Blúndur og blásýra í Freyvangi

Blúndur og blásýra, gamanleikrit í leikstjórn Völu Fannell, verður frumsýnt hjá Freyvangsleikhúsinu föstudaginn 18. október. Verkið er svört kómedía eftir Joseph Kesselring og hefur það verið sýnt víða um land undanfarin ár. Systurnar Abby og Martha búa í ættarhúsinu ásamt bróðursyni sínum sem gengur ekki alveg heill til skógar. Þær hafa orð á sér fyrir […]
Einleikjabúðir Act alone í nóvember

Einleikjahátíðin Act alone í samstarfi við Blábankann á Þingeyri blæs til einstakra einleikjabúða á Þingeyri. Einleikjabúðirnar verða haldnar helgina 1. – 3. nóvember í Leiklistarmiðstöð Kómedíuleikhússins og Blábankanum á Þingeyri. Kennarar verða þeir Elfar Logi Hannesson, einleikari og stofnandi Act alone, og Rúnar Guðbrandsson, leikstjóri. Skráning í einleikjabúðir Act alone er þegar hafin og gengur […]
Sannleikur á sviði – leiklistarnámskeið

Sviðslistahópurinn Flækja stendur fyrir leiklistarnámskeiði fyrir byrjendur og lengra komna þar sem unnið er með leiktexta og helstu aðferðir við að læra og flytja hann á trúverðugan hátt. Námskeiðið hentar sérstaklega þeim sem stefna á prufur bæði fyrir leiklistarskóla eða önnur verkefni. Markmið námskeiðisins er að læra einfalda tækni sem auðvelt er að tileinka sér […]
Lína langsokkur á Sauðárkróki
Hið sívinsæla leikrit Lína langsokkur verður frumsýnt á Sauðárkróki um næstu helgi. Leikstjóri er Pétur Guðjónsson. Leikhópurinn telur 16 manns en alls taka um 35 þátt í uppsetningunni. Leikfélag Sauðárkróks hefur verið iðið við barnasýningakolann á undanförnum árum og setti m.a. upp Ævintýrabókina í fyrra. Þar áður hefur félagið sett upp Dýrin í Hálsaskógi, Emil […]
Aukasýningar á Ástandinu
Tvær fjáröflunarsýningar verða á Ástandinu – sögum kvenna frá hernámsárunum hjá Halaleikhópnum nú í október. Í upphafi árs 2019 sýndi Halaleikhópurinn verkið sem er eftir eftir Brynhildi Olgeirsdóttur og Sigrúnu Valbergsdóttur. Verkið er skemmtilegt en um leið átakanlegt. Það er unnið upp úr sönnum frásögnum kvenna sem voru í samskiptum við setuliðið en Brynhildur safnaði […]
Vikulegt í Hafnarfirði
Laugardaginn 5. október sýnir Leikfélag Hafnarfjarðar leikdagskrána Hið vikulega 14, í nýju húsnæði leikfélagsins í Kapellunni, St. Jó., Suðurgötu 41 í Hafnarfirði. Sýning hefst kl. 20:00. Aðgangur ókeypis en sætafjöldi er takmarkaður.Miðapantanir sendist á leikfelag@gmail.com og skal taka fram nafn og fjölda miða. Starf Leikfélags Hafnarfjarðar er stutt af Hafnarfjarðarbæ.
Þjóðsögurnar í Hveragerði
Síðast liðið vor réð Leikfélag Hveragerðis til starfa leikarann góðkunna Örn Árnason og mun hann leikstýra og skrifa handrit að næsta verkefni félagsins. Örn semur einnig lög og söngtexta fyrir verkið.Að þessu sinni verður unnið með þjóðsögur Jóns Árnasonar en nú í ár eru 200 ár liðin frá fæðingu hans og vill leikfélagið minnast þess […]
Námskeið fyrir leikara og leiklistarnema

Matt Wilde leiklistarkennari hjá Liverpool Institute for Performing Arts (LIPA) verður með námskeið í Kramhúsinu fyrir verðandi leikara og leiklistarnema í október. Ekki er þörf á að undirbúa sig fyrir námskeiðið sem er ókeypis, en nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram. Námskeiðið verður sunnudaginn 27. október kl. 13.00-16.00. Nánari upplýsingar um námskeiðið og leiðbeinandann er að […]
Galdragáttin frumsýnd á Akureyri
Galdragáttin og þjóðsagan sem gleymdist er nýr íslenskur fjölskyldusöngleikur sem frumsýndur verður í Samkomuhúsinu á Akureyri næstkomandi laugardag.
Leiklistarnámskeið í Kópavogi
Í næstu viku hefst leiklistarnámskeið á vegum Leikfélags Kópavogs undir stjórn Grímu Kristjánsdóttur. Á námskeiðinu verður aðaláhersla lögð á persónusköpun og undirbúning leikara fyrir hlutverk í hverskonar leikverkefnum. Fyrri vikuna verður farið í æfingar sem kallast object exercise sem eru æfingar í persónusköpun og seinni vikuna verður farið í senu vinnu með persónunum sem búið […]
Ársrit 2019 komið út
Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga árið 2019 er komið út. Í því er að finna upplysingar um starfsemi einstakra áhugafélaga á síðasta leikári og starfsemi hreyfingarinnar almennt. Fjöldi mynda prýðir ritið sem er tiltækt hér á vefnum. Hægt er panta útpentað eintak hjá Þjónustumiðstöð BÍL.
Leikfélag Hafnarfjarðar hefur leik
Laugardaginn 21. september verður fyrsta sýning Leikfélags Hafnarfjarðar í nýju húsnæði leikfélagsins í Kapellunni, St. Jó, Suðurgötu 41. Sýningin hefst kl. 20:00 og er ókeypis inn. Nánari upplýsingar á Facebook.
Leiklistarmiðstöð á Þingeyri
Enn eru ánægjuleg tíðindi af leiklistarlífinu á Vestfjörðum. Vonir standa nú til að Kómedíuleikhúsið fái aðstöðu fyrir leiklistarmiðstöð í gömlu bæjarskrifstofunum á Þingeyri. „Hér er um að ræða brautryðjenda verkefni í leiklistarmálum á svæðinu. Kómedíuleikhúsið ætlar að koma sér upp sérstakri leiklistarmiðstöð undir starfsemi sína á Þingeyri. Um er að ræða vinnuaðstöðu til æfinga á […]
Leiklistarlíf fyrir vestan
Leiklistin er víðar en á höfuðborgarsvæðinu. Á Vestfjörðum rekur Elvar Logi Hannesson Kómedíuleikhúsið sem hefur sett upp fjölda áhugaverðra leiksýninga undanfarin ár. Það er þó ekki allt, því Elvar Logi er einnig að skrá leiklistarsöguna. Hann gaf út Leiklist á Bíldudal fyrir nokkrum árum og er nú að gefa út bókina Leiklist á Þingeyri. Þar […]
Námskeið fyrir börn og unglinga
Nú er hafin skráning á haustnámskeið Leikgleði hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Í boði verða 10 vikna námskeið, kennd einu sinni í viku í Bæjarleikhúsinu.Allar nánari upplýsingar og skráning eru á www.leikgledi.is. Leikfélag Mosfellssveitar stendur fyrir leiklistarnámskeiðum fyrir börn og unglinga allt árið um kring. Á námskeiðunum vinna nemendur með sjálfstraust, framkomu og framsögn, sigrast á feimni og […]
Opið hús hjá Hafnfirðingum
Leikfélag Hafnarfjarðar er að verða búið að koma sér vel fyrir í nýjum húsakynnum í gömlu kapellunni í St. Jósepsspítala. Félagið hélt í dag opið hús þar sem vinir og velunnarar fengu að skoða nýja leikhúsið. Á myndinni sjást glaðir leikfélagar fagna tímamótunum.
Lokað í Þjónustumiðstöð
Þjónustumiðstöð verður lokuð fös. 30. ágúst og mánudaginn 2. sept. vegna sumarleyfa. Opið frá og með þriðjudegi.
Námskeið og stuttverk á Skaganum
Skagaleikflokkurinn hefur ýmislegt spennandi á prjónunum í vetur. Leiklistarnámskeið hefst fimmtudaginn 29. ágúst og stendur yfir í hálfan mánuð. Um er að ræða ca. 12 tíma námskeið sem endar með sýningu stuttverka. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Jakob Þór Einarsson en hann steig einmitt sín fyrstu spor á leiklistarsviðinu með Skagaleikflokknum. Félagið hvetur sem flesta til […]
Hugleikur í startholunum
Hugleikur ætlar að byrja leikárið með trompi og setja upp glænýtt verk eftir Þórunni Guðmundsdóttur. Um er að ræða söngleik sem gerist á stríðsárunum og er hann sjálfstætt framhald af afmælissýningunni Stund milli stríða sem sýnd var vorið 2014. Sýnt verður í „Nemendaleikhúsinu“ – þ.e. gamla húsnæði Listaháskólans við Sölvhólsgötu 11. Leiksjóri er Þorgeir Tryggvason. […]
Requiem – einleikur/gjörningur
„Guðrún vaknar í eigin jarðarför en kann ekki við að trufla með því að láta vita að hún sé á lífi.“ Leikhópur sem þær skipa Eyrún Ósk Jónsdóttir og Hildur Kristín Thorstensen sýnir einleikinn Requiem. Leikari og höfundur er Eyrún Ósk Jónsdóttir og leikstjóri er Hildur Kristín Thorstensen. Tónlist og leikhljóð samdi Ólafur Torfason. Sýningar […]
Trúðasýning um pyntingar
Companía Patricia Pardo heimsækir Tjarnarbíó í annað sinn, nú með einlægu trúða-, sirkús- og leiksýninguna Kýrin sem hlær. Verkið fjallar um getu mannsins til að pynta og græða sár og teflir fram andstæðum heimum um misnotkun, dauða, breyskleika mannsins og sköpunargáfu. Sameinuðu þjóðirnar skilgreina pyntingar sem sérhvern verknað þar sem fólk er gagngert beitt sársaukafullu […]
Leiklistarnámskeið í Kópavogi
Í september hefst leiklistarnámskeið á vegum Leikfélags Kópavogs sem ætlað er nýliðum og fólki með minni leikreynslu. Farið verður í ýmis grunnatriði sviðsleiks og áhersla lögð á praktíska nálgun.Leiðbeinandi á námskeiðinu er Hörður Sigurðarson sem kennt hefur á svipuðum námskeiðum hjá leikfélaginu undanfarin ár. Námskeiðið verður 18 klst. í heildina, 3 klst. í senn í […]
Óríon frumsýnir Ó, fagra veröld
Leikfélagið Óríon frumsýnir leikritið Ó, fagra veröld eftir Anthony Neilson fimmtudaginn 22. ágúst. Sýnt er í leikhúsi Leikfélags Kópavogs að Funalind 2 í Kópavogi. Leikstjórn er í höndum Önnu Írisar Pétursdóttur. Með uppsetningunni rætist langþráður draumur leikfélagsins, enda hefur sýningin verið á radar félagsins síðan árið 2013. Ó, fögru veröld mætti lýsa sem einskonar fullorðins […]
Áheyrnarprufur – Gauragangur í Hörgárdal
Leikfélag Hörgdæla setur upp Gauragang eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundssonar í vetur. Leitin að Ormi, Lindu, Höllu, Ranúr og félögum er hafin og haldnar verða áheyrnarprufur sunnudaginn 1. september fyrir þá sem vilja taka þátt. Leitað er að hæfileikaríku fólki á aldrinum sextán ára og uppúr til að taka þátt í […]
Flækja á ferð og flugi
Sviðslistahópurinn Flækja mæðist í mörgu þessa dagana. Á mánudag hefjast námskeið á vegum hópsins og um næstu helgi verður leiksýningin Það og Hvað sýnd á Dönskum dögum í Stykkishólmi og Blómstrandi dögum í Hveragerði. Sunnudaginn 18. ágúst verður hópurinn með fatamarkað og fjör í Borgarnesi þar sem m.a. verða til sölu glænýir ÞAÐ OG HVAÐ […]
Leikstjóralisti – skráning
Umsýslugjald fyrir skráningu 1. júní 2026 – 31. maí 2027 er 4.000 kr. Setjið inn kennitölu og við sendum kröfu í bankann.
Sannleikur á sviði

Sviðslistahópurinn Flækja býður þriggja daga leiklistarnámskeið sem er hugsað fyrir þá sem langar að bæta við sig tæknilegri þekkingu í leiklist. Námskeiðið hentar bæði áhugaleikurum og þeim sem stefna á að leggja leiklist fyrir sig. Farið verður í senuvinnu, þar sem þátttakendum er skipt í pör og vinna þau saman með handrit. Markmið námskeiðisins er […]
Umsókn-prufa
Leikdeild UMF Stafholtsstungna
Formaður: Ásgeir Ásgeirsson Þorgautsstaðir 320 Reykholt Sími: 8920343 Netfang:asgeirasgeirsson@outlook.com
Stúdentaleikhúsið sýnir Upplausn/Fyrirmyndarsjálf
Stúdentaleikhúsið frumsýndi leikritið Upplausn/Fyrirmyndarsjálf fyrr í sumar. Þrjár aukasýningar verða á verkinu dagana 28. 29. og 30. júlí í Gömlu Kartöflugeymslunni við Ártúnsbrekku. Upplausn/Fyrirmyndarsjálf fjallar um ungan vinahóp þar sem flestir eru á þeim stað að hafa ekki fundið sér sinn tilgang og farveg í lífinu og flóknar tilfinningar brjótast út í slæmum ákvörðunum og hegðun. Leikritið […]
Sumarlokun Þjónustumiðstöðvar
Þjónustumiðstöðin verður lokuð vegna sumarfría 12. – 16. júlí. Minnum á að fastur opnunartími í sumar er annars virka daga 9.00-12.00 en að öllu jöfnu er einnig opið seinnipart dags. Síminn er 551-6974 og netfangið info@leiklist.is.
Leikfélag Hafnarfjarðar loks í öruggt skjól
Leikfélag Hafnarfjarðar sem verið hefur á hrakhólum undanfarin ár er nú loks að fá aðstöðu fyrir starfsemi sína. Bæjarráð Hafnarfjarðar hefur samþykkt að félagið fái aðstöðu í Kapellunni í gamla St. Jósepsspítalanum til eins árs. Á þeim tíma er ætlunin að finna framtíðarhúsnæði fyir félagið. Leikfélag Hafnarfjarðar er eitt af elstu leikfélögum landsins og hefur […]
Ný stjórn í Ölfusi
Aðalfundur Leikfélags Ölfuss var haldinn 1. júlí síðastliðinn. Ný stjórn var kjörin á fundinum en hana skipa: Magnþóra Kristjánsdóttir formaður Jóhanna Hafdís Leifsdóttir gjaldkeri Erla Dan Jónsdóttir varaformaður Hulda Gunnarsdóttir ritari Óttar Ingólfsson meðstjórnandi Helena Helgadóttir varamaður Ingólfur Arnarson varamaður. Meðfylgjandi mynd er af nýju stjórninni.
Breyttur opnunartími í sumar
Opnunartími Þjónustumiðstöðvar breytist í sumar. Fastur opnunartími verður 9.00-12.00. Að öllu jöfnu er opið eftir það en vissara þó að hafa samband símleiðis áður í 551-6974. Hefðbundinn opnunartími 9.00-13.00 gildir aftur frá og með 26. ágúst.
Leikstjóri óskast í Eyjum
Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir leikstjóra fyrir barnaleikrit sem félagið hyggst setja upp nú í haust. Æfingar fyrir verkið hefjast í byrjun september. Umsóknir ásamt ferilskrá sendast á netfangið leikfelagve@outlook.com fyrir 10.júlí. Myndin að ofan er úr sýningu félagsins á Klaufum og kóngsdætrum.
RVK Fringe Festival hefst 29. júní
Hin árlega jaðarlistahátíð RVK Fringe Festival fer fram í annað sinn dagana 29. júní til 6. júlí. Hátíðin hefur tvöfaldast að stærð frá því á liðnu ári og verða yfir 250 sýningartímar á um 100 mismunandi viðburðum á hátíðinni. Um er að ræða fjöllistahátíð sem er rekin af sjálfboðaliðum, og hafa áhorfendur val um að […]
Huldufugl sópar að sér verðlaunum
Íslenski/breski listhópurinn Huldufugl hefur nýlokið mánaðar ferðalagi um Bretland og Bandaríkin með leiksýninguna Kassann. Sýningin fer fram í sýndarveruleika, og er aðeins fyrir einn áhorfanda í einu. Sýningin var frumsýnd á Reykjavík Fringe Festival fyrir ári síðan, en hefur tekið þó nokkrum breytingum á undanförnu ári og mætti segja að hún verði frumsýnd að nýju á […]
Sumarnámskeið á Selfossi
Leikfélag Selfoss verður að venju með sumarnámskeið fyrir börn og unglinga í leiklist. Unnið verður með framkomu, tjáningu, sjálfsöryggi á sviði, samvinnu og almenna jákvæðni í garð leiklistar. Farið verður í ýmsar leiklistaræfingar og spuna ásamt því að efla sjálfstraust, hugarflug, gleði og jákvæðni. Sumarið 2019 verða fimm fjörug leikhúsnámskeið í boði fyrir börn á […]
Leiklist, tónlist og jóga
Í sumar munu þrjár afar ólíkar og skapandi konur halda námskeið fyrir krakka á aldrinum 6-10 ára sem inniheldur skemmtilega blöndu af jóga, tónlist og leiklist. Þær heita Guðrún Bjarnadóttir leikkona, Arndís Hreiðarsdóttir (Dísa) tónskáld/ tónlistarkona og Eydís Eir Brynju- Björnsdóttir kvikmyndagerðakona og jógakennari. Námskeiðið fer fram í sumar og fyrsta námskeiðið er frá 18-21. […]
Leikróf í Kópavogi
Leikfélag Kópavogs frumsýnir leikdagskrána Leikróf í Leikhúsinu, Funalind 2, laugardaginn 1. júní kl. 17.00. Miðasala er á á vef félagsins. Á dagskránni eru eftirfarandi verk: Át takið Höfundur: Ólafur Þórðarson Leikstjórn: Arnfinnur Daníelsson/Hörður Sigurðarson Leikarar: Birgitta Hreiðarsdóttir, Halldóra Harðardóttir, Ólöf P. Úlfarsdóttir og Þórdís Sigurgeirsdóttir Boðorðin 10 Höfundur: Steinunn Þorsteinsdóttir Leikstjórn: Sigrún Tryggvadóttir Leikarar: Sigríður […]
