Tvær fjáröflunarsýningar verða á Ástandinu – sögum kvenna frá hernámsárunum hjá Halaleikhópnum nú í október.

Í upphafi árs 2019 sýndi Halaleikhópurinn verkið sem er eftir eftir Brynhildi Olgeirsdóttur og Sigrúnu Valbergsdóttur. Verkið er skemmtilegt en um leið átakanlegt. Það er unnið upp úr sönnum frásögnum kvenna sem voru í samskiptum við setuliðið en Brynhildur safnaði sögum fjölda kvenna frá þessum árum.

Í haust voru áhorfendapallar leikhúss Halaleikhópsins að Hátuni 12 endurnýjaðir. Leikhópurinn hefur fengið mikla hvatningu til að hafa fleiri sýningar á verkinu og því þótti tilvalið að hafa þessa sýningu til fjáröflunar. Miðaverð verður sem áður kr. 2500. Ennfremur verður baukur frammi ef einhverjir vildarvinir félagsins vilja styrkja bekkjakaupin. Sýningarnar verða föstudaginn 11. okt kl. 20.00 og sunnudaginn 13. okt kl. 17.00.

Miðapantanir í síma 897 5007 og á midi@halaleikhopurinn.is