Með barnið ofarlega í hjartanu

Á vit ævintýranna hjá Leikfélagi Selfoss Þrjú ævintýri eftir H.C.Andersen, Pál J. Árdal og Davíð Stefánsson Leikstjórn: Ágústa Skúladóttir Það er nú svo með okkur barnlausa fólkið, við þykjumst alltaf þurfa afsökun fyrir að fara á svokallaðar barna- eða fjölskyldusýningar. Þannig höfum við líklega rifið upp meðalaldurinn í Litla leikhúsinu á Selfossi nú á fimmtudag, […]

Andlátsfregn

Jónína Kristjánsdóttir, fyrrverandi formaður Bandalags íslenskra leikfélaga, lést þann 1. október s.l. 96 ára gömul. Árið 1963 byrjaði Jónína að leika með Leikfélagi Keflavíkur og var hún formaður félagsins til fjölda ára. Í kjölfarið sótti hún sér þekkingu á sviði leiklistar og leikstjórnar á fjölmörgum námskeiðum sem haldin voru víða á norðurlöndum. Hún starfaði síðan […]

Ársritið 2017-18 er komið út

Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið 2017–2018 er nú komið út og birt hér á Leiklistarvefinum. Í ritinu eru að finna allar helstu upplýsingar um starfsemi Bandalags íslenskra leikfélaga og aðildarfélaga þess á síðastliðnu leikári. Að venju prýða ritið margar myndir héðan og þaðan úr starfinu. Hér má nálgast ársritið. Þeir sem vilja fá ársritið útprentað […]

Leikfélag Selfoss frumsýnir á föstudaginn

Þann 12. október frumsýnir Leikfélag Selfoss fjölskylduverkið „Á vit ævintýranna“ í leikstjórn Ágústu Skúladóttur í Litla leikhúsinu við Sigtún. Verkið er sameiginleg sköpun leikhópsins og leikstjórans en er byggt á ævintýri H.C. Andersens um Litla Kláus og stóra Kláus í þýðingu Steingríms Thorsteinssonar, ljóðinu Sálin hans Jóns míns eftir Davíð Stefánsson ásamt kvæðinu En hvað […]

Ljóðahugleiðsla um frið og kærleika

Fimmtudaginn 11. október, í friðarviku Reykjavíkurborgar, stendur Eyrún Ósk Jónsdóttir, skáld og leikkona fyrir friðar-ljóðagjörning í Menningarsetri SGI búddistasamtakanna Laugavegi 178. Um er að ræða eins konar ljóða-hugleiðslu þar sem flytjandinn leiðir áhorfendur í einskonar kyrrðar ferðalag með ljóðaupplestri en öll ljóðin fjalla um frið og kærleika og sannkölluð kyrrðar tónlist ómar undir upplestrinum. Áhugaverð og […]

Sigvaldi Kaldalóns í Hannesarholti

Kómedíuleikhúsið frumsýnir leikritið Sigvaldi Kaldalóns í Hannesarholti 4. október komandi. Hér er á ferð einstök sýning um einn ástsælasta listamann þjóðarinnar. Leikurinn fjallar fyrst og fremst um ár Sigvalda í Ármúla í Ísafjarðardjúpi hvar hann starfaði sem læknir í ein ellefu ár. Þó læknisstarfið hafði verið annasamt þá gaf hann sér tíma til að semja […]

Ævintýri í uppsiglingu hjá Leikfélagi Selfoss

Leikfélag Selfoss er enn í 60 ára afmælisgírnum og er því í óða önn ađ setja upp metnaðarfulla barna- og fjölskyldusýningu sem stefnt er að frumsýna þann 12. október næstkomandi. Á síđustu vikum hefur mikiđ gengið á enda andi fantasíunnar verið yfir leikhúsinu og leikhópurinn dvalið í heimi ljóða og ævintýra. Verkiđ er samsköpun leikstjórans […]

Hörður verður framkvæmdastjóri

Stjórn Bandalags íslenskra leikfélaga hefur ráðið Hörð Sigurðarson sem framkvæmdastjóra frá 1. janúar 2019. Hörður er Bandalagsfólki að góðu kunnur. Hann sat í varastjórn BÍL á árunum 1996-1998 og í aðalstjórn 1998-2006 og 2008-2010. Hann starfaði einnig í nefnd til undirbúnings Leiklistarvefsins 2002 og hefur verið Lénsherra (umsjónarmaður) hans frá upphafi til dagsins í dag, […]

Svartlyng, frumsýning 21. september

Svartlyng, sótsvartur gamanleikur eftir Guðmund Brynjólfsson í uppsetningu leikhópsins Gral, verður frumsýndur í Tjarnarbíói föstudaginn 21. september kl. 20.00. Í Lagadeild Háskóla Íslands er þrískipting valdins útskýrð með þessum hætti: „Svartlyng-ættin á dómstólana, Svartlyng-ættin á stjórnarráðið og Svartlyng-ættin á löggjafarþingið.“ Hinu er sleppt, að Flokkurinn mannar öll embætti í nafni Svartlyngs-ættarinnar enda á hún Flokkinn. Þegar dregur til […]

Leikið í Litháen

Leiklistarhátíð NEATA fór fram í Anyksciai í Litháen fyrr í mánuðinum og var sýning Leikfélags Kópavogs, Svarti kassinn, framlag Íslands. Sýningin hlaut frábærar viðtökur og nú þegar er leikfélagið með opin boð á leiklistarhátíðar í Rússlandi og Litháen. NEATA eru samtök áhugaleikhússsambanda á Norðurlöndum og Baltnesku ríkjunum og halda samtökin leiklistarhátíð á 2 ára fresti. […]

Bandalag íslenska leikfélaga auglýsir eftir framkvæmdastjóra

Bandalag íslenska leikfélaga auglýsir eftir framkvæmdastjóra í 100% starf frá 1. janúar 2019. Framkvæmdastjóri vinnur í umboði stjórnar Bandalagsins og eru verkefni hans m.a.: Daglegur rekstur skrifstofu og verslunar með áherslu á þjónustu við aðildarfélög og aðra sem eftir henni leita. Sér um Leiklistarvef, handritasafn, vefverslun og innkaup. Bókhald og reikningsskil ásamt uppsetningu ársrits. Erlend […]

Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir leikstjóra

Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir lærðum leikstjóra fyrir haustverkefni félagsins sem verður barnaverkið Glanni glæpur í Latabæ eftir Magnús Scheving. Stefnt er að því að hefja æfingar í kringum 1. september og vinna í u.þ.b. 8 vikur. Umsóknir með ferilskrá og ósk um frekari upplýsingar er veitt í gegnum netfangið leikfelagve@outlook.com fyrir 25. ágúst.

Gutti & Selma og ævintýrabókin í Eyjafirði

Í ágúst verður frumsýnt nýtt íslenskt barnaleikrit í Laugaborg í Eyjafirði. Það heitir Gutti & Selma og ævintýrabókin, eftir Pétur Guðjónsson. Það er hópur sem kallar sig Draumaleikhúsið sem setur upp sýninguna sem er í samvinnu við Handverkshátíð Eyjafjarðar sem haldin er á Hrafnagili. Leikritið er 40 mínútna langt en fullt af lífi og fjöri. […]

Uppfærslur á vefnum

Fyrir dyrum standa uppfærslur á Leiklistarvefnum. Verið getur að vefurinn verði niðri af og til í 1-2 daga meðan á uppfærslum stendur. Við vonumst til að allt verði komið í lag strax eftir helgi.

Reykjavík Fringe Festival 4.-8. júlí

Reykjavík Fringe Festival mun verða haldin í fyrsta sinn á Íslandi dagana 4.-8. júlí. Fjöllistahátíðin býður m.a. upp á leiklist, dans, uppistand, spuna, kabarett, sögustundir, myndlistarsýningar, kvikmyndir, fyrirlestra, námskeið, drag, innsetningar, tónlist, ljóðalestra o.fl. Meira en 50 listamenn/hópar taka þátt og halda yfir 130 sýningar á 5 dögum á 11 staðsetningum víðs vegar um miðborg […]

Rauða skáldahúsið í Iðnó

Fimmtudagskvöldið 21. júní mun Rauða skáldahúsið halda sínu fimmtu sýningu, en í þetta skiptið fagnar hópurinn eins árs afmæli. Sýningin fer fram í Iðnó frá klukkan 20-23 og er miðaverð 3000 kr, en hálfvirði fyrir nema. Verður þetta fyrsta sýning í Iðnó eftir að húsnæðið opnar að nýju eftir að hafa verið lokað undanfarnar vikur. […]

Pétur Guðjónsson

Netfang: petur@draumaleikhusid.is Símanúmer: 6911219 Ferilsskrá: Leikstjóri, höfundur og framleiðandi með víðtæka reynslu af uppsetningum fyrir ungmenni og áhugaleikfélög. Sérhæfi mig í söngleikjum og stærri uppfærslum þar sem taktur, flæði og heildarsýn skipta máli – og þar sem markmiðið er bæði listrænn árangur og góð aðsókn. Ég legg ríka áherslu á mannleg samskipti, traust og jákvæða […]

Lakehouse leitar að höfundum af landsbyggðinni

Er meistaraverk að daga uppi í skúffunni heima hjá þér? Ertu laumupenni? Lakehouse auglýsir eftir örsögum, myndrænum lýsingum eða öðrum leikrænum þáttum sem endurspegla hugtakið einangrun. Þemað getur fléttast óljóst inn í sögurnar eða verið beintengt viðfangsefninu, verið dramatískt og kómískt, og allt þar á milli. Umsóknarfrestur er til 1. júlí. Stjórn Lakehouse, í samstarfi […]

Aðalfundur í Logalandi 5.-6. maí 2018

Formaður Bandalagsins, Guðfinna Gunnarsdóttir setur fundinn kl. 13:00. 1. Fundarsetning. Kosning 2ja fundarstjóra og 2ja fundarritara sem taka þegar til starfa. Lögmæti fundarins kannað. Þorvaldur Jónsson og Steinunn Garðarsdóttir frá Umf. Reykdæla skipaðir fundarstjórar og Ingveldur Lára Þórðardóttir Leikfélagi Hafnarfjarðar og Magnþóra Kristjánsdóttir Leikfélagi Ölfuss skipaðir fundarritarar. Fundur telst lögmætur. 2. Kjörnefnd afgreiðir kjörbréf og […]

Leikhópurinn Lotta frumsýnir Gosa

Tólfta sumarið í röð leggur Leikhópurinn Lotta land undir fót og ferðast með glænýja fjölskyldusýningu um landið þvert og endilangt. Í sumar hefur hópurinn ákveðið að kynnast betur spýtustráknum Gosa og ber nýjasta leikritið nafn hans. Sagan um Gosa gerist inni í Ævintýraskóginum en eins og Lottu er von og visa blandast fleiri þekkt ævintýri […]

Lokað frá 17.-21. maí

Skrifstofa Bandalags íslenskra leikfélaga, Vefverslunin og Leikhúsbúðin verða lokaðar frá 17. maí til og með 21. maí. Opnum aftur þriðjudaginn 22. maí kl. 9.00. Sendið inn pantanir fyrir kl. 13.00 miðvikudaginn 16. maí.

Mystery boy í Þjóðleikhúsið

Sýning Leikfélags Keflavíkur á Mystery Boy eftir Smára Guðmundsson, hefur verið valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2018 af valnefnd Þjóðleikhússins. Umsögn valnefndar fer hér á eftir: Athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins 2017-2018 Val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins hefur nú farið fram í tuttugasta og fimmta sinn. Að þessu sinni sóttu alls fjórtán leikfélög um að koma til […]

BÍL-þing 2018

Hér birtast svipmyndir af Aðalfundi BÍL í Reykholti 4.-6. maí 2018. [FAGP id=10580]

Enginn hráskinnaleikur, bara frábær skemmtun

Hráskinna hjá Hugleik Höfundar: Ármann Guðmundsson, Ásta Gísladóttir, Sigríður B. Steinþórsdóttir og Þorgeir Tryggvason Leikstjórn: Rúnar Guðbrandsson Það var dálítið snúið að finna innganginn að nýju húsnæði Hugleiks á Langholtsveginum. Reyndi fyrst að fara inn um aðaldyrnar en mætti þar fjölda manns sem sögðust vera að koma frá söngæfingu. En góður vegfarandi benti mér fljótlega […]

Aukasýning á Fróða og öllum hinum grislingunum

Aukasýning verður á Fróða og öllum hinum grislingunum sem Leikfélag Kópavogs hefur sýnt undanfarnar vikur. Síðustu sýningar voru um liðna helgi en vegna fjölda tilmæla hefur verið ákveðið að bæta við aukasýningu 13. maí næstkomandi. Þegar hafa verið sýndar 15 sýningar fyrir fullu húsi. Nánari upplýsingar um sýninguna og miðapantanir eru á vef leikfélagsins kopleik.is.

Hugleikur frumsýnir Hráskinnu

Leikfélagið Hugleikur frumsýnir þann 20. apríl kl. 20.00 Hráskinnu, nýtt íslenskt leikrit með söngvum. Höfundar eru fjórir, Ármann Guðmundsson, Ásta Gísladóttir, Sigríður Bára Steinþórsdóttir og Þorgeir Tryggvason en leikstjórn er í höndum Rúnars Guðbrandssonar. Sýnt er í Hugleikhúsinu Langholtsvegi 109 (Fóstbræðrahúsinu, gengið inn baka til) en það er nýtt leikhús í eigu leikfélagsins. Hráskinna er […]

15. apríl er á sunnudaginn!

Síðasti skráningardagur í Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga 2018 er á sunnudaginn, 15. apríl. Hér eru allar upplýsingar um skólann og námskeiðin sem boðið er uppá í ár  https://leiklist.is/leiklistarskoli-bil-2018/ Það eru laus pláss á öll námskeiðin nema Trúðanámskeiðið, það er orðið pakkfullt. Ég vil vekja sérstaka athygli ykkar á námskeiðinu Á bak við tjöldin – Hönnun og […]

Leikritunarvinnusmiðja Lakehouse og MAk

Þann 6. maí næstkomandi verður spennandi leikritunarvinnusmiðja á vegum Lakehouse og MAk í Samkomuhúsi Leikfélags Akureyrar. Þar gefst þátttakendum kostur á að bæta verk sín með æfingum, spuna og umræðum. Það er Árni Kristjánsson höfundur og leikstjóri sem leiðir námskeiðið en hann vann Grímuna á sínum tíma fyrir útvarpsverkið Söngur hrafnanna. Árni er útskrifaður leikstjóri […]

Ný íslensk ópera í Iðnó um helgina

Föstudaginn 6. apríl frumsýnir Menntaskóli í tónlist nýja óperu eftir Þórunni Guðmundsdóttur. Verkið heitir „Fjóla, stjúpa, puntstrá og prins“. Það gerist í tónlistarskóla sem er í miklum kröggum, skólastjórinn er þunglyndur og hefur misst trúna á tónlistina. Til þess að bæta ástandið ákveða nemendur að setja upp ævintýraóperu um ráðvilltan prins sem fær það verkefni […]

Aðalfundur, Stuttverkahátíð og spennandi fyrirlestrar

bil_island_logo

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn í Logalandi í Borgarfirði dagana 5. og 6. maí nk. Í tengslum við aðalfundinn verður haldin stuttverkahátíð föstudaginn 4. maí og á laugardagsmorgninum 5. maí verða 4 fyrirlestrar varðandi net- og tæknimál. Stuttverkahátíðin verður sett kl. 20.00 föstudaginn 4. maí stendur fram eftir kvöldi. Tilkynna þarf verk á Stuttverkahátíðina […]

35 x Ég og nokkrar leikkonur

Sýnt í Tjarnarbíói 24. og 25. mars nk. Haustið 2016 kallaði finnska leikdúóið Blaue Frau eftir samstarfi við listamenn frá Norðurlöndunum fyrir sýninguna þeirra “35 X ÉG OG NOKKRAR LEIKKONUR”. Þeir sem sóttu um fengu það verkefni að lýsa því hvernig hið persónulega og faglega skarast og sameinast í starfi þeirra sem leikkona. Blaue Frau […]

Rauða skáldahúsið: Sjón & Dauðasyndirnar sjö

 „En ég vil ekki þægindi. Ég vil Guð, ég vil skáldskap, ég vil raunverulega hættu, ég vil frelsi, ég vil gæsku. Ég vil synd.“ — Aldous Huxley, Veröld ný og góð. 29. mars opnar Rauða Skáldahúsið dyr sínar á ný til að fagna dauðasyndunum sjö. Frelsaðu og fullnægðu fýsnum þínum með ljóðlist í einrúmi á […]

Áheyrnarprufur í breskan leiklistarháskóla

Rose Bruford, sem er alþjóðlegur leiklistarháskóli í London, mun halda inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir í Hinu Húsinu, Reykjavík þann 7. apríl 2018. Nánari upplýsingar og skráning með tölvupósti á: Tölvupóstur: admissions@bruford.ac.uk Símanúmer: +44(0)20 8308 2638 Námið hefst í október 2018. Rose Bruford hefur verið valinn besti leiklistarháskóli Bretlands í skoðanakönnun nemenda nokkur ár […]

Leiklistarskóli BÍL 2018

Starfstími skólans á þessu ári er frá 9. til 17. júní að Reykjaskóla í Hrútafirði Að þessu sinni verða fjögur fjölbreytt námskeið í boði, sum fyrir byrjendur en önnur sem gera ráð fyrir þekkingu og reynslu nemenda. Karl Ágúst Úlfsson mun leiða áhugasama inn í töfrandi heim leikritunar og er námskeiðið ætlað jafnt byrjendum sem […]

Leiklistarskóli BÍL 2018

Starfstími skólans á þessu ári er frá 9. til 17. júní að Reykjaskóla í Hrútafirði Að þessu sinni verða fjögur fjölbreytt námskeið í boði, sum fyrir byrjendur en önnur sem gera ráð fyrir þekkingu og reynslu nemenda. Karl Ágúst Úlfsson mun leiða áhugasama inn í töfrandi heim leikritunar og er námskeiðið ætlað jafnt byrjendum sem […]

Sjóræningjaprinsessan á Húsavík

Laugardaginn 3. mars sl. var 118 ára afmæli Leikfélags Húsavíkur og þann dag var frumsýning á  Sjóræningjaprinsessan eftir Ármann Guðmundsson í leikstjórn Maríu Sigurðardóttur. Þetta er fjörugt verk með ævintýrablæ þar sem fyrir koma sjóræningjar, mannætur og auðvitað falinn fjársjóður. Tuttugu og sex leikarar á öllum aldri koma fyrir í sýningunni sem býður upp á […]

Hans Blær í Tjarnarbíói

Óskabörn ógæfunnar frumsýna leikritið Hans Blær í Tjarnarbíói laugardaginn 10. mars. Hafið þið nokkurn tíma spurt ykkur hvaða eiginleika manneskja þyrfti að hafa til þess að þið gætuð verið þess fullviss að viðkomandi væri að öllu leyti, innra sem ytra, óferjandi skíthæll og viðundur?  Og ef ekki – Hvers vegna í ósköpunum ekki? Hans Blær […]

Frábær en vantar meiri sultu

Fróði og allir hinir grislingarnir eftir Ole Lund Kirkegaard Þýðandi Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson / Lög og söngtextar Valgeir Skagfjörð Leikstjórn Örn Alexandersson Fá leikfélög á landinu hafa verið jafn dugleg við að sinna æskulýðsstörfum og Leikfélag Kópavogs. Vinna með börnum og unglingum hefur jafnan skipað veglegan sess þar á bæ. Þannig hefur félagið alið upp kynslóð […]