Author: lensherra

Huldufugl sópar að sér verðlaunum

Íslenski/breski listhópurinn Huldufugl hefur nýlokið mánaðar ferðalagi um Bretland og Bandaríkin með leiksýninguna Kassann. Sýningin fer fram í sýndarveruleika, og er aðeins fyrir einn áhorfanda í einu. Sýningin var frumsýnd á Reykjavík Fringe Festival fyrir ári síðan, en hefur tekið þó nokkrum breytingum á undanförnu ári og mætti segja að hún verði frumsýnd að nýju á Íslandi í þarnæstu viku. Á síðastliðnu ári hefur sýningin farið til Stokkhólms, Berlínar, Brighton, London, Los Angeles og San Diego og hefur hvarvetna selst upp á örskotsstundu og sýningin hlotið lof gagnrýnenda. Einnig hefur sýningin unnið til verðlauna á þeim hátíðum sem hún hefur...

Read More

Sumarnámskeið á Selfossi

Leikfélag Selfoss verður að venju með sumarnámskeið fyrir börn og unglinga í leiklist. Unnið verður með framkomu, tjáningu, sjálfsöryggi á sviði, samvinnu og almenna jákvæðni í garð leiklistar. Farið verður í ýmsar leiklistaræfingar og spuna ásamt því að efla sjálfstraust, hugarflug, gleði og jákvæðni. Sumarið 2019 verða fimm fjörug leikhúsnámskeið í boði fyrir börn á aldrinum 7–13 ára (fædd 2006–2012), og eitt í ágúst fyrir 12-16 ára (2003-2007) Námskeiðin verða eftirfarandi vikur: 18. – 21. júní kl. 11:00 – 16:00 24. – 28. júní kl. 12:00 – 16:00 1. – 5. júlí kl. 12:00 – 16:00 8. – 12....

Read More

Leiklist, tónlist og jóga

Í sumar munu þrjár afar ólíkar og skapandi konur halda námskeið fyrir krakka á aldrinum 6-10 ára sem inniheldur skemmtilega blöndu af jóga, tónlist og leiklist. Þær heita Guðrún Bjarnadóttir leikkona, Arndís Hreiðarsdóttir (Dísa) tónskáld/ tónlistarkona og Eydís Eir Brynju- Björnsdóttir kvikmyndagerðakona og jógakennari. Námskeiðið fer fram í sumar og fyrsta námskeiðið er frá 18-21. júní og enn nokkur laus pláss. Næstu námskeið fara fram í júlí og ágúst en um er að ræða 4-5 daga námskeið, þrjá tíma í senn. Nánari upplýsingar er að finna á: yogadis.is/skapandi-krakkar/ facebook.com/skapandikrakkar Sendið póst á skapandikrakkar@gmail.com fyrir frekari upplýsingar eða hringið í...

Read More

Leikróf í Kópavogi

Leikfélag Kópavogs frumsýnir leikdagskrána Leikróf í Leikhúsinu, Funalind 2, laugardaginn 1. júní kl. 17.00. Miðasala er á á vef félagsins.  Á dagskránni eru eftirfarandi verk: Át takið Höfundur: Ólafur Þórðarson Leikstjórn: Arnfinnur Daníelsson/Hörður Sigurðarson Leikarar: Birgitta Hreiðarsdóttir, Halldóra Harðardóttir, Ólöf P. Úlfarsdóttir og Þórdís Sigurgeirsdóttir Boðorðin 10 Höfundur: Steinunn Þorsteinsdóttir Leikstjórn: Sigrún Tryggvadóttir Leikarar: Sigríður Sól Indriðadóttir, Ellen Dögg Sigurjónsdóttir Engin vettlingatök Höfundur: Þórunn Guðmundsdóttir Leikstjórn: Örn Alexandersson Leikari: Valgerður Rannveig Ásgeirsdóttir Hinir óvelkomnu Höfundur: Walter Wykes Þýðing: Hörður Sigurðarson Leikstjórn: Hörður Sigurðarson Leikarar: Halldóra Harðardóttir, Halldór Sveinsson og Maria Araceli Miðaverð er 1.500 kr. og miðasala á vef...

Read More

Höfundar í heimsókn að Reykjum

Ákveðið hefur verið að bjóða höfundum í heimsókn í Leiklistarskólann í sumar. Þeir sem eru með leikrit í smíðum geta dvalið að Reykjum meðan námskeiðshald Leiklistarskóla BÍL stendur yfir og unnið að sínum verkefnum innblásnir af þeim leiklistaranda sem þar ríkir.  Aðeins 4 pláss eru laus. Sendið póst á info@leiklist.is. Fyrstur kemur, fyrstur...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert