VINNSLAN – Listamenn fylla öll rými Tjarnarbíós
Listahátíðin Vinnslan verður haldin laugardagskvöldið 9. apríl í Tjarnarbíói. Um 30 listamenn sýna verk í vinnslu og fylla rými Tjarnarbíós með öllum listformum. Listahópurinn Vinnslan heldur sína árlegu listahátíð á laugardaginn frá kl. 19:30 til 23 í Tjarnarbíói. Á þriðja tug listamanna sýna verk í vinnslu en öll rými Tjarnarbíós verða vettvangur listflutnings, hvort sem um er að ræða svið, baksviðsrými eða salerni. Á dagskrá verður myndlist, lifandi tónlist, gjörningar, dans, leikhúsverk, myndbandslist og fleira. Síðastliðin þrjú ár hefur Vinnslan staðið fyrir níu samsýningum og hafa 250 listamenn úr öllum listgreinum tekið þátt. Sérstök áhersla er lögð á verk í...
Read More


