Áhugaleikhús atvinnumanna frumsýnir sjónleikinn Ódauðlegt verk um samhengi hlutanna föstudaginn 16. janúar kl. 17 í Nýlistasafninu. Verkið er hluti af fimm verka röð ódauðlegra leikverka um hegðun og eðli mannsins og er annað í röðinni. Höfundur og leikstjóri verksins er Steinunn Knútsdóttir um útlit sér Ilmur Stefánsdóttir.
Verkin eru rannsókn á áráttuhegðun mannkyns og ófullkomleika. Þau feta sig inn í augnablikið þar sem maðurinn stendur berskjaldaður frammi fyrir guði og viðurkennir vanmátt sinn. Verkin leita að sársaukanum sem býr djúpt inní sálu mannsins og leitast við að skilja hann. Fyrsta verkið í kvintólógíunni var Ódauðlegt verk um stjórn og stjórnleysi og var sýnt við góðan orðstír í Klink og Bank listasamsteypunni vorið 2005.
Áhugaleikhús atvinnumanna er hópur áhugafólks um frelsi til óháðrar listsköpunar í leiklist. Áhugaleikhús atvinnumanna hefur áhuga á leiklist sem talar til sinna áhorfenda án þess að verða meðvirk. Áhugleikhús atvinnumanna lítur á leiksýningar sínar sem vettvang til að velta áleitnum spurningum fyrir sér þó ekki sé langt í kímni og kæruleysi. Engir peningar renna í gegnum Áhugaleikhús atvinnumanna og er ókeypis er inn á leiksýningar leikhússins.
Leikarar sýningarinnar eru Aðalbjörg Árnadóttir, Árni Pétur Guðjónsson, Hera Eiríksdóttir, Jórunn Sigurðardóttir, Lára Sveinsdóttir, Magnús Guðmundsson, Ólöf Ingólfsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson
Aðeins fjórar sýningar verða á verkinu og er aðgangur ókeypis.
2. sýning Sunnudaginn 18. janúar kl. 15
3. sýning Sunnudaginn 18. janúar kl. 16
4. sýning Föstudaginn 23. janúar kl. 17