Author: lensherra

Barið í brestina á Króknum

Næstkomandi sunnudag, 26. apríl frumsýnir Leikfélag Sauðárkróks gamanleikinn Barið í brestina. Leikritið er skrifað af Guðmundi Ólafssyni og var það upprunalega sýnt af Leikfélagi Ólafsfjarðar árið 2001. Sögusviðið er sambyggð heilbrigðisstofnun og elliheimili og fá áhorfendur innsýn inn í líf starfsmanna og vistmanna, en auk þess ber á góma færeyskur knattspyrnumaður og magaskoðunartæki. 15 leikarar eru á sviðinu, en alls koma um 30 manns að sýningunni. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson. Frumsýnt verður sunnudaginn 26. apríl á opnunardegi Sæluviku Skagfirðinga, en Leikfélag Sauðárkróks hefur sett upp sýningu hverja Sæluviku undanfarin 73 ár. Sýningin hefst kl. 20 og er sýnt í...

Read More

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Grimas Nose Wax eða nefkítti. Húðlitað vaxkennt efni notað til að byggja upp andlitshluta, s.s. nef og höku. Fæst í 60 ml. dósum og kostar 1.729.- Leikhúsbúðin er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is   Vaxið skafið út dósinni með spaða, rúllað milli fíngra smástund og sett beint á hreina húð. Ekki er nauðsynlegt að nota lím undir. Gott er að nota smá hreinsikrem meðan maður sléttar í ójöfnum og vinnur niður kantana. Kremið er...

Read More

Peggy Pickit sér andlit guðs

Miðvikudaginn 22. apríl kl 20.00 mun Leikfélag Reykjavíkur frumsýna á litla sviði Borgarleikhússins verkið Peggy Pickit sér andlit guðs eftir þjóðverjann Roland Schimmelpfennig. Vignir Rafn Valþórsson leikstýrir þar úrvalshópi leikara og þýðing verksins er í höndum Hafliða Arngrímssonar. HVAÐ ÞURFUM VIÐ EIGINLEGA AÐ BURÐAST LENGI MEÐ AFRÍKU Á SAMVISKUNNI? Sagan: Fyrir sex árum útskrifuðust tvö pör saman úr læknanámi. Þau voru bestu vinir og gerðu allt saman. En svo skildu leiðir. Lísa og Frank fengu góðar stöður á hátæknispítalanum hér heima og lifa góðu lífi: eiga stóra íbúð, fínan bíl og litla dóttur. Katrín og Marteinn fóru aftur á...

Read More

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Eyebrow Plastic frá Grimas. Glært vax til að hylfja augnabrúnir. Tollir vel við húðina og helst teygjanlegt. 25 ml. dós kostar 2.347.- Leikhúsbúðin er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is Hér er mjög góð lýsing á vörunni og hvernig á að nota hana og þrífa af á dönsku. Innihaldslýsing og fleira.  ...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert