Author: lensherra

Gaman saman á Norðurlandi

Leikfélag Hörgdæla og Freyvangsleikhúsið hafa tekið höndum saman og frumsýna stuttverkadagskrá föstudagskvöldið 22. mars og laugardagskvöldið 23. mars í Freyvangi. Eingöngu verða þessar tvær sýningar. Verkin sem sýnd verða eru sambland af glensi og gleði, hádramatík og fúlustu alvöru og eru skrifuð, leikin og leikstýrð af meðlimum þessa tveggja farsælu leikfélaga sem sameina hér krafta sína í fyrsta skipti. Miðaverð er 2.000 kr. og miðapantanir eru í síma 857 5598 á milli kl. 10-14 alla virka daga, og í tölvupósti á freyvangur@gmail.com. Miðaverði er stillt í hóf og kostar miðinn aðeins 2.000...

Read More

Nanna systir í Árnesi

Föstudaginn 8. mars frumsýndi Leikdeild Ungmennafélags Gnúpverja leikritið „Nanna systir“ eftir Kjartan Ragnarsson og Einar Kárason. UMFG hefur um áratugaskeið haldið úti sérlega kraftmiklu og metnaðarfullri leiklistarstarfsemi á svæðinu en frá árinu 2010 hefur félagið rekið sérstaka leikdeild. Leikstjóri Nönnu systur er hinn vel þekkti leikari og Spaugstofumaður Örn Árnason en sýnt er í félagsheimilinu Árnesi. Nanna systir er eftir Ragnar Kjartansson og Einar Kárason. Þetta grátbroslega drama frá 1996 gerist í litlu sjávarþorpi úti á landi. Til stendur að setja upp leikrit í stórri skemmu, en ekki er allt með felldu í undirbúningnum þar sem uppákomur liðinna stunda...

Read More

Senuþjófurinn sýnir stuttleikrit Becketts

Senuþjófurinn, nýtt leikhús í hjarta Garðabæjar, er í burðarliðnum og sýnir laugardaginn 30. mars sviðsetta leiklestra á þremur stuttleikritum eftir Samuel Beckett. Þar stíga á svið þaulreyndir leikarar, Arnar Jónsson, Kristbjörg Kjeld, Pálína Jónsdóttir og Þórunn Magnea Magnúsdóttir, auk Guðrúnar Kristinsdóttur, sem nam leiklist í París en hefur lítið sést á sviði hérlendis. Leikritin sem sýnd verða eru Ekki ég, Fótatak og Ein ræða. Efnislega tengjast verkin innbyrðis og þótt ólík séu lýsa þau öll, að hætti Becketts, tilvist og ævi nútímamannsins á tragíkómískan hátt. Trausti Ólafsson hefur þýtt leikritin og leikstýrir þeim. Sýning leikritanna hefst klukkan 16 og...

Read More

Frásagnir sjómannskvenna á Akureyri

Leikhópurinn Artik stendur nú að uppsetningu á nýja leikverkinu Skjaldmeyjar hafsins, sem frumsýnt verður í Samkomuhúsinu í lok mars. Verkið er sannsögulegt leikverk um líf eiginkvenna sjómanna og er fyrsta frumsýningin í röð gróðurhúsaverkefna Leikfélags Akureyrar. Verkið er unnið eftir aðferð sem á ensku kallast Verbatim og er best þýtt sem beinheimildaverk, en þá eru viðtöl tekin við fólk sem tengist efninu og þau síðan klippt saman til að mynda eina heild, án þess að orðalagi sé breytt. Skjaldmeyjar hafsins byggir á viðtölum við eiginkonur sjómanna á norður- og austurlandi, og var efni úr 10 viðtölum notað til þess...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert