Author: lensherra

Frábær en vantar meiri sultu

Fróði og allir hinir grislingarnir eftir Ole Lund Kirkegaard Þýðandi Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson / Lög og söngtextar Valgeir Skagfjörð Leikstjórn Örn Alexandersson Fá leikfélög á landinu hafa verið jafn dugleg við að sinna æskulýðsstörfum og Leikfélag Kópavogs. Vinna með börnum og unglingum hefur jafnan skipað veglegan sess þar á bæ. Þannig hefur félagið alið upp kynslóð eftir kynslóð af leikurum og leikhúsáhugafólki. Sýningin Fróði og allir hinir grislingarnir, sem frumsýnd var 3. mars síðastliðinn, er dæmi um þetta. Hér er á ferðinni barna- og unglingasýning með tiltölulega breiða skírskotun, full af galsa, húmor og söng. Það var eftirvænting í loftinu...

Read More

Marta Nordal er nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar

Menningarfélag Akureyrar hefur ráðið Mörtu Nordal í starf leikhússtjóra Leikfélags Akureyrar. Marta snýr því aftur í Samkomuhúsið, en hún lék fyrir LA á árum áður. Auk þess hefur hún verið leikkona hjá Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu, en undanfarin ár hefur hún alfarið einbeitt sér að leikstjórn. Árið 2010 stofnaði Marta, ásamt Eddu Björgu Eyjólfsdóttur, leikhópinn Aldrei óstelandi og hefur hópurinn framleitt fimm sýningar sem hafa vakið mikla athygli; Fjalla-Eyvind, Sjöundá, Lúkas, Ofsa og Natan. Auk þess hefur Marta leikstýrt fjölda verka fyrir útvarp. Um þessar mundir leikstýrir hún söngleiknum Rocky Horror sem verður frumsýndur síðar í mánuðinum í Borgarleikhúsinu. Marta...

Read More

Slegið á strengi minninga og mannlegs lífs

Freyvangsleikhúsið, Eyjafirði – Þrek og tár eftir Ólaf Hauk Símonarson Leikstjóri Ólafur Jens Sigurðsson Freyvangsleikhúsið hefur á liðnum árum ráðist í hvert stórvirkið á fætur öðru. Leikhúsáhugafólk hefur getað gengið að því sem vísu að ferð á sýningar í Freyvangi veiti því þá stundargleði sem góð leikrit og söngleikir gera. Þrek og tár eftir Ólaf Hauk Símonarson er söngleikur byggður upp í kringum þekkt dægurlög sem nutu vinsælda á þeim tíma sem leikurinn gerist einhvern tíma í kringum 1961. Þar segir frá músíkalskri kaupmannsfjölskyldu í Vesturbæ Reykjavíkur sem reynir að takast á við ýmsan vanda sem að höndum ber...

Read More

Fróði og allir hinir grislingarnir

„Í húsinu á horninu á heima skrýtið fólk …“ – svona hefst upphafssöngur leikritsins Fróði og allir hinir gríslingarnir eftir Ole Lund Kirkegaard sem Leikfélag Kópavogs frumsýnir næstkomandi laugardag. Og þetta er vægt til orða tekið! Í téðu húsi búa m.a. ástsjúkar ungfrúr, geðstirður kall og kátir krakkar sem finna upp á ýmsu sem fullorðna fólkinu finnst að þau ættu bara alveg að láta eiga sig. En þegar skelfileg innbrotaalda ríður er brýnt að allir snúi bökum saman og klófesti þjófinn á hlaupahjólinu! Og þá reynast Fróði og félagar betri en enginn. Sagan um Fróða og alla hina gríslingana...

Read More

Framhjáhald, afbrýðisemi og uppþvottaburstar

Leikfélag Hörgdæla frumsýnir tryllingsfarsann Sex í sveit eftir Marc Camelotti fimmtudaginn 1. mars. Hörður Sigurðarson leikstýrir verkinu sem er í þýðingu og staðfærslu Gísla Rúnars Jónssonar. Sex leikarar taka þátt í uppsetningunni en auk þeirra kemur fjöldi annarra við sögu bak við tjöldin. Benedikt býður hjákonunni Sóleyju í bústaðinn norður í landi þegar eiginkonan Þórunn ákveður óvænt að vera þar líka. Benedikt neyðir Ragnar besta vin sinn til að þykjast vera kærasti Sóleyjar svo Þórunni gruni ekki neitt en það sem Benedikt veit ekki er að Ragnar og Þórunn eiga í ástarsambandi. Og þetta er bara upphafið á flækjunni....

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert