Falleg, skemmtileg og fræðandi sýning
Leitin að sumrinu – Sólheimaleikhúsið Leikstjóri: Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson Tónlist: Hallbjörn V. Rúnarsson Þegar komið var á Sólheima í Grímsnesi þann 1. maí síðastliðinn var blíðskapar veður og auðvelt að óska sér að það væri svona alla daga. Nú þegar þetta er skrifað er kominn rigningarsuddi. En það er einmitt þetta sem leikrit Sólheimaleikhússins fjallar um; breytingar á veðrinu og hringrás árstíðanna. Leikurinn hefst á fögrum sumardegi og Jón aðalpersóna verksins nýtur sólarinnar og hitans. Hann leggst í sólbað, en allt í einu kemur kaldur gustur. Kári er mættur á svæðið með haustið. Kári og félagar hans tína laufin af...
Read More


