Author: lensherra

Upp, upp – Æskusaga Hallgríms Péturssonar

Stoppleikhópurinn sýnir leikritið „Upp, upp“ Æskusögu Hallgríms Péturssonar eftir Valgeir Skagfjörð í Gerðubergi miðvikudaginn 6. maí kl. 19.00. Aðeins þessi eina sýning og ókeypis inn! Leikritið segir frá uppvaxtarsögu Sr. Hallgríms Péturssonar og var skrifað í tilefni af 400 ára afmæli skáldsins.  Verkið byggir að stærstum hluta  á bókinni Heimanfylgju eftir Steinunni Jóhannesdóttur sem öðrum fremur hefur gert Hallgrími Péturssyni og konu hans Guðríði Símonardóttur skil í verkum sínum. Verkið er sniðið að ungum áhorfendum og miðar að því að gefa grunnskólabörnum/unglingum  innsýn í lífsbaráttu Íslendinga á 17. öld og hvaða merkingu það hafði fyrir ungan dreng eins og...

Read More

Ronja í Þjóðleikhúsið

Sýning Leikfélags Mosfellssveitar á Ronju ræningjadóttur var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2015 af dómnefnd Þjóðleikhússins. Úrslitin voru kynnt á hátíðarkvöldverði í tengslum við aðalfund BÍL að Melum í Hörgársveit í kvöld. Í umsögn dómnefndar segir m.a. um sýninguna: „Sýning Leikfélags Mosfellssveitar á Ronju ræningjadóttur er heillandi og fjörug barnasýning þar sem fjölmargir þættir koma saman og mynda áhrifaríka heild. Leikhópurinn er fjölmennur og sterkur, og leikarar í aðalhlutverkum standa sig afar vel. Tónlist er veigamikill þáttur í sýningunni, og söngatriðin vel útfærð. Sviðið er notað á skemmtilegan hátt þar sem hljómsveitin er hluti af sýningunni. Mikil alúð er lögð...

Read More

Leiklistarvefurinn uppfærður

Löngu tímabær uppfærsla á Leiklistarvefnum er loks komin til framkvæmda. Uppfærslunni fylgja eðlilega töluverðar breytingar og einnig ýmsar nýjungar. Helsta nýjungin er opnun Leikhúsbúðarinnar, vefverslunar með ítarlegri og betri upplýsingum um leikhúsvörur af ýmsu tagi. Hægt er að panta vörur á vefnum og láta senda eða sækja í...

Read More

Ný stjórn kjörin á aðalfundi

Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga sem haldinn var að Melum í Hörgársveit. Guðfinna Gunnarsdóttir var kjörin formaður en Þorgeir Tryggvason sem hafði setið sem formaður í fjögur kjörtímabil gaf ekki kost á sér áfram. Í aðalstjórn voru einnig kjörin Gísli Björn Heimisson og Ólöf Þórðardóttir. Áfram sitja Þráinn Sigvaldason og Bernharð...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert