Author: lensherra

Ljóðahugleiðsla um frið og kærleika

Fimmtudaginn 11. október, í friðarviku Reykjavíkurborgar, stendur Eyrún Ósk Jónsdóttir, skáld og leikkona fyrir friðar-ljóðagjörning í Menningarsetri SGI búddistasamtakanna Laugavegi 178. Um er að ræða eins konar ljóða-hugleiðslu þar sem flytjandinn leiðir áhorfendur í einskonar kyrrðar ferðalag með ljóðaupplestri en öll ljóðin fjalla um frið og kærleika og sannkölluð kyrrðar tónlist ómar undir upplestrinum. Áhugaverð og nýstárleg tilraun með gjörninga og ljóðlistina. Leikstjóri er Hildur Kristín Thorstensen en tónlistina samdi Viktor Aron Bragason. Öll ljóðin eru eftir Eyrúnu Ósk Jónsdóttur. Verkið var áður flutt á alþjóða friðardaginn í Fríkirkju Hafnarfjarðar og á fjáröflunarkvöldverði hjá Múltíkúltí. ,,Það hljómar kannski eins og...

Read More

Sigvaldi Kaldalóns í Hannesarholti

Kómedíuleikhúsið frumsýnir leikritið Sigvaldi Kaldalóns í Hannesarholti 4. október komandi. Hér er á ferð einstök sýning um einn ástsælasta listamann þjóðarinnar. Leikurinn fjallar fyrst og fremst um ár Sigvalda í Ármúla í Ísafjarðardjúpi hvar hann starfaði sem læknir í ein ellefu ár. Þó læknisstarfið hafði verið annasamt þá gaf hann sér tíma til að semja lög. Því alls samdi hann um hundrað lög á þessu frjóa tímabili. Mörg þessara laga eru flutt í sýningunni má þar nefna söngperlurnar  Ég lít í anda liðna tíð – Við Kaldalón – Þú eina hjartans yndið mitt – Svanurinn minn syngur – Æ...

Read More

Ævintýri í uppsiglingu hjá Leikfélagi Selfoss

Leikfélag Selfoss er enn í 60 ára afmælisgírnum og er því í óða önn ađ setja upp metnaðarfulla barna- og fjölskyldusýningu sem stefnt er að frumsýna þann 12. október næstkomandi. Á síđustu vikum hefur mikiđ gengið á enda andi fantasíunnar verið yfir leikhúsinu og leikhópurinn dvalið í heimi ljóða og ævintýra. Verkiđ er samsköpun leikstjórans og leikhópsins byggt á ævintýri H.C. Andersens um Litla Kláus og Stóra Kláus, ljóðinu um Sálina hans Jóns míns eftir Davíð Stefánsson, stórskemmtilegum dýrgripum úr gullkistu ævintýranna. Æfingar ganga ljómandi vel enda engin önnur en snillingurinn hún Ágústa Skúladóttir sem leikstýrir hópnum að þessu...

Read More

Hörður verður framkvæmdastjóri

Stjórn Bandalags íslenskra leikfélaga hefur ráðið Hörð Sigurðarson sem framkvæmdastjóra frá 1. janúar 2019. Hörður er Bandalagsfólki að góðu kunnur. Hann sat í varastjórn BÍL á árunum 1996-1998 og í aðalstjórn 1998-2006 og 2008-2010. Hann starfaði einnig í nefnd til undirbúnings Leiklistarvefsins 2002 og hefur verið Lénsherra (umsjónarmaður) hans frá upphafi til dagsins í dag, ásamt því að skrifa fyrir hann greinar og gagnrýni. Hörður var í undirbúningsnefnd NEATA hátíðarinnar á Akureyri 2010, hann var einnig starfsmaður hennar og stýrði þar m.a. gagnrýnifundum. Hörður hefur verið virkur félagi í Leikfélagi Kópavogs frá 1985 og hefur starfað nær óslitið með...

Read More

Svartlyng, frumsýning 21. september

Svartlyng, sótsvartur gamanleikur eftir Guðmund Brynjólfsson í uppsetningu leikhópsins Gral, verður frumsýndur í Tjarnarbíói föstudaginn 21. september kl. 20.00. Í Lagadeild Háskóla Íslands er þrískipting valdins útskýrð með þessum hætti: „Svartlyng-ættin á dómstólana, Svartlyng-ættin á stjórnarráðið og Svartlyng-ættin á löggjafarþingið.“ Hinu er sleppt, að Flokkurinn mannar öll embætti í nafni Svartlyngs-ættarinnar enda á hún Flokkinn. Þegar dregur til tíðinda í stjórnarráðinu og ríkisstjórn Svartlynga riðar til falls ákveður hæstvirtur ráðherra Hermann Svartlyng að ráða til sín gluggaþvottamann til að sýna að það er jú allt uppi á borðum og allt gjörsamlega gegnsætt í  ráðuneytinu sem hann stýrir. En það er ekki nóg...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert