Author: lensherra

Að máta sig í mismunandi hlutverk

Saumastofan eftir Kjartan Ragnarsson Leikfélag Ölfuss – Leikstjóri Guðfinna Gunnarsdóttir Gengið er inn gegnum dökkleitt tjald, við okkur blasa saumavélarnar, straubrettin og sniðin sem mörgum eru í barnsminni, en koma þó yngri áhorfendum spánskt fyrir sjónir. Það er viðeigandi að láta áhorfendur stíga gegnum efni til að njóta þessa verks, því það er einmitt efnið, stykkin, sniðin og saumaskapurinn sem bindur persónur Saumastofunnar saman. Tímalaus spegill? Leikritið Saumastofan eftir Kjartan Ragnarsson er ekki nýtt af nálinni, heldur var það skrifað í tilefni kvennaársins 1975, fyrsta verk höfundar. Eins og segir í leikskrá naut það mjög mikilla vinsælda hjá Leikfélagi...

Read More

Ástandið, sögur kvenna frá hernámsárunum

Halaleikhópurinn, sýnt í Hátúni 10 Höfundar Brynhildur Olgeirsdóttir og Sigrún Valbergsdóttir Leikstjórn Sigrún Valbergsdóttir Halaleikhópurinn er löngu orðin föst stærð í menningarlífi Reykjavíkur og sá sem ekki fer á sýningar hans er ekki að fylgjast með. Í ár sýnir hópurinn Ástandið eftir Brynhildi Olgeirsdóttur og Sigrúnu Valbergsdóttur undir öruggri leikstjórn Sigrúnar. Verkið byggir á frásögnum fjögurra kvenna af ástandsárunum svokölluðu, þ.e. heimsstyrjaldarárunum 1940-1944 þegar breskt og síðar bandarískt hernámslið var í landinu. Það er því sannsögulegt og bregður ljósi á lífið í Reykjavík á þessum umbrotatímum. Leikritið var fyrst skrifað fyrir Snúð og Snældu og sýnt 1997. Það var...

Read More

Ástandið – saga kvenna frá hernámsárunum

Halaleikhópurinn frumsýnir leikritið Ástandið eftir Brynhildi Olgeirsdóttur og Sigrúnu Valbergsdóttur, föstudaginn 8. febrúar. Leikritið byggir á útvarpsþáttum Brynhildar um upplifun hennar af hernámsárunum. Sigrún Valbergsdóttir er leikstjóri og meðhöfundur Brynhildur. Verkið fjallar um fjórar vinkonur sem hittast á kaffihúsi 50 árum eftir hernámið og rifja upp sögur sínar frá þeim árum.  Þær eiga sér sameiginlegar minningar því að allar hafa þær orðið ástfangnar af hermönnum sem hér dvöldu á hernámsárunum. Sögur sem þær hafa sumar ekki getað sagt frá fyrr um hvernig líf þeirra var þá og nú. Ýmsar aðrar persónur koma einnig við sögu sem settu svip sinn á borgarbraginn á stríðsárunum,...

Read More

Tvær ævintýraóperur í Iðnó

Laugardaginn 2. febrúar munu Hugleikur og Menntaskóli í tónlist frumsýna tvær íslenskar óperur byggðar á þekktum ævintýrum. Fyrir hlé birtast Þyrnirós, prins og norn í splunkunýrri óperu sem nefnist Ár og öld. Ungur prins hefur brotist í gegnum þyrnigerði og kemur inn í höll þar sem allir hafa sofið í hundrað ár en ævintýrið tekur óvænta stefnu þegar prinsinn gerir þau reginmistök að vekja nornina á undan Þyrnirós. Eftir hlé er það svo flagðið Gilitrutt sem blekkir hina húðlötu Ragnhildi en bóndi hennar og gimbrin Golsa koma til bjargar. Gilitrutt var fyrst flutt fyrir tíu árum síðan en um...

Read More

Sönglög úr íslenskum leikritum í Iðnó

Á Safnanótt verður Leikminjasafn Íslands með dagskrá í Iðnó þar sem fjallað verður um sönglög í íslenskum leikritum. Um lifandi tónlistarflutning að ræða en einnig verður leikin hljóðrituð tónlist og nokkrir reynsluboltar leggja orð í belg. Dagskrá: Kl. 19:00 Leikin lög úr ýmsum leikritum og söngleikjum. Þátttakendur í spjallborði eru Jón Ólafsson og Ólafur Haukur Símonarson Kl. 20:00 Leikhústríóið leikur sönglög úr leikritum frá tímabilinu 1858-2016 Kl. 20:45 Tónlist í íslenskum revíum. Þátttakandi í spjallborði er Una Margrét Jónsdóttir Kl. 21:15 Leikhústríóið leikur sönglög úr leikritum frá tímabilinu 1858-2016 Kl. 22:00 Leikin lög úr ýmsum leikritum og söngleikjum, þar...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert