Author: lensherra

Leikfélag Sauðárkróks æfir Barið í brestina

Æfingar standa nú yfir hjá Leikfélagi Sauðárkróks á gamanleiknum Barið í brestina eftir Guðmund Ólafsson. Leikurinn gerist á heilbrigðisstofnun sem einnig er elliheimili og koma þar við sögu starfsmenn stofnunarinnar, vistmenn, bæjarstjóri og ráðherra. Þá er minnst á færeyskan fótboltamann og magaspeglunartæki sem ráðherrann hefur mikinn áhuga á að skoða. 15 leikarar leika í uppsetningunni. Flestir hafa áður komið við sögu félagsins, en einnig eru nokkrir að stíga sín fyrstu skref á sviðið með félaginu. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson en hann leikstýrði fyrst hjá LS árið 2002 og er nú að leikstýra í sjöunda skiptið hjá félaginu. Frumsýnt verður...

Read More

Trúðanámskeið á Akureyri

Trúðanámskeið verður haldið í Rýminu, æfingahúsnæði MAK við Hafnarstræti í apríl. Kennari er Sólveig Guðmundsóttir, sem leikur um þessar mundir í Lísu í Undralandi, en hún hefur unnið mikið með trúðatækni sl. ár. Farið verður í grunn tækniæfingar, hver þátttakandi mun þróa sinn trúð og vinna með trúðinn sinn í gegnum spuna og leiki. Námskeiðið er opið öllum frá 18 ára aldri hvort sem fólk hefur reynslu af leiklist eður ei. Þetta er tækni sem nýtist bæði í leik og starfi. Leikarar skerpa verkfæri sín í spunavinnu og hlustun og kennarar finna oft nýjar leiðir til að vinna kennsluefni....

Read More

Berserkur í Tjarnarbíói

Berserkur er nýtt verk skrifað og þróað af Spindrift Theatre sem sameinar raunveruleika okkar og skáldskap Lísu í Undralandi. Frásagnarlist Carrolls skapar áhugaverðan grunn fyrir áþreifanlegan og tilraunakenndan leikstíl leikhópsins. Hópurinn nýtir sér galsafull og ryþmísk skrif Carrolls, „bulltexta“ hans í bland við þulur og álíka norræna frásagnalist. Frumsýning er 9. apríl kl. 20.00 Lísa gengur í gegnum sjálfsþekkingarleit þar sem hún stendur í sjálfsmyndarkreppu. Í gegnum söguna stækkar Lísa og minnkar þegar hún þarf að standa frammi fyrir ólíkum og ófyrirsjáanlegum verum og atburðum úr eigin lífi. Atburðirnir, spurningar um samfélagsleg gildi og verurnar eru endurspeglaðar á gamansaman...

Read More

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 2015

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn að Melum í Hörgárdal dagana 2. og 3. maí 2014. Gist verður í Skjaldarvík. Leikfélag Hörgdæla býður öllum fundargestum í óvissuferð eftir kvöldverð föstudaginn 1. maí. Fundurinn verður settur laugardagsmorguninn 2. maí kl. 9.00 og honum slitið um hádegisbil sunnudaginn 3. maí. Dagskrá: Föstudagur 1. maí: 19.00 Kvöldverður í Skjaldarvík Óvissuferð í boði Leikfélags Hörgdæla   Laugardagur 2. maí: 08.00-09.00 Morgunverður í Skjaldarvík Rúta að Melum 09:00-12.00 Aðalfundur settur að Melum 12:00 -13.00 Hádegisverður að Melum 13:00-17.00 Framhald aðalfundar 17:00 Fundarhlé Rúta frá Melum og til baka um kvöldið 20:00 Hátíðarkvöldverður að Melum Skemmtidagskrá...

Read More

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Foam Capsules frá Kryolan. Gelatínhylki fyllt með efni sem verður að hvítri froðu þegar hylkið er sett í munninn og bitið í sundur. Hver vill ekki geta froðufellt að vild? 10 hylki í dós kosta 2.272.- Leikhúsbúðin er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is Hylkin og innihaldið er óhætt að gleypa. Varast skal að geyma hylkin í raka. Innihaldsefni: Sodium Bicarbonate, Sodium Lauryl Sulfate, Citric Acid, Sucrose, Dimethylimidazolidinone Rice Starch, Titanium Dioxide CI 77891 (EU...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert