Lakehouse leitar að höfundum af landsbyggðinni
Er meistaraverk að daga uppi í skúffunni heima hjá þér? Ertu laumupenni? Lakehouse auglýsir eftir örsögum, myndrænum lýsingum eða öðrum leikrænum þáttum sem endurspegla hugtakið einangrun. Þemað getur fléttast óljóst inn í sögurnar eða verið beintengt viðfangsefninu, verið dramatískt og kómískt, og allt þar á milli. Umsóknarfrestur er til 1. júlí. Stjórn Lakehouse, í samstarfi við reyndan handritshöfund, velur síðan bestu sögurnar og brotin og vefur þær saman í leikverk. Höfundar örsagnanna verða einnig fengnir með í vinnuferlið og fá einstakt tækifæri til að vinna að þessari sérstöku handritasmíð. Höfundar mega vera af öllum aldri og öllum kynjum en...
Read More


