Author: lensherra

Leiklistarnámskeið í Evrópu

Töluvert framboð er af námskeiðum og vinnustofum í leiklist á meginlandi Evrópu fyrir þá sem vilja bæta við sig þekkingu og þjálfun í leiklistinni.  Námskeið í leik, leikstjórn og sviðshreyfingum er t.d. að finna hér í fjölbreyttri flóru slíkra í Þýskalandi og Austurríki á þessu ári og næsta: * International Theatre Workshop 10. – 17. júní, 2019 | Leibnitz, Austurríki. Námskeiðslýsing: http://www.iugte.com/projects/theatreworkshop * International Summer Physical Theatre Intensive 9. – 14. júlí, 2019 | Berlín, Þýskaland Námskeiðslýsing: http://www.iugte.com/projects/summerschool * Movement: Directing/Teaching Lab 26. – 31. ágúst, 2019 | Berlín, Þýskaland. Námskeiðslýsing: http://www.iugte.com/directing * International Workshop for Choreographers, Movement Directors...

Read More

Rympa í Stafholtstungum

Leikdeild Umf. Stafholtstungnafrumsýndi Rympu á ruslahaugnum eftir Herdísi Egilsdóttur síðastliðinn laugardag í Félagsheimilinu Þinghamri. Verkið er barna- og fjölskylduleikrit sem gerist á ruslahaug þar sem Rympa býr ásamt honum Volta sínum. Óhætt er að segja að Rympa sé persónugervingur óæskilegs félagsskapar og finnst henni hrekkir og þjófnaðir lítið mál og raunar hin mesta skemmtun. En þegar allt kemur til alls er Rympa umkomulaus stúlka sem fæstir vilja vita af. Kvöld eitt koma svo á ruslahauginn persónur sem sennilegast flokkast sem meira „venjulegar“ og fjallar verkið um samskipti Rympu við þær. Með hlutverk Rympu fer Sigurlaug Kjartansdóttir á Hamraendum sem...

Read More

Rjúkandi ráð hjá Leikfélaginu Borg

Leikfélagið Borg frumsýndi Rjúkandi ráð eftir þá Jónas og Jón Múla Árnasyni og Stefán Jónsson með tónlist eftir Jón Múla á laugardaginn 2. mars síðastliðinn. Leikstjóri er Hera Fjord og sýnt er í Félagsheimilinu Borg. Miðaverð á sýninguna er 2500 kr og 1500 fyrir börn 12 ára og yngri. Miðapantanir í s. 771-4465 eða í skilaboðum hjá leikfélaginu á...

Read More

Leiklistarskóli BÍL 2019

Leiklistarskóli BÍL verður settur í 23. sinn í sumar og er námsskráin fjölbreytt og spennandi eins og vant er. Boðið er upp á þrjú námskeið; grunnámskeið fyrir styttra komna, framhaldsnámskeið í leikritun auk sérnámskeiðs fyrir leikara. Tveir nýir og spennandi kennarar, þau Aðalbjörg Árnadóttir og Árni Kristjánsson mæta í skólann en auk þeirra snýr Rúnar Guðbrandsson aftur með sitt vinsæla fimm sorta sérnámskeið fyrir leikara. Dagskrána í heild má sjá...

Read More

Leiklistarskóli BÍL 2019

Starfstími skólans á þessu ári er frá 8. til 16. júní að Reykjaskóla í Hrútafirði Bæklingur skólans starfsárið 2019 á PDF formi Kveðja frá skólanefnd:     Kæru leiklistarvinir!   Það er okkur sönn ánægja að bjóða ykkur velkomin í Reykjaskóla í sumar þar sem leiklistarskólinn okkar verður settur í tuttugasta og þriðja sinn. Við vonum að þetta skólaár verði sama uppspretta metnaðar, sköpunar og gleði og verið hefur. Að þessu sinni verða þrjú fjölbreytt námskeið í boði. Við bjóðum velkomna Aðalbjörgu Árnadóttur sem kennir hjá okkur í fyrsta sinn og mun taka á móti nýjum nemendahópi á Leiklist I. Einnig fögnum við því að fá Árna Kristjánsson í kennarahópinn okkar. Hann mun sjá um Leikritun II sem er framhald af byrjendanámskeiðinu í leikritun sem Karl Ágúst Úlfsson var með í fyrrasumar. Sérnámskeið í leiklist fyrir lengra komna verður í höndum hins þrautreynda kennara Rúnars Guðbrandssonar. Boðið hefur verið upp á sambærilegt námskeið áður og afar vel af því látið. Þá er vert að nefna að við ráðgerum framhaldsnámskeið næsta vetur um það sem gerist bak við tjöldin í leikhúsinu. Þetta námskeið verður væntanlega í Reykjavík í höndum Evu Bjargar Harðardóttur en verður nánar auglýst síðar. Hlökkum til að sjá ykkur – með bestu kveðju, Hrefna, Dýrleif, Herdís, Hrund og Gísli Skráning í skólann stendur yfir frá 15. mars til 15. apríl. Umsóknir skal fylla út á Leiklistarvefnum, www.leiklist.is....

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert