarar eru þau Margrét Vilhjálmsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Elma Stefanía Ágústsdóttir og Eysteinn Sigurðarson. Marta og Georg elska hvort annað. Þau vita allt um sig og lífið en samt – […]

Nýtt leikskáld Leikritunarsjóðs LR

Tilkynnt var um val á nýju leikskáldi Leikritunarsjóðs Leikfélags Reykjavíkur við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu í gær. Frú Vigdís Finnbogadóttir, stjórnarformaður Leikritunarsjóðs tilkynnti Sölku Guðmundsdóttur sem næsta leikskálds Borgarleikhússins. Alls sóttu 39 um starfið. Fjögur leikskáld hafa þegar starfað á vegum leikritunarsjóðsins með prýðilegum árangri, Auður Jónsdóttir árið 2009 og Jón Gnarr var leikskáld hússins […]

Frami, aukasýningar í janúar

„Enginn meinar neitt af því enginn þorir því og ef einhver vildi meina eitthvað þá myndi enginn skilja það því allir héldu að hann væri að grínast.“ Frami er nýtt verk eftir Björn Leó Brynjarsson í uppsetningu sviðslistahópsins TAKATAKA. Verkið fjallar um þrá listamanns eftir velgengni í nútímasamfélagi og baráttu hans við sjálfan sig. Hann […]

Uppfærsla á vefnum

Leiklistarvefurinn verður uppfærður síðar í kvöld og verður niðri á meðan. Ekki er búist við að uppfærslan taki langan tíma.

Opinn samlestur í Borgarleikhúsinu

Á morgun, þriðjudaginn 5. janúar kl 12:45 verður opinn samlestur á Mamma mia í forsal Borgarleikhússins.  Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk þess kynna leikstjóri, leikmynda- […]

Inntökupróf í Rose Bruford

Rose Bruford, sem er alþjóðlegur leiklistarháskóli í London, mun halda inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir í Hinu Húsinu, Reykjavík dagana 12. og 13. mars 2016. Nánari upplýsingar og skráning með tölvupósti á: international@bruford.ac.uk og í síma: +44(0)20 8308 2638 Námið hefst í október 2016. Rose Bruford var valinn besti leiklistarháskóli Bretlands í skoðanakönnun nemenda 2013 og 2014 bruford.ac.uk […]

Jólakveðja

Lokað frá og með 22. desember til 4. janúar.

Aukasýningar á Augasteini

Ævintýrið um Augastein, hugljúft jólaleikrit fyrir yngstu listunnendurna eftir Felix Bergsson, hefur fengið frábærar viðtökur og hefur Tjarnarbíó bætt við þremur aukasýningum. Leikritið er fyrir foreldra og börn, en kjöraldur er 7-8 ára, en það hentar einnig fyrir 3 ára og upp í 11 ára. Leikritið byggir á hinni sígildu sögu um Grýlu og jólasveinana […]

Leitin að jólunum í Þjóðleikhúsinu

Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum hefur verið sýnd á aðventunni við miklar vinsældir allt frá því hún var frumsýnd árið 2005. Verkið er nú sýnt ellefta leikárið í röð. Tveir skrýtnir og skemmtilegir náungar taka á móti litlum leikhúsgestum í anddyri Þjóðleikhússins. Með þeim í för eru tveir hljóðfæraleikarar og þessi fjörugi hópur leiðir börnin með […]

Grýla, jólasýning á Akureyri

Grýla er reið. Nei, það er víst ekki alveg rétt því Grýla er brjáluð! Það er búið að bora gat í gegnum heimilið hennar og hún var ekki einu sinni beðin um leyfi. Það er allt á floti í hellinum, heiti potturinn hennar míglekur eftir aðförina og því ekki hægt að búa þar lengur. Ekki […]

Opnum okkur!

Fjórir flóttamenn segja sína sögu á stóra sviði Borgarleikhússins ásamt þremur fyrirlesurum frá Rauða krossinum og sjálfboðaliðum. Halldóra Geirharðsdóttir og Bergur Þór Ingólfsson halda utan um dagskránna. Dagskráin hefst kl. 13 laugardaginn 5. desember, ókeypis aðgangur og allir velkomnir. Hugmyndin með þessu er fyrst og fremst að opna fyrir samtal og rými þar sem hægt […]

Sagan af Joey og Clark hjá Halaleikhópnum

Halaleikhópurinn sem er áhugamannaleikfélag fatlaðra og ófatlaðra mun setja á svið “Söguna af Joey og Clark” sem er hluti úr leikritinu „Stræti” eftir Jim Cartwright í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar.  Sagan af Joey og Clark er sýnt sem sjálfstætt stuttverk (ca 50 mín) og mun ekki verða sýnt sem hluti af Stræti þegar það verður frumsýnt […]

Ferðin til jólaandans í Iðnó

Jólaleikrit Borgarbarna, barna- og unglingaleikhúss þetta árið er Ferðin til Jólaandans. Er þetta tíunda árið í röð sem Borgarbörn setja upp jólasýningu. Sýningin er frábær skemmtun fyrir fólk á öllum aldri. Jólin snúast um það að njóta og gleðjast með fjölskyldu og vinum. Það er hinsvegar eitthvað sem Grétar og Hansína hafa aldrei kynnst. Þau […]

Ævintýrið um Augastein í Tjarnarbíói

Leikhópurinn Á senunni kynnir enn á ný hina margrómuðu og yndislega fallegu jólaleiksýningu Ævintýrið um Augastein eftir Felix Bergsson, í samstarfi við Kolbrúnu Halldórsdóttur og Helgu Arnalds, sem verður að nýju sýnd í nóvember og desember 2015 í hinu nýuppgerða og glæsilega Tjarnarbíói við Tjarnargötu. Íslensk útgáfa verksins var einmitt frumsýnd í Tjarnarbíói árið 2003. […]

Tvær sýningar fyrir eina

Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir leikritin Sumarbúðir og Hvíldu í friði nú um helgina. Unglingadeildin sem telur nú tvo hópa, eldri og yngri, hefur í haust verið á vikulegum leiklistarnámskeiðum. Námskeiðunum sem slíkum er lokið en nú er komið að leiksýningum sem eru öðrum þræði afrakstur námskeiðanna. Yngri hópur sýnir leikritið Sumarbúðir sem fjallar um hópur […]

NEATA leiklistarhátíðin  7. og 8. október 2016

Leiklistarhátíðir norður-evrópska áhugaleikhúsráðsins, NEATA, hafa verið haldnar á tveggja ára fresti frá árinu 2000. Hátíðin hefur gengið á milli aðildarlandanna í ákveðinni röð og árið 2016 var komið aftur að Norðmönnum. Því miður stendur illa á hjá norska bandalaginu, það er eiginlega búið að leggja það niður og verið er að færa verkefni þess til […]

Láttu bara eins og ég sé ekki hérna

Verkið Láttu bara eins og ég sé ekki hérna er grískur þátttökuharmleikur þar sem áhorfandinn lærir að þekkja sjálfan sig upp á nýtt. Við bjóðum áhorfendum að koma í Tjarnarbíó og gangast undir persónuleikapróf þar sem hann er leiddur í gegnum stig sjálfsupplýsingar og þarf að horfast í augu við sína innri pöndu. Verkið veltir því […]

Leikfélagið Borg

Formaður: Guðný Tómasdóttir gudny@ormsstadir.is 8940932 Ritari: Kristbjörg Sigtryggsdóttir krissa86@hotmail.com 7731944 Gjaldkeri: Jóhann Pétur Jóhannsson Johann.Petur.Johannsson@landsvirkjun.is 6119150 Meðstjórnandi: Bjarki Þór Guðmundsson Meðstjórnandi: Gunnar Bjarni Kristinsson Félagið starfar í Gímsnes- og Grafningshreppi.

KATE, frumsýning í Tjarnarbíói

Lost Watch í samstarfi við Miðnætti og Tjarnarbíó frumsýnir KATE, gamanleik um íslenskt fjölskyldu- og herstöðvalíf í seinni heimsstyrjöldinni í Reykjavík. Ísland, 1940. Bretarnir koma! Þegar 25.000 breskir hermenn lenda í Reykjavík og hertaka landið, hafa íslensku konurnar eitthvað nýtt til að einbeita sér að. KATE fjallar um íslenska fjölskyldu í seinni heimsstyrjöldinni, Selmu uppreisnargjarnri dóttur […]

Bráðskemmtileg fjölskyldusýning í Eyjum

Ævintýrabókin eftir Pétur Eggerz Leikfélag Vestmannaeyja Leikstjóri Ingrid Jónsdóttir Helena Pálsdóttir rýnir sýningu Það er ekki hægt að segja annað en Leikfélag Vestmannaeyja sé ríkt af hæfileikafólki, fólki sem lætur gesti sína finna það alveg út í sal hversu gaman það hefur af því að skemmta sér og okkur hinum. Ég skellti mér á frumsýningu […]