Author: lensherra

Aukasýningar á Ástandinu

Tvær fjáröflunarsýningar verða á Ástandinu – sögum kvenna frá hernámsárunum hjá Halaleikhópnum nú í október. Í upphafi árs 2019 sýndi Halaleikhópurinn verkið sem er eftir eftir Brynhildi Olgeirsdóttur og Sigrúnu Valbergsdóttur. Verkið er skemmtilegt en um leið átakanlegt. Það er unnið upp úr sönnum frásögnum kvenna sem voru í samskiptum við setuliðið en Brynhildur safnaði sögum fjölda kvenna frá þessum árum. Í haust voru áhorfendapallar leikhúss Halaleikhópsins að Hátuni 12 endurnýjaðir. Leikhópurinn hefur fengið mikla hvatningu til að hafa fleiri sýningar á verkinu og því þótti tilvalið að hafa þessa sýningu til fjáröflunar. Miðaverð verður sem áður kr. 2500....

Read More

Vikulegt í Hafnarfirði

Laugardaginn 5. október sýnir Leikfélag Hafnarfjarðar leikdagskrána Hið vikulega 14, í nýju húsnæði leikfélagsins í Kapellunni, St. Jó., Suðurgötu 41 í Hafnarfirði. Sýning hefst kl. 20:00. Aðgangur ókeypis en sætafjöldi er takmarkaður.Miðapantanir sendist á leikfelag@gmail.com og skal taka fram nafn og fjölda miða. Starf Leikfélags Hafnarfjarðar er stutt af...

Read More

Þjóðsögurnar í Hveragerði

Síðast liðið vor réð Leikfélag Hveragerðis til starfa leikarann góðkunna Örn Árnason og mun hann leikstýra og skrifa handrit að næsta verkefni félagsins. Örn semur einnig lög og söngtexta fyrir verkið.Að þessu sinni verður unnið með þjóðsögur Jóns Árnasonar en nú í ár eru  200 ár liðin frá fæðingu hans og vill leikfélagið minnast  þess með skemmtilegum hætti. Ef ekki væri fyrir eljusemi Jóns væru örugglega flest af þeim hundruðum sagna og ævintýra sem við Íslendingar þekkjum svo vel, týnd og tröllum gefin. Hver man ekki eftir  álfasögum? Bakkabræðrum?! Sögunni af Gilitrutt sem og öðrum þjóðþekktum ævintýrum?Óhætt er að...

Read More

Námskeið fyrir leikara og leiklistarnema

Matt Wilde leiklistarkennari hjá Liverpool Institute for Performing Arts (LIPA) verður með námskeið í Kramhúsinu fyrir verðandi leikara og leiklistarnema í október. Ekki er þörf á að undirbúa sig fyrir námskeiðið sem er ókeypis, en nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram. Námskeiðið verður sunnudaginn 27. október kl. 13.00-16.00. Nánari upplýsingar um námskeiðið og leiðbeinandann er að finna...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert