Leikritunarvinnusmiðja Lakehouse og MAk
Þann 6. maí næstkomandi verður spennandi leikritunarvinnusmiðja á vegum Lakehouse og MAk í Samkomuhúsi Leikfélags Akureyrar. Þar gefst þátttakendum kostur á að bæta verk sín með æfingum, spuna og umræðum. Það er Árni Kristjánsson höfundur og leikstjóri sem leiðir námskeiðið en hann vann Grímuna á sínum tíma fyrir útvarpsverkið Söngur hrafnanna. Árni er útskrifaður leikstjóri frá Bristol Old Vic og er listrænn stjórnandi Lakehouse. Árni hefur kennt leikritun í Kvikmyndaskólanum, Tjarnarbíói og á vinnusmiðju á Vestfjörðum. ‘Það eru ótal margir efnilegir höfundar um allt land. Mörg þeirra pikkföst með eina eða þúsund frábærar hugmyndir í skúffunni. Mitt markmið er...
Read More


